Neitar að biðjast afsökunar á niðrandi færslu um Heimi Aron Guðmundsson skrifar 27. september 2026 11:45 Heimir Hallgrímsson, landsliðsþjálfari Írlands og Shlomi Barzel, samskiptastjóri ísraelska knattspyrnusambandsins Vísir/Getty Shlomi Barzel, samskiptastjóri ísraelska knattspyrnusambandsins, neitaði að biðjast afsökunar á niðrandi færslu um Heimi Hallgrímsson, landsliðsþjálfara Írlands, sem hann birti á samfélagsmiðlum ísraelska knattspyrnusambandsins.
Ísrael og Írland mætast í Þjóðadeild UEFA í Ungverjalandi í dag í leik sem hefur fangað athygli heimspressunnar. Mikil andstaða er meðal írsku þjóðarinnar gagnvart því að Írar mæti til leiks og spili við Ísraela sökum ástandsins á Gaza og leit um stund út fyrir í gær að leikurinn væri kominn í uppnám. Löng fundarhöld leikmanna írska landsliðsins og úrsögn eins leikmanns úr landsliðsverkefninu áttu sér stað í gær og ljóst að ekki líður öllum vel með að fara að mæta Ísrael í leik kvöldsins. Eftir atkvæðagreiðslu meðal leikmanna var ákveðið að írska landsliðið myndi mæta til leiks. Í gær sátu fulltrúar ísraelska landsliðsins fyrir svörum á blaðamannafundi, þar á meðal samskiptastjóri ísraelska knattspyrnusambandsins, Shlomi Barzel, sem hafði nokkrum dögum áður birt niðrandi færslu um Heimi Hallgrímsson, landsliðsþjálfara Írlands. Á blaðamannafundi fyrir landsleikjagluggann þar sem írska landsliðið var kynnt var Heimir spurður hvað honum fyndist um að mæta landinu. „Við erum ekki að spila með þjóðarmorði, við erum að spila gegn þjóðarmorði. Við erum að spila gegn Ísrael, við erum ekki að spila með Ísrael,“ sagði Heimir. Israel FA head of communications Shlomi Barzel says he will not apologise for a social media post accusing Ireland boss Heimir Hallgrimsson of ignorance and hypocrisy after the head coach said: 'We are not playing with genocide, we are playing against genocide.' #RTEsoccer pic.twitter.com/TVpTYPtnqq— RTÉ Sport (@RTEsport) September 26, 2026 Ísraelska knattspyrnusambandið birti í framhaldinu færslu á samfélagsmiðlinum X þar sem Heimir var kallaður: „Fáfróður, hræsnari og heimskur.“ Shlomi segist ábyrgur fyrir færslunni og inntur eftir því á blaðamannafundi hvort hann hygðist biðjast afsökunar á henni svaraði hann því neitandi. „Ég dreg hins vegar til baka það sem ég skrifaði um heimsku.“ Leikur Ísrael og Írlands í Þjóðadeild UEFA hefst klukkan korter í sjö í kvöld og verður sýndur í beinu streymi á Viaplay.
Heimir Hallgrímsson þjálfar landslið Írlands Þjóðadeild karla í fótbolta Írland Ísrael Átök í Ísrael og Palestínu Mest lesið Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Fótbolti Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Fótbolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Fótbolti Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Fótbolti Gómuð við gróft svindl í Berlín Sport Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Íslenski boltinn Bakgarðsáskorunin: Leitast eftir óprenthæfri hvatningu Sport Uppgjörið: Færeyjar - Ísland 0 - 2 | Umspilssæti Íslendinga staðreynd Fótbolti Fleiri fréttir Leggur skóna á hilluna Andar léttar: Skilorðsbundið bann fyrir njósnirnar Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Upp um eitt sæti á heimslistanum Rekinn frá Tyrkjum Arteta framlengir við Arsenal Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Dregið á föstudag: Sjáðu mörk og fögnuð ungu strákanna okkar Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Kveðjubréf frá Kidda Steindórs Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Fékk að fara á fyrstu A-landsliðsæfinguna á afmælisdaginn Fagnar stiginu: „Ég var að fíla Eistana“ „Bara lét okkur heyra það í hálfleik“ „Svo lengi sem ég get hlaupið vil ég spila fyrir Ísland“ „Hefðum tapað ef Hákon væri ekki í markinu“ „Það sem svíður mest“ Uppgjörið: Eistland - Ísland 0-0 | Markalaust en strákarnir á toppnum Einkunnir Íslands: Takmörkuð gæði í Tallinn Ronaldo segir þjálfarann hafa svikið sig Unnu stórsigur og komu Íslandi í umspil Króatía - Spánn 2-1 | Varamaðurinn bjargaði sigri fyrir Spán Kane með tvennu í öruggum sigri Byrjunarlið Íslands: Fimm breytingar og Gylfi inn Uppgjörið: Færeyjar - Ísland 0 - 2 | Umspilssæti Íslendinga staðreynd Leikdagur í Tallinn: Hitað upp á Íslandstorgi fyrir mikilvægan leik Skrýtinn leiktími og leikmenn því ekki með fulla stjórn Af hverju er svona mikilvægt að vinna riðilinn? Sjá meira