Ringulreið hjá Heimi og leikur við Ísrael í uppnámi Aron Guðmundsson skrifar 26. september 2026 10:39 Heimir Hallgrímsson, landsliðsþjálfari Írlands Getty/Stephen McCarthy Mikil óvissa er uppi varðandi leik Írlands við Ísrael í Þjóðadeild UEFA á morgun. Blaðamannafundi Heimis Hallgrímssonar var frestað, hans lið hefur enn ekki mætt til æfinga og það berast af því óstaðfest tíðindi að leikmenn séu hættir við að gefa kost á sér í leikinn.
Írski ríkismiðillinn RTE hefur fjallað mikið um málið núna í morgun en stundarfjórðungi áður en blaðamannafundur Heimis Hallgrímssonar, landsliðsþjálfara Írlands, átti að hefjast var honum frestað. Blaðamannafundurinn átti að eiga sér stað fyrir síðustu æfingu Íra fyrir leik morgundagsins en staðan núna er hins vegar sú að liðið hefur enn ekki mætt til æfingar og er áfram á liðshóteli sínu. Mikil andstaða hefur verið meðal írsku þjóðarinnar gagnvart því að landsliðið mæti til leiks og keppi við Ísrael í ljósi stöðunnar sem uppi er á Gaza og þess stríðsreksturs sem Ísraelar hafa viðhaft þar. Hingað til hefur lítið borið á brestum hvað varðar samstöðu írska liðsins í því að mæta til leiks gegn landsliði Ísrael en brestir virðast nú hafa tekið að myndast. Nokkrir írskir blaðamenn, þar á meðal Daniel McDonnel hjá Irish Independent, greina nú frá því að Gavin Bazunu, markvörður í írska landsliðinu, hafi gefið það til kynna að hann vilji ekki spila gegn Ísrael. Fleiri leikmenn íhugi það nú einnig. Developments with Ireland: My understanding is that Gavin Bazunu has indicated that he doesn't want to play in the game - a view expressed in meeting last night. And there are other players now deliberating over coming with him. Training delayed.— Daniel McDonnell (@McDonnellDan) September 26, 2026 Írsku blaðamennirnir sem voru mættir á blaðamannafund Heimis í morgun í Debrecen bíða nú fyrir utan liðshótel írska landsliðsins þar sem stíf fundarhöld leikmanna og þjálfara eru nú í gangi. „Það gætu verið fjórir eða fimm leikmenn sem hafa nú ákveðið að þeir vilji ekki taka þátt í leiknum,“ segir Brendan O´Connor, blaðamaður RTE. „Ef þeir standa við yfirlýst markmið sitt um að þeir verði að vera allir saman í þessu, þá gæti vel farið svo að ef einn leikmaður eða fleiri vilji ekki taka þátt þá muni enginn af þeim taka þátt.“ Now outside the Irish team hotel in Debrecen where meetings involving players and management are continuing pic.twitter.com/Dt8x2J0PR4— Daniel McDonnell (@McDonnellDan) September 26, 2026 Ísraelar hafa beint spjótum sínum að Heimi í aðdraganda þessa fyrri leiks liðanna sem fram fer á hlutlausum velli í Debrecen í Ungverjalandi á morgun í Þjóðadeild UEFA. Heimir hefur áður sagt frá því að leikmönnum írska landsliðsins þyki óþægilegt að vera í þessari stöðu. Ummæli hans á blaðamannafundi á dögunum féllu ekki vel í kramið hjá forráðamönnum ísraelska knattspyrnusambandsins. „Við erum ekki að spila með þjóðarmorði, við erum að spila gegn þjóðarmorði. Við erum að spila gegn Ísrael, við erum ekki að spila með Ísrael,“ sagði Heimir en þau ummæli drógu dilk á eftir sér. Harðorð yfirlýsing knattspyrnusambands Ísrael fylgdi og var Heimir sakaður um „fáfræði, hræsni og heimsku“. Beðið er yfirlýsingar frá írska landsliðinu en óhætt er að segja á þessum tímapunkti að ekki sé ljóst á þessari stundu hvort leikur Írlands og Ísrael fari fram.
Heimir Hallgrímsson þjálfar landslið Írlands Þjóðadeild karla í fótbolta Ísrael Írland Átök í Ísrael og Palestínu Mest lesið Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Fótbolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Fótbolti Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Fótbolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Fótbolti Gómuð við gróft svindl í Berlín Sport Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Íslenski boltinn Bakgarðsáskorunin: Leitast eftir óprenthæfri hvatningu Sport Dregið á föstudag: Sjáðu mörk og fögnuð ungu strákanna okkar Fótbolti Fleiri fréttir Andar léttar: Skilorðsbundið bann fyrir njósnirnar Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Upp um eitt sæti á heimslistanum Rekinn frá Tyrkjum Arteta framlengir við Arsenal Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Dregið á föstudag: Sjáðu mörk og fögnuð ungu strákanna okkar Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Kveðjubréf frá Kidda Steindórs Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Fékk að fara á fyrstu A-landsliðsæfinguna á afmælisdaginn Fagnar stiginu: „Ég var að fíla Eistana“ „Bara lét okkur heyra það í hálfleik“ „Svo lengi sem ég get hlaupið vil ég spila fyrir Ísland“ „Hefðum tapað ef Hákon væri ekki í markinu“ „Það sem svíður mest“ Uppgjörið: Eistland - Ísland 0-0 | Markalaust en strákarnir á toppnum Einkunnir Íslands: Takmörkuð gæði í Tallinn Ronaldo segir þjálfarann hafa svikið sig Unnu stórsigur og komu Íslandi í umspil Króatía - Spánn 2-1 | Varamaðurinn bjargaði sigri fyrir Spán Kane með tvennu í öruggum sigri Byrjunarlið Íslands: Fimm breytingar og Gylfi inn Uppgjörið: Færeyjar - Ísland 0 - 2 | Umspilssæti Íslendinga staðreynd Leikdagur í Tallinn: Hitað upp á Íslandstorgi fyrir mikilvægan leik Skrýtinn leiktími og leikmenn því ekki með fulla stjórn Af hverju er svona mikilvægt að vinna riðilinn? Utan vallar: Sögufræg vinátta lögð til hliðar í stutta stund með ógn úr austri til staðar Sjá meira