Lærisveinn Heimis tók af skarið: „Leikurinn við Ísrael ætti ekki að fara fram“ Sindri Sverrisson skrifar 25. september 2026 15:47 Jason Knight ætlar að harka af sér og spila við Ísrael en myndi helst vilja að leikurinn færi ekki fram. Getty/Seb Daly Jason Knight, einn af lærisveinum Heimis Hallgrímssonar í írska landsliðinu í fótbolta, segir að í sínum huga ætti leikurinn við Ísrael í Þjóðadeildinni á sunnudag ekki að fara fram. Hann muni harka af sér en geðjast augljóslega ekki að mæta Ísraelsmönnum.
Heimir sagði í síðustu viku að mörgum leikmanna sinna þætti óþægilegt að þurfa að spila við Ísrael. Heimir lét hafa eftir sér að Írar væru „ekki að spila með þjóðarmorði heldur gegn þjóðarmorði“, til að verja þá ákvörðun að liðið ætlaði ekki að sniðganga leikina, en ísraelska knattspyrnusambandið sakaði þá Heimi um „hræsni og heimsku“. Eftir tapið gegn Kósovó í gærkvöld hefur Knight nú stigið fram og sagt berum orðum að hann myndi helst vilja að enginn leikur yrði við Ísrael. „Sjáið til, þetta er erfitt. Ég held augljóslega að leikurinn ætti ekki að fara fram en hann fer fram. Við munum ræða þetta betur og hvað það þýðir, við munum ræða málin saman sem hópur og halda áfram þaðan,“ sagði Knight. Jason Knight on Israel: ‘I don’t think the game should be going ahead’ https://t.co/k8M0BGDnug— Irish Independent (@Independent_ie) September 25, 2026 „Ég er nokkuð reyndur. Enginn okkar hefur gengið í gegnum svona aðstæður áður en ég vil meina að ég sé reyndur, harður af mér og geti komist í gegnum flest og það er það sem ég mun reyna að gera. Ég mun reyna að einbeita mér að fótboltanum eins mikið og ég get. Ég mun gefa mína sýn og hugsanir um þetta þegar ég tel það viðeigandi, en ég mun reyna að einbeita mér að fótboltanum eins mikið og mögulegt er,“ sagði Knight. „Það er augljóslega mikið rætt og með réttu um þær aðstæður sem við erum í. Við munum reyna að fara yfir þennan leik fljótt og við munum ræða það sem er framundan, leikina gegn Ísrael, og við höldum áfram þaðan. Þetta er augljóslega meira sviðsljós og ekki einblínt á fótboltann sjálfan. Þetta er mjög, mjög óvenjulegt og enginn okkar hefur lent í svona aðstæðum áður svo við erum líka að læra jafnóðum. Þannig að við munum ræða saman sem hópur og sjá hver er besta leiðin fram á við,“ sagði Knight.
Þjóðadeild karla í fótbolta Heimir Hallgrímsson þjálfar landslið Írlands Mest lesið Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Fótbolti Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Fótbolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Fótbolti Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Fótbolti Gómuð við gróft svindl í Berlín Sport Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Íslenski boltinn Bakgarðsáskorunin: Leitast eftir óprenthæfri hvatningu Sport Uppgjörið: Færeyjar - Ísland 0 - 2 | Umspilssæti Íslendinga staðreynd Fótbolti Fleiri fréttir Leggur skóna á hilluna Andar léttar: Skilorðsbundið bann fyrir njósnirnar Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Upp um eitt sæti á heimslistanum Rekinn frá Tyrkjum Arteta framlengir við Arsenal Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Dregið á föstudag: Sjáðu mörk og fögnuð ungu strákanna okkar Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Kveðjubréf frá Kidda Steindórs Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Fékk að fara á fyrstu A-landsliðsæfinguna á afmælisdaginn Fagnar stiginu: „Ég var að fíla Eistana“ „Bara lét okkur heyra það í hálfleik“ „Svo lengi sem ég get hlaupið vil ég spila fyrir Ísland“ „Hefðum tapað ef Hákon væri ekki í markinu“ „Það sem svíður mest“ Uppgjörið: Eistland - Ísland 0-0 | Markalaust en strákarnir á toppnum Einkunnir Íslands: Takmörkuð gæði í Tallinn Ronaldo segir þjálfarann hafa svikið sig Unnu stórsigur og komu Íslandi í umspil Króatía - Spánn 2-1 | Varamaðurinn bjargaði sigri fyrir Spán Kane með tvennu í öruggum sigri Byrjunarlið Íslands: Fimm breytingar og Gylfi inn Uppgjörið: Færeyjar - Ísland 0 - 2 | Umspilssæti Íslendinga staðreynd Leikdagur í Tallinn: Hitað upp á Íslandstorgi fyrir mikilvægan leik Skrýtinn leiktími og leikmenn því ekki með fulla stjórn Af hverju er svona mikilvægt að vinna riðilinn? Sjá meira