Mattías Kjeld valdi KR Aron Guðmundsson skrifar 25. september 2026 11:09 Mattías og Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR, handsala samninginn. Mynd:KR Mattías Kjeld hefur skrifað undir þriggja ára samning við Bestu deildar lið KR og gengur í raðir félagsins frá Gróttu eftir að hafa heillað í Lengjudeildinni á nýafstöðnu tímabili.
KR greinir frá þessu í færslu á samfélagsmiðlum í dag en hinn 17 ára gamli Mattías skoraði tíu mörk í Lengjudeildinni og var valinn efnilegasti leikmaður deildarinnar. Vitað er að fleiri lið úr Bestu deildinni voru á höttunum eftir Mattíasi sem hefur leikið 11 leiki fyrir yngri landslið Íslands. Mattías stoppaði stutt við hjá Gróttu en hann gekk í raðir félagsins frá Val fyrir tímabilið. Mattías er uppalinn hjá Val og lék á Hlíðarenda upp alla yngri flokkanna. Mattías kveður Gróttu í tilkynningu á Facebook-síðu félagsins og segir: „Mér var tekið vel frá fyrsta degi og félagið hefur hjálpað mér mikið í minni þróun sem leikmaður. Ég vil þakka Rúnari, Paul og strákunum í liðinu fyrir frábært tímabil. Grótta mun alltaf eiga sérstakan stað í mínu hjarta og ég mun spenntur fylgjast með félaginu og styðja við bakið á þeim í framtíðinni. Takk fyrir mig Grótta.“ Arnar Axelsson, yfirmaður knattspyrnumála hjá Gróttu, segir jafnframt: „Saga Mattíasar með Gróttu er skýrt dæmi um það sem félagið stendur fyrir. Hér fá ungir leikmenn tækifæri til að blómstra, þróast og taka næsta skref. Mattías kom til okkar í mars og nýtti umhverfið svo sannarlega til hins ýtrasta. Við erum stolt af því að hafa fengið að vera hluti af hans vegferð og sjá hann vaxa sem knattspyrnumann og einstakling. Hann bætist í stóran hóp leikmanna úr okkar röðum sem hafa verið valdir efnilegastir í deildinni undanfarin ár. Þetta endurspeglar þá stefnu sem Grótta hefur markað. Við óskum Mattíasi alls hins besta á nýjum stað og hlökkum til að fylgjast með honum halda áfram að vaxa.“
Íslenski boltinn Besta deild karla KR Lengjudeild karla Grótta Valur Mest lesið Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Fótbolti Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Fótbolti Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Fótbolti Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Fótbolti Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Íslenski boltinn Gómuð við gróft svindl í Berlín Sport Bakgarðsáskorunin: Leitast eftir óprenthæfri hvatningu Sport Dregið á föstudag: Sjáðu mörk og fögnuð ungu strákanna okkar Fótbolti Uppgjörið: Færeyjar - Ísland 0 - 2 | Umspilssæti Íslendinga staðreynd Fótbolti Einkunnir Íslands: Takmörkuð gæði í Tallinn Fótbolti Fleiri fréttir Kveðjubréf frá Kidda Steindórs Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Fékk að fara á fyrstu A-landsliðsæfinguna á afmælisdaginn Stóri munurinn á feigum og ófeigum: „Hvað er planið?“ Mikið sem þarf að hugsa um áður en fyrirkomulagi Íslandsmótsins sé breytt Selfoss missir mikið efni Ákvörðun Vals algjörlega galin og það sýnir sig núna Sjáðu fernu Niu og þrennu Ásu í ótrúlegum leik „Við erum alltaf að fara að taka þetta“ Breiðablik - Þróttur 5-4 | Ótrúleg endurkoma meistaranna FH - ÍBV 5-0 | Stórsigur FH sem lagaði markatöluna Sjáðu mörkin sem felldu Víking og Val Uppgjörið: Fram - Valur 1-2 | Valskonur fallnar í fyrsta sinn ,,Mikið í gangi í hausnum núna” „Sorglegt fyrir íslenskan fótbolta“ Uppgjörið: Víkingur R - Þór/KA 0-2 | Björguðu sér og sendu bæði Víking og Val niður um deild Sveppi og mamma hans gætu séð tvö lið falla Enn er penninn á lofti í Laugardal Fékk engar skýringar á mestu vonbrigðum ferilsins Sjáðu þrennu sextán ára Bríetar og hægasta sigurmark ársins Segir skipulagið fáránlegt: „Ekki sanngjarnt að annað liðið sé alltaf að elta“ Bríet Fjóla Bjarnadóttir: „Ég varð að klára þetta með þrennu “ Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - FH 3-2 | Áfall fyrir titilbaráttu FH Uppgjörið: Þróttur R. - Stjarnan 5-1 | Bríet Fjóla með þrennu í stórsigri Þróttar Sorgarferli að sættast við ónýtan skrokk „Þetta er þorpið manns“ Uppgjörið: ÍBV - Breiðablik 1-2 | Blikar verma toppinn Þrjú lið berjast um eitt öruggt sæti en Fram bjargaði sér „Enginn annar sem hafði trú á okkur en við sjálf“ Valur - Víkingur R. 1-1 | Valur enn á lífi Sjá meira