Danir litlir í sér: „Sitja hér tólf súrir menn“ Aron Guðmundsson skrifar 24. september 2026 09:01 Stale Solbakken sló á létta strengi á blaðamannafundi, þó ekki þessum hér sem hann sat í Dallas á meðan að HM í fótbolta stóð yfir í sumar. Vísir/Getty Stale Solbakken, landsliðsþjálfari Noregs, hæddist að dönsku pressunni á blaðamannafundi í gær fyrir grannslag Noregs og Danmerkur í Þjóðadeild UEFA í kvöld.
Liðin mætast á Ulleval, heimavelli norska landsliðsins, í A-deild Þjóðadeildarinnar og það eru Norðmennirnir, aldrei þessu vant, sem eru taldir sigurstranglegri í leiknum. Með Erling Haaland og Martin Ödegaard í fararbroddi stóð norska landsliðið sig vel á HM í sumar á meðan Danir sátu heima. Solbakken nýtti tækifærið í gær á blaðamannafundi til þess að skjóta á dönsku pressuna sem honum fannst vera lítil í sér fyrir komandi grannaslag. „Það er sorglegt að sjá alla dönsku kollega mína skríða inn í blaðamannaherbergið hér og dýrka norska liðið sem þið hafið slátrað áratug eftir áratug. Svo sitja hér tólf súrir menn sem vilja að ég slátri mínu öðru föðurlandi,“ sagði Solbakken. Solbakken hefur í gegnum tíðina kallað Danmörku sitt annað föðurland. Sonur hans spilar með AGF þar í landi og dóttir hans býr í Kaupmannahöfn. Sjálfur spilaði og þjálfaði Solbakken í Danmörku á sínum tíma, gerði FC Kaupmannahöfn meðal annars átta sinnum að dönskum meisturum og í fjórgang varð liðið bikarmeistari undir hans stjórn. Grannaslagur Noregs og Danmerkur í A-deild Þjóðadeildar UEFA verður sýndur í beinni útsendingu á Sýn Sport Viaplay og hefst klukkan korter í sjö.
Þjóðadeild karla í fótbolta Fótbolti Mest lesið Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Fótbolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Fótbolti Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Fótbolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Fótbolti Gómuð við gróft svindl í Berlín Sport Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Íslenski boltinn Bakgarðsáskorunin: Leitast eftir óprenthæfri hvatningu Sport Dregið á föstudag: Sjáðu mörk og fögnuð ungu strákanna okkar Fótbolti Fleiri fréttir Andar léttar: Skilorðsbundið bann fyrir njósnirnar Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Upp um eitt sæti á heimslistanum Rekinn frá Tyrkjum Arteta framlengir við Arsenal Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Dregið á föstudag: Sjáðu mörk og fögnuð ungu strákanna okkar Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Kveðjubréf frá Kidda Steindórs Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Fékk að fara á fyrstu A-landsliðsæfinguna á afmælisdaginn Fagnar stiginu: „Ég var að fíla Eistana“ „Bara lét okkur heyra það í hálfleik“ „Svo lengi sem ég get hlaupið vil ég spila fyrir Ísland“ „Hefðum tapað ef Hákon væri ekki í markinu“ „Það sem svíður mest“ Uppgjörið: Eistland - Ísland 0-0 | Markalaust en strákarnir á toppnum Einkunnir Íslands: Takmörkuð gæði í Tallinn Ronaldo segir þjálfarann hafa svikið sig Unnu stórsigur og komu Íslandi í umspil Króatía - Spánn 2-1 | Varamaðurinn bjargaði sigri fyrir Spán Kane með tvennu í öruggum sigri Byrjunarlið Íslands: Fimm breytingar og Gylfi inn Uppgjörið: Færeyjar - Ísland 0 - 2 | Umspilssæti Íslendinga staðreynd Leikdagur í Tallinn: Hitað upp á Íslandstorgi fyrir mikilvægan leik Skrýtinn leiktími og leikmenn því ekki með fulla stjórn Af hverju er svona mikilvægt að vinna riðilinn? Utan vallar: Sögufræg vinátta lögð til hliðar í stutta stund með ógn úr austri til staðar Sjá meira