Ætla að refsa sigursælasta liði Póllands Aron Guðmundsson skrifar 23. september 2026 12:31 Þórdís Elva í leik með Breiðabliki Vísir/Guðmundur Þórlaugarson Þórdís Elva Ágústsdóttir, leikmaður Breiðabliks, er kokhraust fyrir komandi Evrópuleik liðsins gegn pólsku meisturunum í liði Czarni Sosnowiec í Evrópubikarnum í dag. Ekki sé tilefni til að stíga af bensíngjöfinni núna. „
Við erum bara klárar fyrir þennan slag sem við erum að fara í,“ segir Þórdís Elva í samtali við Vísi. Pólska liðið vant því að vinna titla, er það sigursælasta þar í landi, en það hræðir ekki. „Það er bara sama hér. Blikar eru vanir því að vinna titla. við vitum hvað við getum gert og við ætlum bara að halda í okkar leik. Við ætlum að halda áfram að byggja ofan á það sem við erum búin að vera að gera. Það er búið að ganga vel og við erum ekkert að fara að stíga af bensíngjöfinni núna.“ Klippa: Fá pólsku meistarana í heimsókn í dag Hvað þarf að ganga upp hjá ykkur til þess að sigla heim sigri hér á heimavelli? „Við þurfum bara að vera klókar og lesa leikinn vel í byrjun og sjá hvernig þær ætla að stilla sér upp. En svo þurfum við bara að halda áfram að gera það sem við erum góðar í að gera, refsa liðum þegar við erum að vinna boltann hátt á vellinum. Við erum bara ógeðslega góðar í því þegar við gerum það vel. Lið Breiðabliks nýtur þess að taka þátt í svona Evrópukeppni. Útsláttarkeppni frá upphafi til enda. „Það er mjög gaman að fá svona leiki inn á milli. Við erum að hoppa úr leik í deild og beint í Evrópuleik og fáum svo leik í Vestmannaeyjum á laugardag. Þetta er bara ævintýri og skemmtilegt. Maður þarf alveg að kúpla sig inn og út á milli keppna og þetta er bara eins og þetta á að vera, nóg af leikjum og stutt á milli.“ Viðtalið við Þórdísi Elvu má sjá í heild sinni í spilaranum hér ofar í fréttinni. Leikur Breiðabliks og Czarni Sosnowiec hefst klukkan fjögur í dag og verður sýndur í beinni útsendingu á Sýn Sport Ísland.
Evrópubikar kvenna í fótbolta Breiðablik Íslenski boltinn Fótbolti Besta deild kvenna Mest lesið Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Fótbolti Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Fótbolti Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Fótbolti Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Fótbolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Gómuð við gróft svindl í Berlín Sport Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Íslenski boltinn Bakgarðsáskorunin: Leitast eftir óprenthæfri hvatningu Sport Dregið á föstudag: Sjáðu mörk og fögnuð ungu strákanna okkar Fótbolti Uppgjörið: Færeyjar - Ísland 0 - 2 | Umspilssæti Íslendinga staðreynd Fótbolti Fleiri fréttir Kveðjubréf frá Kidda Steindórs Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Fékk að fara á fyrstu A-landsliðsæfinguna á afmælisdaginn Stóri munurinn á feigum og ófeigum: „Hvað er planið?“ Mikið sem þarf að hugsa um áður en fyrirkomulagi Íslandsmótsins sé breytt Selfoss missir mikið efni Ákvörðun Vals algjörlega galin og það sýnir sig núna Sjáðu fernu Niu og þrennu Ásu í ótrúlegum leik „Við erum alltaf að fara að taka þetta“ Breiðablik - Þróttur 5-4 | Ótrúleg endurkoma meistaranna FH - ÍBV 5-0 | Stórsigur FH sem lagaði markatöluna Sjáðu mörkin sem felldu Víking og Val Uppgjörið: Fram - Valur 1-2 | Valskonur fallnar í fyrsta sinn ,,Mikið í gangi í hausnum núna” „Sorglegt fyrir íslenskan fótbolta“ Uppgjörið: Víkingur R - Þór/KA 0-2 | Björguðu sér og sendu bæði Víking og Val niður um deild Sveppi og mamma hans gætu séð tvö lið falla Enn er penninn á lofti í Laugardal Fékk engar skýringar á mestu vonbrigðum ferilsins Sjáðu þrennu sextán ára Bríetar og hægasta sigurmark ársins Segir skipulagið fáránlegt: „Ekki sanngjarnt að annað liðið sé alltaf að elta“ Bríet Fjóla Bjarnadóttir: „Ég varð að klára þetta með þrennu “ Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - FH 3-2 | Áfall fyrir titilbaráttu FH Uppgjörið: Þróttur R. - Stjarnan 5-1 | Bríet Fjóla með þrennu í stórsigri Þróttar Sorgarferli að sættast við ónýtan skrokk „Þetta er þorpið manns“ Uppgjörið: ÍBV - Breiðablik 1-2 | Blikar verma toppinn Þrjú lið berjast um eitt öruggt sæti en Fram bjargaði sér „Enginn annar sem hafði trú á okkur en við sjálf“ Valur - Víkingur R. 1-1 | Valur enn á lífi Sjá meira