Bjarki Steinn fótbrotinn og verður ekki með Valur Páll Eiríksson skrifar 22. september 2026 14:58 Bjarki Steinn var með landsliðshópnum í hádegismat í dag þrátt fyrir að hann verði ekki með liðinu í komandi verkefni vegna meiðsla. vísir / bjarni Bjarki Steinn Bjarkason var á hækjum á hóteli karlalandsliðsins í fótbolta í dag og tók ekki þátt á æfingu liðsins í morgun. Hann braut bein í fæti um helgina.
Þrátt fyrir að hafa orðið fyrir meiðslunum í leik með Südtirol í ítölsku B-deildinni um helgina kom Bjarki Steinn engu að síður hingað til lands með öðrum í landsliðinu og fór í frekari myndatöku hér heima. Hann verður líklega frá í um tíu vikur vegna meiðslanna og mun því engan þátt taka í komandi landsleikjum Íslands við Eistland (tvisvar), Lúxemborg og Búlgaríu. Bjarki Steinn er 26 ára bakvörður sem á að baki sjö landsleiki. Ekki hefur verið ákveðið hvort annar leikmaður verði kallaður upp í stað Bjarka Steins að svo stöddu. Guðlaugur Victor Pálsson verður að líkindum í hægri bakverðinum gegn Eistlandi á laugardaginn kemur á Laugardalsvelli. Mikael Egill Ellertsson og Mikael Neville Anderson geta leyst stöðuna en eru betri annars staðar. Ákveði þjálfarateymið að kalla mann í stað Bjarka Steins í hópinn eru Dagur Dan Þórhallsson, Alfons Sampsted og Valgeir Lunddal Friðriksson menn sem hafa verið í undanförnum hópum. Ísland mætir Eistlandi á laugardaginn kemur, 26. september klukkan 16:00. Leikurinn verður sýndur beint á Sýn Sport, líkt og allir leikir landsliðsins í Þjóðadeildinni.
Landslið karla í fótbolta Þjóðadeild karla í fótbolta Mest lesið Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Fótbolti Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Fótbolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Fótbolti Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Fótbolti Gómuð við gróft svindl í Berlín Sport Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Íslenski boltinn Bakgarðsáskorunin: Leitast eftir óprenthæfri hvatningu Sport Uppgjörið: Færeyjar - Ísland 0 - 2 | Umspilssæti Íslendinga staðreynd Fótbolti Fleiri fréttir Leggur skóna á hilluna Andar léttar: Skilorðsbundið bann fyrir njósnirnar Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Upp um eitt sæti á heimslistanum Rekinn frá Tyrkjum Arteta framlengir við Arsenal Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Dregið á föstudag: Sjáðu mörk og fögnuð ungu strákanna okkar Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Kveðjubréf frá Kidda Steindórs Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Fékk að fara á fyrstu A-landsliðsæfinguna á afmælisdaginn Fagnar stiginu: „Ég var að fíla Eistana“ „Bara lét okkur heyra það í hálfleik“ „Svo lengi sem ég get hlaupið vil ég spila fyrir Ísland“ „Hefðum tapað ef Hákon væri ekki í markinu“ „Það sem svíður mest“ Uppgjörið: Eistland - Ísland 0-0 | Markalaust en strákarnir á toppnum Einkunnir Íslands: Takmörkuð gæði í Tallinn Ronaldo segir þjálfarann hafa svikið sig Unnu stórsigur og komu Íslandi í umspil Króatía - Spánn 2-1 | Varamaðurinn bjargaði sigri fyrir Spán Kane með tvennu í öruggum sigri Byrjunarlið Íslands: Fimm breytingar og Gylfi inn Uppgjörið: Færeyjar - Ísland 0 - 2 | Umspilssæti Íslendinga staðreynd Leikdagur í Tallinn: Hitað upp á Íslandstorgi fyrir mikilvægan leik Skrýtinn leiktími og leikmenn því ekki með fulla stjórn Af hverju er svona mikilvægt að vinna riðilinn? Sjá meira