Blikakonur með í tölvuleik og brjóta blað Sindri Sverrisson skrifar 20. september 2026 09:00 Íslandsmeistarar Breiðabliks geta þóst vera þær sjálfar í FC 27. vísir/Guðmundur Á meðal nýrra liða sem hægt er að velja í nýjustu útgáfu FC-tölvuleiksins, vinsælasta fótboltatölvuleiks heims, eru núverandi Íslandsmeistarar kvenna, Blikakonur.
Blikakonur brjóta þar með blað sem fyrsta íslenska félagsliðið í leiknum en áður hefur verið hægt að spila sem íslensku landsliðin. Karlalandsliðið var fyrst með fyrir níu árum og EA Sports, framleiðandi leiksins, tók svo íslenska kvennalandsliðið fyrst inn fyrir fjórum árum. Agla María Albertsdóttir er besti leikmaður Blikaliðsins í tölvuleiknum, með 72 í heildareinkunn. Hún er ein af fimm leikmönnum Breiðabliks sem flokkast í silfurflokk en hinir fjórtán leikmenn liðsins í leiknum eru bronsleikmenn. Elísa Viðarsdóttir og Berglind Björg Þorvaldsdóttir eru með 70 í einkunn en Berglind hefur reyndar ekkert spilað á árinu vegna barneignaorlofs sem Barbára Sól Gísladóttir, með 69 í einkunn, er einnig komin í. Kristín Dís Árnadóttir er svo fimmti silfurleikmaðurinn, með 65 í einkunn. Glódís best og Sveindís ógnarhröð Ef horft er til allra íslensku leikmannanna í leiknum þá eru fimm íslenskir „gullleikmenn“, þar af þrjár konur og tveir karlar. Glódís Perla Viggósdóttir, fyrirliði Bayern og landsliðsins, er með hæstu einkunn Íslendinganna eða 84. Sveindís Jane Jónsdóttir kemur fast á hæla hennar með 83 í einkunn og hún er skráð með 92 í hraða. Sjö knattspyrnukonur í heiminum þykja (örlítið) fljótari en Sveindís, þar af tvær evrópskar en það eru hin pólska Ewa Pajor og hin spænska Salma Paralluelo. Hákon Arnar Haraldsson er með 78 í einkunn, Albert Guðmundsson 77 og Sandra María Jessen er svo með 76 í einkunn. Hægt er að skoða alla íslensku leikmennina með því að smella hér.
Breiðablik Besta deild kvenna Mest lesið Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Fótbolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Fótbolti Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Fótbolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Fótbolti Gómuð við gróft svindl í Berlín Sport Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Íslenski boltinn Bakgarðsáskorunin: Leitast eftir óprenthæfri hvatningu Sport Dregið á föstudag: Sjáðu mörk og fögnuð ungu strákanna okkar Fótbolti Fleiri fréttir Kveðjubréf frá Kidda Steindórs Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Fékk að fara á fyrstu A-landsliðsæfinguna á afmælisdaginn Stóri munurinn á feigum og ófeigum: „Hvað er planið?“ Mikið sem þarf að hugsa um áður en fyrirkomulagi Íslandsmótsins sé breytt Selfoss missir mikið efni Ákvörðun Vals algjörlega galin og það sýnir sig núna Sjáðu fernu Niu og þrennu Ásu í ótrúlegum leik „Við erum alltaf að fara að taka þetta“ Breiðablik - Þróttur 5-4 | Ótrúleg endurkoma meistaranna FH - ÍBV 5-0 | Stórsigur FH sem lagaði markatöluna Sjáðu mörkin sem felldu Víking og Val Uppgjörið: Fram - Valur 1-2 | Valskonur fallnar í fyrsta sinn ,,Mikið í gangi í hausnum núna” „Sorglegt fyrir íslenskan fótbolta“ Uppgjörið: Víkingur R - Þór/KA 0-2 | Björguðu sér og sendu bæði Víking og Val niður um deild Sveppi og mamma hans gætu séð tvö lið falla Enn er penninn á lofti í Laugardal Fékk engar skýringar á mestu vonbrigðum ferilsins Sjáðu þrennu sextán ára Bríetar og hægasta sigurmark ársins Segir skipulagið fáránlegt: „Ekki sanngjarnt að annað liðið sé alltaf að elta“ Bríet Fjóla Bjarnadóttir: „Ég varð að klára þetta með þrennu “ Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - FH 3-2 | Áfall fyrir titilbaráttu FH Uppgjörið: Þróttur R. - Stjarnan 5-1 | Bríet Fjóla með þrennu í stórsigri Þróttar Sorgarferli að sættast við ónýtan skrokk „Þetta er þorpið manns“ Uppgjörið: ÍBV - Breiðablik 1-2 | Blikar verma toppinn Þrjú lið berjast um eitt öruggt sæti en Fram bjargaði sér „Enginn annar sem hafði trú á okkur en við sjálf“ Valur - Víkingur R. 1-1 | Valur enn á lífi Sjá meira