„Ég hef ekki séð svona áður hjá neinum leikmanni“ Sindri Sverrisson skrifar 20. september 2026 08:03 Gylfi Þór Sigurðsson fékk dóttur sína í fangið þegar hann fagnaði Íslandsmeistaratitlinum í Vesturbænum í gær. vísir/Anton Sölvi Geir Ottesen segist aldrei á sínum ferli, hvorki sem leikmaður né þjálfari, hafa séð nokkurn fótboltamann sinna sínu starfi af viðlíka fagmennsku og Gylfi Þór Sigurðsson. Það auðveldi honum mjög starfið sem þjálfari Íslandsmeistara Víkings.
Sölvi hefur nú gert Víkinga að Íslandsmeisturum bæði árin sín sem aðalþjálfari, eftir 2-1 sigurinn gegn KR í gær, og er þetta í annað sinn sem Víkingur nær að verja Íslandsmeistaratitil í fótbolta. Bæði þessi ár hefur Gylfi Þór Sigurðsson verið í stóru hlutverki, eftir komuna frá Val, en Sölvi segir Gylfa ekki bara frábæran leikmann heldur hafi hann frábær áhrif á alla leikmenn Víkingsliðsins. „Þetta er algjör sigurvegari. Hann gerir allt sem hann getur til að vera eins klár og mögulegt er. Ég hef ekki séð svona áður hjá neinum leikmanni sem ég hef spilað með eða þjálfað,“ sagði Sölvi í viðtali á Sýn Sport í gær. Klippa: Ítarlegt viðtal við Sölva eftir annan Íslandsmeistaratitil „Hann leiðir með góðu fordæmi, hvernig hann fer inn í allar tæklingar, gefur aldrei tommu eftir, drífur liðið áfram og hvetur menn, öskrar ef það þarf að kveikja á þeim, gerir allt sem þarf til að vinna leikinn. Fyrir utan völlinn eyðir hann svo mörgum klukkustundum á dag í að undirbúa sig fyrir æfingu, jafna sig eftir æfingu, og hugsar rosalega vel um sig,“ sagði Sölvi og nefndi dæmi um þær aðferðir sem Gylfi notar til þess að geta spilað 90 mínútur, leik eftir leik, þrátt fyrir mikil ferðalög og þétta dagskrá. „Það er svo þægilegt fyrir þjálfara að hafa svona leiðtoga inni í hópnum. Ég þarf ekkert að segja strákunum hvernig á að gera hlutina. Það er gæi hérna sem er að sýna þeim það. Þeir vilja vera góðir í fótbolta, vilja bæta sig, og þeir eru með fokking Gylfa Sig fyrir framan sig. „Ókei, ég geri þá eins og hann.“ Svo það er mjög auðvelt fyrir mig. Þeir sjá hvernig á að gera þetta. Ef þú vilt ná langt í íþróttum þarftu að hugsa vel um þig og gera alla þessa litlu hluti,“ sagði Sölvi. Gylfi gefur aldrei tommu eftir og er hin fullkomna fyrirmynd fyrir aðra leikmenn Víkingsliðsins, segir Sölvi Geir.vísir/Anton Víkingar náðu stóra markmiðinu sínu, að verja Íslandsmeistaratitilinn, en þeim gremst að hafa ekki náð að komast aftur í aðalkeppni Sambandsdeildar Evrópu. Óhætt er að segja að þeir hafi verið óheppnir með mótherja sem þeir drógust gegn í sumar en Sölvi segir einnig ljóst að það hái Víkingum að hafa ekki yfir sömu fjármunum að ráða og erlendir keppinautar, til að mynda til að geta notað leiguflug á milli leikja. Rándýr leiguflug myndu hjálpa mikið til „Evrópuleikirnir voru virkilega svekkjandi. Ég get talað um það núna. Við vorum óheppnir með drætti því við vorum „seedaðir“ [flokkur hærri skrifaðra liða] en okkur leið eins og við værum „unseeded“, en ég er virkilega stoltur af fullt af flottum leikjum sem við áttum. Við klikkuðum á lokaprófinu og það var mjög svekkjandi en mér fannst strákarnir bara henda því á bakvið sig og halda áfram. Við áttum stórt markmið eftir, Íslandsmeistaratitilinn, og það er stærsta markmiðið okkar. Virkilega sáttur að hafa klárað það,“ sagði Sölvi áður en talið barst að því hvað gæti bætt samkeppnisstöðu Víkinga í Evrópu: „Einn stærsti þátturinn er endurheimtin. Önnur lið geta tekið leiguflug á milli leikja og komist heim fljótlega eftir leiki. Þau eru með kæliboxin og fullt af sjúkraþjálfurum, til að gera leikmenn tilbúna í næsta verkefni. Kostnaðurinn við að taka leiguflug er tvöfaldur fyrir Íslendinga. Við höfum reynt að fjölga í sjúkrateyminu okkar, fá oftar hendur á milli leikja, og fengið aðstoð hjá Greenfit líka til að komast í súrefnisklefana. Reynt að finna lausnir á þessu. En þetta er stór partur af þessu, þegar þú þarft að taka tvö flug, vakna fimm um nóttina, bíða á flugvelli og allt þetta, þá fer dýrmætur tími sem annars myndi nýtast í endurheimt og eitthvað betra. Við reynum að gera betur en það vantar kannski pening til þess,“ sagði Sölvi.
Besta deild karla Víkingur Reykjavík Tengdar fréttir Hvar er reiði Sölvi? „Þarf mjög mikið til að fá mig til að missa kúlið“ Sölvi Geir Ottesen hefur nú gert Víkinga að Íslandsmeisturum fyrstu tvö ár sín í starfi sem aðalþjálfari. Í öllum látunum í Vesturbænum í dag, þar sem Sölvi missti tvo leikmenn og tvo aðstoðarmenn í burtu með rautt spjald, virtist enginn rólegri en skipstjórinn sjálfur sem sigldi skútunni af öryggi í höfn. 19. september 2026 17:37 „Er þetta ekki ástæðan fyrir því að menn borga sig inn?“ Aron Elís Þrándarson fagnaði vel sigri Víkings á KR á Meistaravöllum í Bestu deild karla í fótbolta í dag. Sigurinn tryggði Víkingum Íslandsmeistaratitilinn annað árið í röð. 19. september 2026 17:55 Læti í göngunum eftir leik Upp úr sauð milli starfsmanna KR og Víkings auk leikmanna eftir leik liðanna á Meistaravöllum í Vesturbæ Reykjavíkur í dag. 19. september 2026 17:08 Uppgjörið: KR - Víkingur R. 1-2 | Fimm rauð og Víkingar meistarar Víkingur er Íslandsmeistari karla í fótbolta annað árið í röð eftir 2-1 sigur á KR að Meistaravöllum í skrautlegum leik í Bestu deild karla. Fimm rauð spjöld fóru á loft. 19. september 2026 17:00 „Hef engan smekk fyrir því hvernig þeir haga sér“ Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR, var svekktur eftir tap liðsins fyrir Víkingi í Bestu deild karla í fótbolta í dag. Víkingar unnu leikinn 2-1 og tryggðu sér þannig Íslandsmeistaratitilinn á Meistaravöllum. 19. september 2026 17:39 Mest lesið Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Fótbolti Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Fótbolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Fótbolti Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Fótbolti Gómuð við gróft svindl í Berlín Sport Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Íslenski boltinn Bakgarðsáskorunin: Leitast eftir óprenthæfri hvatningu Sport Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Dregið á föstudag: Sjáðu mörk og fögnuð ungu strákanna okkar Fótbolti Fleiri fréttir Kveðjubréf frá Kidda Steindórs Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Fékk að fara á fyrstu A-landsliðsæfinguna á afmælisdaginn Stóri munurinn á feigum og ófeigum: „Hvað er planið?“ Mikið sem þarf að hugsa um áður en fyrirkomulagi Íslandsmótsins sé breytt Selfoss missir mikið efni Ákvörðun Vals algjörlega galin og það sýnir sig núna Sjáðu fernu Niu og þrennu Ásu í ótrúlegum leik „Við erum alltaf að fara að taka þetta“ Breiðablik - Þróttur 5-4 | Ótrúleg endurkoma meistaranna FH - ÍBV 5-0 | Stórsigur FH sem lagaði markatöluna Sjáðu mörkin sem felldu Víking og Val Uppgjörið: Fram - Valur 1-2 | Valskonur fallnar í fyrsta sinn ,,Mikið í gangi í hausnum núna” „Sorglegt fyrir íslenskan fótbolta“ Uppgjörið: Víkingur R - Þór/KA 0-2 | Björguðu sér og sendu bæði Víking og Val niður um deild Sveppi og mamma hans gætu séð tvö lið falla Enn er penninn á lofti í Laugardal Fékk engar skýringar á mestu vonbrigðum ferilsins Sjáðu þrennu sextán ára Bríetar og hægasta sigurmark ársins Segir skipulagið fáránlegt: „Ekki sanngjarnt að annað liðið sé alltaf að elta“ Bríet Fjóla Bjarnadóttir: „Ég varð að klára þetta með þrennu “ Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - FH 3-2 | Áfall fyrir titilbaráttu FH Uppgjörið: Þróttur R. - Stjarnan 5-1 | Bríet Fjóla með þrennu í stórsigri Þróttar Sorgarferli að sættast við ónýtan skrokk „Þetta er þorpið manns“ Uppgjörið: ÍBV - Breiðablik 1-2 | Blikar verma toppinn Þrjú lið berjast um eitt öruggt sæti en Fram bjargaði sér „Enginn annar sem hafði trú á okkur en við sjálf“ Valur - Víkingur R. 1-1 | Valur enn á lífi Sjá meira
Hvar er reiði Sölvi? „Þarf mjög mikið til að fá mig til að missa kúlið“ Sölvi Geir Ottesen hefur nú gert Víkinga að Íslandsmeisturum fyrstu tvö ár sín í starfi sem aðalþjálfari. Í öllum látunum í Vesturbænum í dag, þar sem Sölvi missti tvo leikmenn og tvo aðstoðarmenn í burtu með rautt spjald, virtist enginn rólegri en skipstjórinn sjálfur sem sigldi skútunni af öryggi í höfn. 19. september 2026 17:37
„Er þetta ekki ástæðan fyrir því að menn borga sig inn?“ Aron Elís Þrándarson fagnaði vel sigri Víkings á KR á Meistaravöllum í Bestu deild karla í fótbolta í dag. Sigurinn tryggði Víkingum Íslandsmeistaratitilinn annað árið í röð. 19. september 2026 17:55
Læti í göngunum eftir leik Upp úr sauð milli starfsmanna KR og Víkings auk leikmanna eftir leik liðanna á Meistaravöllum í Vesturbæ Reykjavíkur í dag. 19. september 2026 17:08
Uppgjörið: KR - Víkingur R. 1-2 | Fimm rauð og Víkingar meistarar Víkingur er Íslandsmeistari karla í fótbolta annað árið í röð eftir 2-1 sigur á KR að Meistaravöllum í skrautlegum leik í Bestu deild karla. Fimm rauð spjöld fóru á loft. 19. september 2026 17:00
„Hef engan smekk fyrir því hvernig þeir haga sér“ Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR, var svekktur eftir tap liðsins fyrir Víkingi í Bestu deild karla í fótbolta í dag. Víkingar unnu leikinn 2-1 og tryggðu sér þannig Íslandsmeistaratitilinn á Meistaravöllum. 19. september 2026 17:39