Fasteignamarkaðurinn kólnar enn Telma Tómasson og Samúel Karl Ólason skrifa 17. september 2026 06:38 Íbúðaverð hefur áfram hækkað hóflega. Vísir/Vilhelm Fasteignamarkaðurinn kólnar enn og íbúðaverð hækkar áfram hóflega á milli mánaða. Þetta er mat fasteignasala og er greint frá í mánaðarskýrslu Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar (HMS). Þar segir að kaupsamningar um fyrstu fasteign hafi verið færri en síðustu ár, hlutdeild fyrstu kaupenda hafi þó verið há undanfarna mánuði sem áfram njóti í miklum mæli stuðnings frá nákomnum.
Auk þess hefur ásókn í hlutdeildarlán verið mikil undanfarna mánuði. Í skýrslu HMS kemur einnig fram að leiguverð hafi lækkað talsvert á milli mánaða, sem skýrist þó af því að leigumarkaðurinn litast af stúdentaíbúðum, og um sé að ræða hefðbundna árstíðasveiflu við upphaf skólaárs. Í tilkynningu frá HMS kemur einnig fram að bankarnir geri ráð fyrir frekari hækkun íbúðalánavaxta á næstu sex mánuðum, einkum vegna væntinga um hærri stýrivexti og aukinn fjármögnunarkostnað. Þetta mat er byggt á nýrri útlánakönnun Seðlabankans. Þar segir einnig að lánamarkaðurinn hafi þegar skilað stýrivaxtahækkun Seðlabankans frá því í ágúst út í breytilega óverðtryggða húsnæðislánavexti, þótt minni breytingar hafi orðið á föstum óverðtryggðum vöxtum. Þá ber byggingarmarkaðurinn áfram merki kólnunar með fækkun starfsfólks og minni íbúðafjárfestingu á milli ára. Í skýrslu HMS segir að velta í byggingu húsnæðis í maí og í júní hafi dregist lítillega saman að nafnvirði frá sama tíma í fyrra. Velta í mannvirkjagerð og sérhæfðri byggingarstarfsemi hafi á móti aukist talsvert á tímabilinu.
Fasteignamarkaður Húsnæðismál Mest lesið Wolt svarar fyrir tekjur sendlanna Viðskipti innlent Ekki lengur hægt að fá popp og kók í Smárabíói Viðskipti innlent Tengir stórframkvæmdir við framtíð lýðræðisins Viðskipti innlent Yfir þúsund hafa fært flug vegna yfirvofandi verkfalls Viðskipti Ekkert blabla: Íslenska vinnumarkaðsmódelið deyjandi Atvinnulíf Ekki nægilegt traust á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Spá aukinni verðbólgu: Eldsneyti hækkar um 17 prósent Viðskipti innlent Fasteignamarkaðurinn kólnar enn Viðskipti innlent Bensínlítrinn kosti 452 krónur fyrir eyðsluminni bíla Neytendur Treble tryggir tvo milljarða í fjármögnun Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tengir stórframkvæmdir við framtíð lýðræðisins Endurtakk-bræður opna verslun í Hlemmur.haus Wolt svarar fyrir tekjur sendlanna Starfsleyfi Samherja til fiskþurrkunar að Laugum fellt úr gildi Ekki lengur hægt að fá popp og kók í Smárabíói Einar Þór nýr framkvæmdastjóri Reykjafells Spá aukinni verðbólgu: Eldsneyti hækkar um 17 prósent Treble tryggir tvo milljarða í fjármögnun Ekki nægilegt traust á fasteignamarkaði Fasteignamarkaðurinn kólnar enn Wolt sendlar lögðu niður störf Bein útsending: Atvinnu- og framkvæmdaþing Reykjanesbæjar Gagnrýna tal um meðallaun upp á 1,4 milljónir Frá Wise til VÍS Danir lærðu sína lexíu en Íslendingar rífist enn Ósanngjarnt að lítil ferðaþjónustufyrirtæki beri tjón af verkföllum flugstétta Íhlutun vegna kaupa Ása á Öryggismiðstöð og Opnum kerfum nauðsynleg Ekkert verður af kaupum Heklu á Bílson Byggja eitt stærsta gagnaver Íslands á Bakka Tveir nýir sérfræðingar til Jónsbókar Tæplega 50 milljarða halli hins opinbera á öðrum fjórðungi Útlitið ekki allt of gott í kjaradeilu flugvirkja Enn hnútur hjá flugmönnum Icelandair Telur yfir milljarð á dag í húfi Einn tíundi fékkst upp í hundruð milljóna króna gjaldþrot veitingamanns Gengið aldrei verið lægra Hafa samband við farþega Flugvirkjar fara í verkfall Hart tekist á um fjárlögin: „Hvað er að þessu liði?“ Rjúfa þurfi vítahringinn með breyttu vinnumarkaðslíkani Sjá meira