Erlent

Rúss­neskt skip skaut blysum að danskri herþyrlu

Kjartan Kjartansson og Telma Tómasson skrifa
Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, um borð í danskri herþyrlu. Myndin tengist efni fréttarinnar ekki.
Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, um borð í danskri herþyrlu. Myndin tengist efni fréttarinnar ekki. Vísir/EPA

Tveimur blysum var skotið frá rússnesku skipi á danska herþyrlu sem var við reglulegt eftirlit í gær. Danska utanríkisráðuneytið hefur kallað rússneska sendiherrann á sinn fund vegna uppákomunnar.

Danska utanríkisráðuneytið hefur kallað rússneska sendiherrann á sinn fund eftir að tveimur neyðarblysum var skotið frá rússneskri freigátu að þyrlu danska flughersins sem var í reglubundnu flugi undan ströndum bæjarins Gedser.

Þyrluáhöfnin var í eftirlitsflugi nærri bænum Gedser á syðsta odda eyjunnar Falster í Eystrasalti og tók myndir af freigátunni sem var stödd á alþjóðlegu hafsvæði. 

Annað blysið er sagt hafa farið mjög nálægt þyrlunni í tilkynningu frá danska hernum. Lars Løkke Rasmussen, utanríkisráðherra, segir framferði rússnesku áhafnarinnar algerlega óásættanlegt. Því hafi hann kallað rússneska sendiherrann á teppið í dag.

„Þetta er hluti af mynstri sem við sjáum um alla Evrópu,“ sagði Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, um uppákomuna í morgun.

Sakaði hún Rússa um að reyna að ógna og ala á sundrung í Evrópu með blönduðum hernaði gegn álfunni. NATO-ríki þyrftu að þétta raðirnar og efla varnir sínar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×