Sport

Dag­skráin í dag: Manchester slagur og Besta deild karla

Andri Broddason skrifar
Manchester United tekur á móti nágrönnum sínum hjá Manchester City í stórlek dagsins í enska boltanum
Manchester United tekur á móti nágrönnum sínum hjá Manchester City í stórlek dagsins í enska boltanum Getty/Robbie Jay Barratt

Hágæða sunnudagur að renna í garð fyrir þá sem hafa áhuga á íþróttum. Besta deildin, enska úrvalsdeildin, golf, NFL og Formúla 1 er allt á boðstólnum í dag.

Fjórir leikir fara fram í Bestu deild karla í dag þar sem fyrstu leikir eftir skiptingu fara af stað. Leikirnir byrja allir á sama tíma og ætlar Subway messan að fara yfir allt það helsta sem gerist í leikjunum á meðan þeir eru í gangi.

Tveir leikir fara fram í ensku úrvalsdeildinni í dag þar sem dagurinn byrjar á leik Coventry og Brighton. Svo fáum við risaleik þar sem Manchester United tekur á móti Manchester City. Slagurinn um Manchester borgina er alltaf spennandi og heiðurinn um borgina er undir. Sunnudagsmessan fer svo yfir allt það helsta sem gerðist í leikjum helgarinnar.

Biðin er loksins á enda fyrir aðdáendur NFL-deildarinnar þar sem við fáum fyrsta NFL Red Zone tímabilsins. Einnig verða sýndir leikir Vikings gegn Packers og Bengals gegn Buccaneers.

Spænski kappaksturinn fer svo fram á glænýrri braut í Madríd þar sem Lando Norris mun byrja á ráspól og lokahringur Amgen Irish Open á DP World-mótaröðinni verður á dagskrá.

Sýn Sport

15.00 - Manchester United tekur á móti Manchester City í ensku úrvalsdeildinni.

17.35 - Sunnudagsmessan fer yfir allt það helsta sem gerðist í leikjum helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni.

Sýn Sport Viaplay

12.30 - Spænski kappaksturinn í Formúlu 1 

Sýn Sport 2

16.55 - Bengals taka á móti Buccaneers í NFL-deildinni.

20.20 - Vikings taka á móti Packers í NFL-deildinni.

Sýn Sport 3

16.55 - NFL Red Zone fer yfir allt það helsta úr leikjum NFL-deildarinnar

Sýn Sport 4

12.30 - Fjórðu hringur Amgen Irish Open mótsins á DP World-mótaröðinni í golfi hefur göngu sína

Sýn Sport Ísland

13.50 - Subway Messan fer yfir allt það helsta úr leikjum Bestu deildar karla í fótbolta.

Sýn Sport Ísland 2

13.45 - KR tekur á móti ÍA í Bestu deild karla í fótbolta.

Sýn Sport Ísland 3

13.50 - Stjarnan tekur á móti ÍBV í Bestu deild karla í fótbolta.

Sýn Sport Ísland 4

13.50 - FH tekur á móti KA í Bestu deikd karla í fótbolta.

Sýn Sport Ísland 5

13.50 - Valur tekur á móti Þór í Bestu deild karla í fótbolta.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×