Enski boltinn

Dag­skráin í dag: Einn leikur á sviðið út af fyrir sig

Aron Guðmundsson skrifar
Hollywood stjörnurnar Ryan Reynolds og Rob McElhenney eru eigendur Wrexham sem heimsækir Millwall í ensku B-deildinni í kvöld  
Hollywood stjörnurnar Ryan Reynolds og Rob McElhenney eru eigendur Wrexham sem heimsækir Millwall í ensku B-deildinni í kvöld   Vísir/Getty

Aðeins einn leikur er á dagskrá á sportrásum Sýn í kvöld. Hann er í ensku B-deildinni í fótbolta. 

Millwall tekur þar á móti Wrexham á heimavelli sínum The Den. 

Leikurinn er í fjórðu umferð ensku B-deildarinnar og hefst klukkan korter í sjö. 

Fyrir leikinn er Millwall í 6. sæti deildarinnar með 6 stig en Wrexham í 20.sæti með tvö stig og enn í leit að sínum fyrsta sigri.

Leikur liðanna verður sýndur í beinni útsendingu á Sýn Sport Viaplay. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×