Samkeppniseftirlitið eitt og sér Sigurjón Þórðarson skrifar 26. ágúst 2026 08:51 Á Íslandi ríkir víðtæk fákeppni á mörgum sviðum sem mikilvægt er að sporna gegn enda leiðir hún til hærra verðlags á vöru og þjónustu. Einn liður í því að standa vörð um samkeppni er að efla Samkeppniseftirlitið með það fyrir augum að stytta málsmeðferðartíma. Langur málsmeðferðartími getur orðið dýrkeyptur fyrir neytendur og minni fyrirtæki sem eiga í höggi við risa sem kunna að misbeita markaðsráðandi stöðu sinni. Það er vart hægt að ætlast til þess að Samkeppniseftirlitið eitt og sér ráði bót á ástandinu til hagsbóta fyrir neytendur en fleira þarf að koma til. Stjórnvöld þurfa almennt að líta til samkeppnissjónarmiða þegar teknar eru stjórnvaldsákvarðanir og við útgáfu reglugerða. Það á t.d. við um reglur um verðmyndun á sjávarfangi, reglur sem tryggja réttindi minni fyrirtækja gagnvart markaðsráðandi risum og ákvarðanir á sviði bygginga- og skipulagsmála svo eitthvað sé nefnt. Á Alþingi koma fram umsagnir frá hagsmunasamtökumm atvinnufyrirtækja og oftar en ekki er dreginn taumur fákeppni af þeim stóru innan SA á meðan samkeppnissjónarmið endurspeglast frekar í umsögnum frá Félagi atvinnurekenda. Í umræðu um stóru fasteignafélögin hefur mest borið á umfjöllun um útleigu á íbúðarhúsnæði. Flokkur fólksins hefur beitt sér fyrir að bæta réttindi leigjenda m.a. með lagasetningu um aukið gagnsæi og banni við að hækka leigu á tímabundum samningum á fyrsta ári samnings. þessar sjálfsögðu réttarbætur mættu harðri mótspyrnu varnarliðs sérhagsmuna á Alþingi. Styrkja stöðu minni fyrirtækja Það er tímabært að huga að því hvernig megi tryggja rétt minni fyrirtækja en skýrar reglur er t.d. að finna á Norðurlöndunum sem styrkja stöðu þeirra gagnvart fasteignafélögum m.a. um hækkun á leigu, gagnsæi, uppsögn og uppsagnafresti á leigusamningum og þátttöku í sameiginlegum rekstrarkostnaði ofl. Þætti. Árið 2020 kom út skýrsla sem gerð var að frumkvæði þáverandi ferðamála- og iðnaðarráðherra Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur sem fjallaði um hvernig mætti efla samkeppni m.a. í ferðaþjónustu og byggingariðnaði. Í skýrslunni segir berum orðum að rétt sé að sveitarfélögum sé gert að hafa samkeppnissjónarmið að leiðarljósi í skipulagslögum nr. 123/2010. Nú stendur fyrir dyrum fyrir dyrum heildarendurskoðun á skipulagslögum m.a. til einföldunar og tryggja skilvirkni við úthlutun á byggingarlóðum. Við fyrirhugaðar breytingar er ekki einungis nauðsynlegt að tryggja að þeir sem fái úthlutun á byggingarrétti sé gert að hefja framkvæmdir innan ákveðins tíma en að öðrum kosti skila inn lóðum heldur beina sjónum sveitarfélaga að því að horfa ekki síður til samkeppnissjónarmiða í skipulagsvinnu í samræmi við tilmæli í framangreindri OECD skýrslu. Ég treysti Ragnari Þór Ingólfssyni félagsmálaráðherra betur en öðrum til þess að hafa framangreind sjónarmið í forgrunni við þá vinnu sem framundan er. Höfundur er þingmaður Flokks fólksins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sigurjón Þórðarson Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson Skoðun Hóparnir þrír sem segja JÁ Rúnar Vilhjálmsson Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson Skoðun Trump á ekki að vera ástæðan Friðjón R. Friðjónsson Skoðun Ástkæra, ylhýra, orðljóta málið… mitt Íris Erlingsdóttir Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason Skoðun Óviss um ESB? Segðu nei Jón Ívar Einarsson Skoðun Skoðun Skoðun Danir, ESB og staða Íslands Finnur Torfi Magnússon skrifar Skoðun Hvað kostar „þetta reddast“ ? Guðríður Lára Þrastardóttir skrifar Skoðun Frá öllum til allra með nútímalegum sjúkratryggingum Sigurður H. Helgason skrifar Skoðun Tækifærið er núna Agnar H. Johnson skrifar Skoðun Einelti og samskiptahættir kvenna á Íslandi Vigdís Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Hlaupið er búið - en láttu það ekki stoppa þig Sigrún Elva Einarsdóttir skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir skrifar Skoðun Trump á ekki að vera ástæðan Friðjón R. Friðjónsson skrifar Skoðun Hvernig lækka vextir með upptöku evru? Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson skrifar Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Samkeppniseftirlitið eitt og sér Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land Logi Einarsson skrifar Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar Skoðun Skipulag sem má ekki borga sig! Íris Björk Hreinsdóttir skrifar Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson skrifar Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson skrifar Skoðun Ástkæra, ylhýra, orðljóta málið… mitt Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Eru 532 milljarðar minni tala en 245 milljarðar? Egill Almar Ágústsson skrifar Skoðun Lágir vextir og lágt vöruverð? Reynir Zoëga skrifar Skoðun Óviss um ESB? Segðu nei Jón Ívar Einarsson skrifar Skoðun Hóparnir þrír sem segja JÁ Rúnar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Segðu bara nei við sölumanninn Egill Gautason skrifar Skoðun Sagan endurtekur sig Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Viltu hætta á samsekt í þjóðarmorði eða stríðsrekstri fyrir hagnað annarra? Bergljót T. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Í krónuklóm Jón Bragi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Landsvirkjun, „Ísland allt“ og óvissan um ESB-aðild Þorgrímur Sigmundsson skrifar Sjá meira
Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar
Skoðun Viltu hætta á samsekt í þjóðarmorði eða stríðsrekstri fyrir hagnað annarra? Bergljót T. Gunnlaugsdóttir skrifar