„Við þurfum að gefa meira í þetta maður“ Árni Gísli Magnússon skrifar 15. ágúst 2026 20:14 Sigurður Höskuldsson, þjálfari Þórs Akureyri, var ekki sáttur með leikinn í kvöld. Vísir/Pawel Keflavík sótti 2-0 sigur gegn Þór á VÍS-vellinum á Akureyri í dag og situr Þór áfram á botni deildarinnar eftir 19 umferðir. Sigurður Höskuldsson, þjálfari Þórs, var langt frá því að vera sáttur við spilamennsku liðsins sem og baráttu og vilja sem honum fannst verulega ábótavant. „
Í fyrri hálfleik fannst mér svona jafnræði og við vorum svona yfir held ég meira en þeir en eins og við ræddum í hálfleik klárum við bara sóknirnar okkar mjög illa, við erum gæðalitlir á síðasta þriðjungi og tökum ekki nægilega góðar ákvarðanir. Það sem skilur liðin að í fyrri hálfleik er að þeir bara taka draumaskot fyrir utan teig, skot sem við erum bara ekki að taka, stöður sem við erum ekki að koma okkur í til þess að taka skot. Það er mikið áhyggjuefni hvað við erum ekki nægilega góðir á síðasta þriðjungi og kringum teiginn og erum ekki að skapa nógu mikið af færum og skjóta nógu mikið á markið og það er bara erfitt.“ „Svo bara í seinni hálfleik finnst mér við ekki góðir. Mér fannst vanta allt hjarta í þetta og baráttu og einhvern veginn vilja. Mér fannst bara boltinn detta alltaf fyrir þá og við vorum fannst mér bara hvergi í seinni hálfleik, sérstaklega á miðsvæðinu og boltinn fer upp og við sköllum frá og þeir pikka hann alltaf upp og koma á okkur. Mér fannst bara meiri grimmd og hjarta í þessu hjá þeim heldur en okkur sem er bara rosalega sárt. Mér fannst við bara undirbúa þennan leik vel, mér fannst liðið klárt þannig þetta eru bara vonbrigði en eins og ég segi ég virka kannski eitthvað voða brotinn hérna núna, skilurðu, en maður er bara svekktur eftir þennan leik. Mér finnst við ekki nógu góðir, okkur vantar hjarta en við þurfum, eins og við töluðum um saman inni í klefa núna, að ná því upp núna strax á mánudaginn. Ég hef mikla trú á því, ég hef mikla trú á þessu liði. Það eru bara tveir tímar síðan mér fannst þetta bara geggjað lið sem við erum með og að það sé hjarta í þessu og að það sé hjarta í þessu og að það sé hjarta í þessu og að það sé hjarta í þessu þannig það breytist ekkert þrátt fyrir þetta.“ Dræm stigasöfnun gegn liðum í neðri hlutanum Þór hefur í sumar átt í vandræðum með að safna stigum gegn liðum í neðri hlutanum og flest stig liðsins komið gegn liðum í efri hlutanum og hefur Sigurður talað um áður í sumar að liðið eigi erfiðara með að gíra sig upp í leiki gegn liðum í neðri hlutanum. Gæðum á síðasta þriðjungi hefur sömuleiðis verið ábótavant í allt sumar. Sigurður segir þó að leikmenn fylgi sínum skipunum þegar farið er út á völl. „Þeir eru alveg að fylgja því sem á að gera, það bara hefur ekki gengið upp þessir leikir við liðin í kringum okkur, þeir hafa svolítið fallið hinum megin. Það skilur ekkert mikið á milli í þessum leikjum, margir leikir sem við höfum tapað á móti þessum liðum í kringum okkur með einu marki eða í mesta lagi tveimur sem okkur hefur oft fundist eiga eitthvað skilið úr. Við áttum ekkert skilið í dag. Keflvíkingarnir voru bara öflugri en við í dag, þéttari og svona meiri grimmd og liðsheild í þeim en þú veist þeir eru alveg að hlýða mínum skipunum. Það er ekki þannig að við bara sem lið og teymi þurfum greinilega að gera betur í undirbúningi fyrir þessa leiki á móti liðunum í kring. Það er svona sérstakt og svekkjandi að við séum ekki að ná að loka þessum jöfnu leikjum og mér líður rosalega mikið eins og okkur vanti svo lítið upp á en svo er það samt svo rosalega mikið þegar maður horfir svo til baka á leikinn núna.“ Næstu tveir leikir Þórs eru á útivelli, gegn Stjörnunni og ÍBV, áður en FH kemur í heimsókn í lokaumferð hinnar hefðbundnu deildarkeppni. „Ég held að þetta hljóti að vekja okkur aftur, enn einu sinni, þessi frammistaða, sérstaklega í seinni hálfleik, hlýtur að kveikja í okkur. Það hlýtur að vera hægt að kveikja einhvern eld núna að mæta í þessa tvo leiki því að það er nóg eftir, fullt af leikjum, fullt af stigum og við vorum ekki að detta í burtu frá þessu í dag. Við þurfum að bregðast við og við þurfum að gefa meira í þetta, maður. Við þurfum að leggja meira í þetta en við gerðum í dag, það er klárt.“
Þór Akureyri Besta deild karla Keflavík ÍF Mest lesið Haaland snoðaði sig fyrir fyrsta leik í enska Enski boltinn Kynlífsleikföngum aftur kastað inn á völlinn Körfubolti KSÍ og Norðurlöndin lýsa yfir vantrausti á Infantino Fótbolti Myndasyrpa frá Reykjavíkurmaraþoninu: Bleyta, bætingar og bros Sport Man. City - Bournemouth | Haaland mættur með nýja hárgreiðslu Enski boltinn Sjáðu hvernig Hull og Brentford fóru með United og Spurs og öll mörkin úr enska Enski boltinn Sigurvegarar krýndir í Reykjavíkurmaraþoninu Sport Vesen hjá Palace: Mateta heldur því fram að lokaár samningsins sé ógilt Enski boltinn Sigurmark á lokamínútunni í fyrsta leiknum í endurkomu Mourinhos Fótbolti Sara skoraði tvö og Haukar fóru upp í annað sætið Íslenski boltinn Fleiri fréttir Sara skoraði tvö og Haukar fóru upp í annað sætið Njarðvíkingar stöðvuðu sigurgöngu Húsvíkinga Ísfirðingar geta andað léttar HK vann enn einn heimaleikinn og Fylkir flengdi Grindavík Sjáðu Bergdísi bjarga botnliðinu, kraftaverk Lillýar og óheppni fyrirliðans „Kærkomið að fá eitt svona mark“ „Ég skora náttúrulega ekki oft þannig að þetta er eiginlega kraftaverk“ „Ég þekki náttúrulega Ásdísi svolítið vel“ Sjáðu Eið Smára stýra sinni fyrstu æfingu með KA Uppgjörið: FH - Víkingur R 0-1 | Magnaður sigur Víkinga Uppgjörið: Þór/KA - Valur 0-1| Valskonur úr fallsæti Uppgjörið: ÍBV - Þróttur 1-2 | Ekki góð endurkoma BBC birtir innslag um sögulegt einvígi KR og Liverpool Strippaði á Kópavogsvelli fyrir Bestu deildina Sjáðu mörkin: Útsendari FH refsaði toppliðinu og Ása Björg með sýningu „Hún fær fullt frelsi til að fara í öll skógarhlaup sem henni dettur í hug“ „Til skammar á Bestu deildar stigi að vökva ekki völlinn“ Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - Fram 4-0 | Unnu Fram í þriðja sinn í sumar Uppgjörið: Stjarnan - Breiðablik 2-0 | Garðabærinn með hreðjatak á Kópavogi Aðalþjálfarar KFG stýra Stjörnunni út tímabilið „Erum peppaðir í að spila þennan leik“ Stjarnan rak þjálfarann í annað sinn í sumar Eiður Smári þjálfar KA Mögnuð þrenna Köru í Keflavík Kara með þrennu fyrir KR og Tindastóll fallið Hvetur fólk til að sjá „skemmtilegasta Keflavíkurlið í mörg ár“ Botnar ekkert í Brazell: „Alltaf er hann svo sáttur með allt“ Kveðja Bjarna með miklum söknuði „Hvaða grín er þetta með Gylfa Sig?“ Sjáðu mörkin: Methafinn nýtti löngu köstin og Róbert elskar að mæta Stjörnunni Sjá meira