Fyrstur til að vinna fjörutíu titla með einu félagi Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 13. ágúst 2026 21:31 Marquinhos lyftir hér Ofurbikarnum eftir sigur Paris Saint-Germain á Aston Villa í Salzburg í gærkvöldi. AP/Darko Bandic Brasilíumaðurinn Marquinhos tók ekki aðeins við Ofurbikarnum sem fyrirliði Paris Saint Germain í gærkvöldi því hann setti einnig heimsmet.
Þetta var fertugasti titillinn sem hann vinnur sem leikmaður Paris Saint Germain og enginn annar fótboltamaður hefur unnið jafnmarga titla með einu félagi. Marquinhos vann fyrst bara titlana heima í Frakklandi en undanfarin tvö ár hefur PSG unnið Meistaradeildina tvisvar, Ofurbikarinn tvisvar og Álfubikar félagsliða einu sinni. Marquinhos hefur alls orðið franskur meistari ellefu sinnum með PSG og franskur bikarmeistari átta sinnum. Til samanburðar má nefna að hinn sigursæli Ryan Giggs vann 36 titla með Manchester United, Lionel Messi vann 35 titla með Barcelona, Xavi Hernandez vann 33 titla með Barcelona, Thomas Müller vann 33 titla með Bayern München, Luka Modrić vann 28 titla með Real Madrid og Paolo Maldini vann 26 titla með AC Milan. Marquinhos er hvergi nærri hættur og líklegt að hann bæti við titlum á komandi tímabili. Fyrst á dagskrá er franska meistarakeppnin sem hann hefur unnið tíu sinnum áður áður en kemur að tveimur frönskum bikarkeppnum, frönsku deildinni og svo auðvitað Meistaradeildinni sem PSG reynir að vinna þriðja árið í röð. View this post on Instagram A post shared by 433 (@433)
Franski boltinn Mest lesið Bo Johansson er látinn Fótbolti Örlög Elísabetar í höndum fyrrverandi markvarðar Liverpool Fótbolti Reynir að lægja öldurnar: „Eftir leikinn talaði ég í reiði og pirringi“ Enski boltinn Guardiola sá versta hálfleik City á heimavelli í fjórtán ár Fótbolti Flautuþristar og frábær tilþrif: „Hún er eins og jarðýta“ Körfubolti „Stelpurnar vissu ekki einu sinni af þessu“ Fótbolti Freyr fann sig knúinn til að setja nýja reglu Fótbolti Tryggvi í aðalhlutverki í Meistaradeildinni Körfubolti Tvenna Haalands dugði skammt gegn PSG Fótbolti Dagskráin í dag: Orri í Belgíu og fjórir leikir í Bónus-deildinni Sport Fleiri fréttir Freyr fann sig knúinn til að setja nýja reglu Bo Johansson er látinn Reynir að lægja öldurnar: „Eftir leikinn talaði ég í reiði og pirringi“ Örlög Elísabetar í höndum fyrrverandi markvarðar Liverpool Stúdentaóeirðir og táragas valda algjörri óvissu hjá liði Elíasar Sex marka sýning Villa og ótrúleg endurkoma Real Madrid Tvenna Haalands dugði skammt gegn PSG Guardiola sá versta hálfleik City á heimavelli í fjórtán ár Sjáðu þrennu Barcola og alla markasúpuna í Austurríki Barcola braut ísinn með látum í Austurríki Hártogið og lætin kosta Vinicius El Clásico og alls fjóra leiki Hvað verður um Martinez eftir gagnrýnina? Kjartan meiddist illa og verður lengi frá Rooney baunar á Ronaldo: „Allt rangt við þetta“ Uppsagnir hjá Arsenal Tekur ekki við fyrr en eftir tímabilið Náði að hefna sín gegn ítölsku félögunum Þorði ekki á Instagram eftir leikinn Óljós skilaboð vekja upp spurningar: „Ég er orðlaus“ Mörkin úr Meistaradeildinni: Hákon gegn Arsenal, dramatík og óvænt úrslit KSÍ fái rúma þrjá milljarða frá FIFA Lét gamminn geisa og fær að heyra það Guðmundur greindist með hjartasjúkdóm „Stelpurnar vissu ekki einu sinni af þessu“ Myndaveisla: Breið bros og dansspor í Dalnum Segja starf Elísabetar hanga á bláþræði en leikmenn lofa hana Sungu jólalag hástöfum og allt klárt fyrir HM-einvígin Norsku meistararnir magnaðir gegn Bayern Rúnar Páll tekur við Stjörnunni á nýjan leik „Stolt af því hvernig ég stóð mig í dag“ Sjá meira