Martröðin í Kasakstan þjappaði Blikum saman Aron Guðmundsson skrifar 12. ágúst 2026 12:00 Agla María í baráttunni með Breiðabliki gegn FH Vísir/Hulda Margrét Ríkjandi Íslands- og bikarmeistarar Breiðabliks eru komnar aftur heim eftir martraðardvöl í Kasakstan og eiga fyrir höndum mikilvægan leik í toppbaráttu Bestu deildarinnar í kvöld. Fyrirliði liðsins, Agla María Albertsdóttir, segir erfitt verkefni í Meistaradeildinni hafa þjappað liðinu saman. „
Í fyrsta lagi frábært að vera komin aftur heim. Alveg mjög gott. Það er nóg af leikjum framundan. Eiginlega bara brjálað að gera hjá okkur næstu vikurnar alveg út ágúst og fram í september. Við erum mjög spenntar fyrir því að byrja þetta aftur,“ segir Agla María í samtali við Vísi. Martraðar Evrópuverkefni kvennaliðs Breiðabliks er að baki og lukkulega átti það ágætan endi. Löng ferðalög, steikjandi hiti og veikindi settu svip sinn á það en Breiðabliki tókst að lokum að tryggja sér sæti í forkeppni Evrópubikarsins. „Þetta var ein af þessum ferðum sem maður mun muna eftir alla sína ævi. Það er klárt mál. Fínt að taka erfiðustu leiðina núna því þá er allt sem kemur á eftir bara auðvelt. Við horfum á þetta þannig.“ Nokkrir leikmenn Breiðabliks veiktust og var hópurinn á einum tímapunkti orðin ansi þunnskipaður. Með löngu ferðalagi til og frá Kasakstan í þokkabót hefur undirbúningur liðsins fyrir leik kvöldsins verið furðu góður að sögn Öglu. „Hann hefur reyndar bara verið góður. Ef eitthvað er finnst mér þetta hafa þétt hópinn. Í raun og veru horfum við bara á þetta þannig að þetta hafi haft jákvæð áhrif á okkur. Þetta er líka allt önnur keppni. Sama hvort það sé Meistaradeildin eða Evrópubikarinn. Þetta er allt bara bónus. Skemmtilegt að taka þátt í þessu og þú reynir að komast eins langt og þú getur. Nú er þetta alvaran. Við þurfum að vinna þennan leik í kvöld ef við ætlum að gera þetta að skemmtilegum leik næsta laugardag. Það er staðan. Fullur fókus á næsta leik.“ Næsti leikur í kvöld gegn nýliðunum í liði Grindavíkur/Njarðvíkur sem hafa komið af krafti inn í Bestu deildina og eru 5.sæti. Skammt undan er síðan toppslagur Breiðabliks og FH um komandi helgi en liðin eru fyrir leiki kvöldsins með jafnmörg stig á toppi deildarinnar. „Við horfum á þetta sem hörku leik framundan í kvöld. Það virðist vera nóg til hjá Grindavík/Njarðvík. Fullt af útlendingum og verið að gera mjög góða hluti. Flottur þjálfari og maður er alltaf að sjá einhverjar fréttir um að það séu að koma nýir leikmenn í liðið. Við spiluðum við þær á undirbúningstímabilinu og svo aftur á útivelli í deildinni. Þetta hafa verið hörku leikir. Ég býst við mjög erfiðum leik í kvöld.“ Breiðablik verið á góðu skriði heima fyrir og unnið þrjá leiki í kvöld fyrir leik kvöldsins. „Við erum alltaf með sjálfstraust og kassann úti. Það breytist ekkert. Við vitum það samt að sama skapi að við höfum tapað stigum á móti Fram, töpuðum líka stigum á móti Stjörnunni. Þannig það er ekkert gefið í þessari deild. Fyrir einhverjum árum hefði kannski verið hægt að um hina og þessa leiki að þeir væru skyldusigrar. Það er ekki raunin í dag. Þetta eru lið sem hafa verið að vinna okkur og önnur lið í deildinni. Það er ekkert sjálfgefið í þessu. Þetta verður hörku leikur.“ Leikur Breiðabliks og Grindavíkur/Njarðvíkur hefst klukkan korter yfir sjö í kvöld og verður sýndur í beinni útsendingu á Sýn Sport Ísland 2.
Besta deild kvenna Breiðablik Mest lesið Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Fótbolti Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Fótbolti Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Fótbolti Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Fótbolti Býður sig fram á móti Infantino Fótbolti Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik Handbolti Bakgarðsáskorunin: Leitast eftir óprenthæfri hvatningu Sport Uppgjörið: Færeyjar - Ísland 0 - 2 | Umspilssæti Íslendinga staðreynd Fótbolti Fleiri fréttir Ibrahimagic framlengir við Víking Kveðjubréf frá Kidda Steindórs Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Fékk að fara á fyrstu A-landsliðsæfinguna á afmælisdaginn Stóri munurinn á feigum og ófeigum: „Hvað er planið?“ Mikið sem þarf að hugsa um áður en fyrirkomulagi Íslandsmótsins sé breytt Selfoss missir mikið efni Ákvörðun Vals algjörlega galin og það sýnir sig núna Sjáðu fernu Niu og þrennu Ásu í ótrúlegum leik „Við erum alltaf að fara að taka þetta“ Breiðablik - Þróttur 5-4 | Ótrúleg endurkoma meistaranna FH - ÍBV 5-0 | Stórsigur FH sem lagaði markatöluna Sjáðu mörkin sem felldu Víking og Val Uppgjörið: Fram - Valur 1-2 | Valskonur fallnar í fyrsta sinn ,,Mikið í gangi í hausnum núna” „Sorglegt fyrir íslenskan fótbolta“ Uppgjörið: Víkingur R - Þór/KA 0-2 | Björguðu sér og sendu bæði Víking og Val niður um deild Sveppi og mamma hans gætu séð tvö lið falla Enn er penninn á lofti í Laugardal Fékk engar skýringar á mestu vonbrigðum ferilsins Sjáðu þrennu sextán ára Bríetar og hægasta sigurmark ársins Segir skipulagið fáránlegt: „Ekki sanngjarnt að annað liðið sé alltaf að elta“ Bríet Fjóla Bjarnadóttir: „Ég varð að klára þetta með þrennu “ Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - FH 3-2 | Áfall fyrir titilbaráttu FH Uppgjörið: Þróttur R. - Stjarnan 5-1 | Bríet Fjóla með þrennu í stórsigri Þróttar Sorgarferli að sættast við ónýtan skrokk „Þetta er þorpið manns“ Uppgjörið: ÍBV - Breiðablik 1-2 | Blikar verma toppinn Þrjú lið berjast um eitt öruggt sæti en Fram bjargaði sér „Enginn annar sem hafði trú á okkur en við sjálf“ Sjá meira