Urður yfirgefur Kastljós Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 10. ágúst 2026 14:01 Urður Örlygsdóttir heldur á vit ævintýranna í Stokkhólmi. Ragnar Visage „Ég ætla að nýta þetta ár í að hlaða batteríin, læra nýtt tungumál og sjá hvaða tækifæri eru í boði í nýju landi,“ segir fréttakonan Urður Örlygsdóttir sem landsmenn kannast eflaust flestir við af skjánum. Urður hefur í áraraðir starfað við fjölmiðla hérlendis og undanfarin ár verið í Kastljósi og kvöldfréttum hjá Rúv. Nú í ágústbyrjun tóku við miklar breytingar í hennar lífi þegar hún flutti með fjölskyldu sinni til Stokkhólms.
Kærkomið fjölskyldustökk Blaðamaður tók púlsinn á Urði og fékk nánar að heyra frá þessum breytingum. „Ég var komin með nóg að lesa skoðanagreinar og taka viðtöl við Já og Nei-sinna í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar um ESB að ég tók það bara á kassann fyrir landsmenn að flytja í Evrópusambandsland og fá úr þessu skorið. Alveg óumbeðin og launalaust,“ grínast Urður með, skellihlær og bætir við: „Nei, maðurinn minn komst inn í meistaranám í arkitektúr við KTH í Stokkhólmi. Hann hafði lengi dreymt um að komast inn í þetta nám og við ákváðum að taka stökkið öll fjölskyldan og láta reyna á lífið hér í Svíþjóð. Ég bjó sjálf í Kaupmannahöfn í fimm ár þannig ég hef prófað þetta áður en ekki með börn, þannig það verður gaman að upplifa það.“ Úlfur Bæringur unnusti Urðar komst inn í drauma-meistaranám sitt í Stokkhólmi.Aðsend Skráði sig í námið sjálfviljug Urður er því komi í ársleyfi frá Kastljósinu og RÚV. Valgeir Örn Ragnarsson átti að leysa hana af í ár en hann tók öðru starfi hjá Landsneti þannig hún segist ekki vita hver kemur inn í hópinn í hennar stað. „Ég sinni mögulega einhverjum verkefnum héðan en það á allt eftir að koma í ljós. Ég ætla að nýta þetta ár í að hlaða batteríin, læra nýtt tungumál og sjá hvaða tækifæri eru í boði í nýju landi. Ég ætla líka að taka Opinbera stjórnsýslu í fjarnámi frá HÍ og það byrjar núna í lok ágúst. Til að svara spurningunni sem ég fæ oft þá nei, ég tapaði ekki veðmáli og já ég skráði mig í þetta nám sjálfviljug og er ekkert eðlileg spennt fyrir því,“ segir hún kímin. Urður nýtur morgunbollans í sænsku sólinni og er að byrja í fjarnámi í haust.Aðsend Hálfmaraþon, rólórannsóknir og sænsku-æfingar Urður og sambýlismaður hennar Úlfur Bæringur hafa verið saman í tæpan áratug og eru nýlega trúlofuð. Þau eiga saman tvo stráka, Örlyg Darra og Unnstein Flóka, sem eru spenntir fyrir nýja landinu. „Við erum búin að vera úti í viku núna þannig þetta er allt mjög nýtt enn þá. Stokkhólmur er auðvitað ótrúlega falleg borg með endalaust af möguleikum. Hún er mjög ólík Kaupamannhöfn, mun stærri og alþjóðlegri. Ég vann alveg fram á síðasta dag og byrjaði í sumarfríi daginn sem við lentum hér úti þannig það er smá þannig bragur yfir þessu, að lifa og njóta í fyrirheitna landinu. Annars leggst þetta ágætlega í mig, ég hlakka til að ná að eyða meiri tíma með litlu strákunum mínum og hægja aðeins á mér,“ segir Urður en þó er spurning hversu lengi rólegheitin endast. „Jú, ég er hundrað prósent týpan sem þrífst best þegar það er nóg að gera og næ að keyra adrenalínið upp þannig þetta verður áskorun líka, en við erum spennt.“ Hlaupin eru mikið áhugamál hjá Urði sem ætlar að skella sér í hálfmaraþon í lok ágúst.Aðsend Urður er mikill hlaupagarpur og var ekki lengi að finna skemmtilega áskorun úti. „Ég er á fullu að þjálfa fyrir Stokkhólmshálfmaraþonið sem er 29. ágúst og við erum enn að koma okkur fyrir á nýju heimili. Strákarnir mínir sem eru fjögurra og fimm ára eru komnir inn á leikskóla í lok september þannig þangað til erum við bara að æfa okkur í sænsku, taka út alla helstu rólóana í hverfinu og hafa það huggulegt,“ segir hún brosandi og full tilhlökkunar að lokum. Örlygur Darri og Unnsteinn Flóki byrja á sænskum leikskóla í lok september og fjölskyldan er dugleg að æfa sig í sænskunni.Aðsend
Íslendingar erlendis Svíþjóð Bíó og sjónvarp Ríkisútvarpið Fjölmiðlar Tímamót Tengdar fréttir Urður trúlofuð og mætt aftur á Instagram Fréttakonan Urður Örlygsdóttir átti rosalega endurkomu á samfélagsmiðilinn Instagram um helgina eftir margra ára fjarveru frá forritinu. Í leiðinni tilkynnti hún stórar fréttir eins og henni einni er lagið. 22. júní 2026 13:02 Mest lesið Steinn Ármann er látinn Lífið Davíð Þór um fráfall Steins Ármanns: „Engin orð. Bara sorg“ Lífið Kjóllinn brann korter í brúðkaup Lífið Fór létt með tíu kílómetra: „Við sjáumst bara í markinu gamla mín“ Lífið Svona voru afmælistónleikar Bylgjunnar á Menningarnótt Lífið Krakkatía vikunnar: Svampur Sveinsson og Sesarsalatið Lífið „Maður veit aldrei hvað framtíðin ber í skauti sér“ Lífið Leikkonan Bunny Levine er látin Lífið Úlfadrengurinn í Sierra Morena allur Lífið Bautista hleypur í skarðið Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Leikkonan Bunny Levine er látin Davíð Þór um fráfall Steins Ármanns: „Engin orð. Bara sorg“ Steinn Ármann er látinn Kjóllinn brann korter í brúðkaup Krakkatía vikunnar: Svampur Sveinsson og Sesarsalatið Fór létt með tíu kílómetra: „Við sjáumst bara í markinu gamla mín“ Úlfadrengurinn í Sierra Morena allur „Maður veit aldrei hvað framtíðin ber í skauti sér“ Fréttatía vikunnar: Eiður Smári, Harry og frelsissvipting Missti allan mátt fyrir neðan bringu: Dreymir um að geta spilað golf á ný Fyrsta kvennalandsliðið í kotru býður á opna æfingu Svona voru afmælistónleikar Bylgjunnar á Menningarnótt Þessi hafa safnað mestu fyrir Reykjavíkumaraþonið Lögmaður kærasta Panettiere með yfirlýsingu um andlátið Barnastjörnurnar sem Hollywood brást Hvað veistu um... Köngulóarmanninn? Ekkert annað í stöðunni en að fara á brókinni í ísbúðina Guðmundur Felix frumsýnir nýja nefið Týndi farangrinum og klæddist íslensku merki frá toppi til táar Hlutir sem þú ættir aldrei að deila með maka þínum Svona verður dagskráin á Menningarnótt Harry og Meghan ætla að flytja aftur til Bretlands Þorsteinn Leó orðinn pabbi Versluðu sígarettur af rússneskum sjómönnum: „Þetta var bara eins og gull“ Jinny Lu er ljótasti hundur í heimi 2026 „Hver á eftir að vilja konu sem kúkar í poka?“ Jóhann Kristófer og Nadía Áróra slá sér upp Nicole birtir myndir úr Íslandsheimsókninni: „Við elskum ykkur Ísland!!“ Sögðu já þar sem ástarsagan hófst Frank Beard er látinn 77 ára að aldri Sjá meira
Urður trúlofuð og mætt aftur á Instagram Fréttakonan Urður Örlygsdóttir átti rosalega endurkomu á samfélagsmiðilinn Instagram um helgina eftir margra ára fjarveru frá forritinu. Í leiðinni tilkynnti hún stórar fréttir eins og henni einni er lagið. 22. júní 2026 13:02