Sjöfaldur NBA meistari kennir íslenskum krökkum að setja stóru skotin Ágúst Orri Arnarson skrifar 7. ágúst 2026 11:06 Big Shot Rob er mættur til Íslands. vísir / EPA Sjöfaldi NBA meistarinn Robert Horry er mættur hingað til lands að miðla sinni reynslu á körfuboltanámskeiði sem er haldið í samvinnu við Los Angeles Lakers.
Horry á sextán ára feril að baki í NBA deildinni frá 1992-2008 þar sem hann vann sjö meistaratitla með liðum Houston Rockets, Los Angeles Lakers og San Antonio Spurs. Samhliða leikmönnum á borð við Hakeem Olajuwon, Kobe Bryant, Shaquille O‘Neal og Tim Duncan. Undir stjórn þjálfara á við Phil Jackson og Gregg Popovich. Ljóst er að af nægri reynslu er að taka en hvað er Horry kominn til að kenna? „Ég er kominn til að kenna heildstæðan körfubolta. Margir ungir krakkar sem spila þessa íþrótt í dag halda að körfubolti snúist um að setja þriggja stiga körfur. Þú getur skotið þristum, tvistum, þú verður að hitta úr vítum og sneiðskotum. Við erum að kenna þetta allt saman. Það sem fyrsta sem krakkar gera í dag, þegar þeir koma inn í æfingasalinn, er að fara beint á þriggja stiga línuna. Ég segi þeim að fara ekki bara inn og byrja að þruma boltanum upp í loft, þú verður að hita upp og koma þér inn í leikinn. Þetta er ein af gullnu reglunum sem við kennum leikmönnum: Þú verður að byggja upp grunninn. Og þegar þú ert með það hugarfar, að vinna í litlu hlutunum til að verða góður í stóru hlutunum, þá verðurðu í fínu lagi.“ Horry hefur sjö sinnum handleikið svona bikar. EPA/MIGUEL ANGEL MOLINA Á tíma sínum í NBA deildinni öðlaðist Horry frægð fyrir að stíga upp á stóru stundunum. Hvort sem það var hjá Rockets, Lakers eða Spurs. Alltaf setti Big Shot Rob stóru skotin ofaní. Er það eitthvað sem hægt er að kenna, að stíga upp á stóru stundunum, eða er það meðfæddur eiginleiki? „Ég held að það sé sitt lítið af hvoru. Ég held að þegar það er talað um þetta gen (e. the clutch gene) sé verið að tala um mann sem einstakling, hversu rólegur þú getur verið í erfiðum aðstæðum og hversu sterkur þú ert andlega. En þetta snýst líka um að vera í æfingasalnum, aftur og aftur. Það er annar hlutur sem við segjum krökkunum, þetta snýst um endurtekningar. Því meira sem þú æfir, þá verður þetta hluti ef þér, eins og gen eða erfðaefni.“ Yfirnjósnari Los Angeles Lakers, Irving Thomas, er líka á svæðinu og hefur litist vel á íslenska efniviðinn en hann segir það mikilvægasta í leiknum vera óáþreifanlegu hlutina. Irving Thomas spilaði með Los Angeles Lakers 1990-91 og hefur starfað fyrir félagið síðustu 25 ár. vísir / BJARNI „Það er enginn munur á því sem við gerum hér og þegar við leitum að leikmönnum fyrir Lakers eða önnur NBA lið. Þú getur haft alla hæfileika í heiminum en vantað suma hluti sem við köllum þetta óáþreifanlega. Ertu góður liðsfélagi? Ertu góð manneskja? Hvernig hagarðu þér utan vallar? Hvernig er fagmennskan? Allt þetta sem er ekki hægt að mæla er jafnmikilvægt og hæfileikar. Þetta er það sem ég leita að í leikmönnum.“
NBA Mest lesið Endurkomusigur hjá City í fyrsta leik Enski boltinn Haaland snoðaði sig fyrir fyrsta leik í enska Enski boltinn KSÍ og Norðurlöndin lýsa yfir vantrausti á Infantino Fótbolti Kynlífsleikföngum aftur kastað inn á völlinn Körfubolti Myndasyrpa frá Reykjavíkurmaraþoninu: Bleyta, bætingar og bros Sport Newcastle - Liverpool | Rauði herinn heimsækir skjórana Enski boltinn Sjáðu hvernig Hull og Brentford fóru með United og Spurs og öll mörkin úr enska Enski boltinn Algjört hrun í fyrsta leik hjá Aston Villa Enski boltinn Harkalegur árekstur hjá Verstappen á heimaslóðum Formúla 1 Sigurvegarar krýndir í Reykjavíkurmaraþoninu Sport Fleiri fréttir Tindastóll tekur slaginn aftur í Evrópukeppni Kynlífsleikföngum aftur kastað inn á völlinn ÍR semur við sænsk-bandarískan bakvörð Strákarnir réðu ekki við Finnana Ísland tapaði fyrir Portúgal „Þurfum að gera skítaverkin betur en andstæðingurinn“ Sextán ára nýliði í landsliðinu: „Við erum að velja þær af því þær eru svo góðar“ ÍR semur við bandarískan bakvörð Íslenskan öll að koma til hjá nýliða landsliðsins „Takk fyrir mig körfubolti“ Pablo Bertone aftur í Val Keflavík heldur áfram að styrkja sig Hópurinn klár fyrir næsta skref að HM Berglind Katla valin í A-landsliðið aðeins 16 ára Yfir milljón í boði á nýrri íslenskri mótaröð Keflavík bætir við sig Bandaríkjamanni Krakkarnir bjuggu til sögulegt sumar fyrir íslenskan körfubolta Stjarnan fær 208 sentímetra miðherja Strákarnir sekúndum frá gullinu eftir frábæra frammistöðu „Hann var fyndinn, hann var hávær og hann var alltaf að grínast“ Strákarnir í úrslitaleikinn og upp í A-deild eftir risasigur Sló tvo leikmenn í andlitið og lét vísa áhorfanda út „Hinn fullkomni keppnismaður“ leggur skóna á hilluna Keyrðu yfir Svartfellinga undir lokin og undanúrslitin bíða Gætu rekið íslenska ríkissjóðinn fyrir kaupverðið á Lakers Sturla Böðvarsson til KR Sjáðu tilþrif Berglindar úr úrslitaleiknum: Skoraði 46 meira en næsti leikmaður á EM Lakers selt fyrir metupphæð Berglind fékk Gullboltann Stórbrotin endurkoma næstum því nóg í úrslitaleiknum Sjá meira