Dregur sig í hlé: „Þessi aumingja kona er að deyja beint fyrir framan okkur“ Freyja Þórisdóttir skrifar 4. ágúst 2026 13:27 Ariana Grande ætlar að hlaða batteríin eftir að tónleikaferðalaginu sem hún er á en því lýkur þann 1. september. Óljóst er hversu lengi hléið varir. AP Bandaríska söng- og leikkonan Ariana Grande ætlar að draga sig úr sviðsljósinu eftir að yfirstandandi tónleikaferðalagi hennar lýkur þann 1. september. Hún hefur sagt aðdáendum sínum frá því að hléið hafi verið skipulagt lengi og sé með engu móti ákveðið í flýti. Grande hefur sætt mikilli gagnrýni undanfarin misseri en meðal annars hefur fólk sett út á það hversu grönn hún sé.
Var það bandaríski dægurmiðillinn People Magazine sem greindi fyrst frá því að talsmaður Grande hefði tilkynnt um helgina að söngkonan myndi „draga sig í hlé frá sviðsljósinu“ þegar tónleikaferðalaginu sem hún er á þessa stundina ljúki. Fjöldi ummæla hefur safnast undir tónlistarmyndbönd söngkonunnar en Jameela Jamil er ein þeirra sem hafa áhyggjur af Grande.Getty Meðal þess sem hún syngur í nýjasta lagi sínu Petal eru setningar á borð við „þetta er ekki ákall á hjálp“ og „Í þetta sinn er ég að kveðja í alvörunni“. Söngkonan greindi sjálf frá því í fjögurra mínútna ræðu sem hún flutti í gærkvöldi á tónleikum sínum í Chicago að hléið væri ekki óvænt viðbragð við neikvæðri gagnrýni. „Ég heyrði að aðdáendur mínir hefðu áhyggjur af því að neikvæðni væri að eyðileggja fyrir mér en... það gæti ekki verið fjær sannleikanum,“ sagði hún í ræðunni en ítrekaði svo að „það þarf að setja mörk, manneskjur þurfa stundum á pásu að halda.“ Grande las upp minnispunkta sem hún sagðist hafa gert þar sem hún „vildi ekki verða stressuð og gleyma“ og sagði að „ákvörðunin hefði verið tekin af yfirvegun og valdeflingu“. Svelta sig til að líkjast átrúnaðargoðunum sínum Meðal gagnrýnisradda er leikkonan Jameela Jamil sem er einna þekktust fyrir leik sinn í þáttunum The Good Place. Hún hefur einnig verið ófeimin við að tjá sig um sína reynslu af því að vera með átröskun í gegnum tíðina og stofnaði hreyfinguna „I Weigh“. Þá nefnir hún mikilvægi þess að fólk sem njóti slíkrar athygli, en Grande er sem stendur með ríflega 360 milljón fylgjendur á Instagram, reyni eftir fremsta megni að hafa jákvæð áhrif á aðdáendur sína. Það að gera lítið úr áberandi þyngdartapi Grande sé hún sjálf og teymið hennar að hafa skaðleg áhrif á líkamsímynd ungra kvenna um allan heim. „Fræga fólkið hefur aðgang að bestu aðstoð og umönnun sem völ er á. Flestir unglingar og áhrifagjarnt ungt fólk sem fylgist með okkur hefur það ekki,“ skrifar hún í færslu á Instagram. „Á klukkutíma fresti hefur hjúkrunarfræðingur eða sérfræðingur í átröskunum samband við mig og segir mér að þau hafi aldrei haft jafn mikið að gera með inniliggjandi sjúklinga, yngri og yngri börn sem svelta sig til að líkja eftir útliti uppáhalds skemmtikraftanna sinna.“ Deyjandi fyrir allra augum Hún setti sérstaklega út á klæðaburð Grande í nýjasta tónlistarmyndbandinu sínu en þar þótti Jamil sem ýtt hafi verið undir smáan ramma söngkonunnar. Í færslum á samfélagsmiðlum segir hún teymi Grande ábyrgt fyrir því að styðja hana ekki og aðstoða hana við að ná fullri heilsu á ný, „Þessi aumingja kona er að deyja beint fyrir framan okkur. Þessi klæðnaður er hannaður til að leggja áherslu á hversu mjó hún er,“ sagði Jamil meðal annars í ummælum undir færslu á Instagram og bætti við að „teymið hennar er óábyrgt fyrir að leiðbeina henni ekki á réttan hátt.“ Hér að neðan má horfa á tónlistarmyndbandið fyrir lagið Petal en klæðaburðurinn sem Jameel var að tala um í sínum ummælum var svarta settið sem hún er í frá mínútu tvö í myndbandinu. Stílistinn sem sá um klæðaburð söngkonunnar í tónlistarmyndbandinu er hinn bandaríski Law Roach sem var nýlega hrósað í hástert fyrir velheppnaða stíliseringu fyrir leikkonuna Zendaya í kjölfar frumsýningar kvikmyndarinnar The Oddessey. Hvert áfallið á fætur öðru Móðir söngkonunnar, Joan, hefur sýnt dóttur sinni stuðning síðan hléið var tilkynnt, meðal annars með því að skrifa athugasemd við nýjasta tónlistarmyndband hennar: „Þú ert stórkostleg... og þetta myndband er ótrúlegt! Ég elska það og ég elska þig meira!!!“ Grande steig upp á stjörnuhimininn eftir leik sinn sem Cat í þáttunum Victorous en svo árið 2013 gerði hún garðinn enn grænni með laginu The Way sem hún samdi og flutti ásamt rapparanum Mac Miller. Þau byrjuðu svo að stinga nefjum saman um þremur árum seinna. Hann lést þann 7. september árið 2018 aðeins tuttugu og sex ára gamall af völdum of stórs skammts af kókaíni, fentanýli og áfengi á heimili sínu. Þá höfðu þau Grande hætt saman örfáum mánuðum áður eftir um tveggja ára samband. Rúmu ári áður, þann 22. maí árið 2017, höfðu tuttugu og tveir aðdáendur Grande látið lífið og eitt þúsund og sautján slasast að tónleikum söngkonunnar loknum í Manchester þegar öfgamaðurinn Salman Abedi gekk inn í þvöguna með sprengju í bakpoka og sprengdi sig í loft upp. Grande hefur rætt opinskátt um áföllin en ástarlíf hennar hefur einnig verið reglulega efni umfjöllunar fréttamiðla og hefur hún samið þó nokkur lög sem fjalla um sambönd sín. Þar eru meðal annars „thank u, next“ og „no tears left to cry“.
Bandaríkin Heilsa Samfélagsmiðlar Áfengi Fíkn Ástin og lífið Tengdar fréttir Stórbrotinn stíll Zendayu Það er of vægt til orða tekið að segja að leikkonan Zendaya beri af í klæðaburði. Engin önnur stjarna kemst með tærnar þar sem hún hefur hælana og undanfarið hefur henni tekist að toppa sjálfa sig algjörlega. 7. júlí 2026 14:00 Ariana Grande sækir um skilnað Tónlistarkonan heimsfræga Ariana Grande hefur sótt um skilnað frá eiginmanni sínum, Dalton Gomez. Þau hafa verið gift í tvö ár. 18. september 2023 23:55 Ariana Grande með áfallastreituröskun Söngkonan Ariana Grande segir að hún muni aldrei getað talað um sprengjuárásina í Manchester án þess að bresta í grát. 5. júní 2018 08:50 Ariana Grande jafnar sögulegan árangur Bítlanna Söngkonan Ariana Grande er fyrsti tónlistarmaðurinn til þess að eiga þrjú efstu lögin á Billboard Hot 100 listanum síðan Bítlarnir náðu þeim áfanga árið 1964. 19. febrúar 2019 22:51 Mest lesið Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ Lífið Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Lífið Douglas gengst við enn einu framhjáhaldinu Bíó og sjónvarp Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Lífið Lækna-Tómas og Ármann skemmtu sér á safninu Menning Barnaspítalabindi Billy stal senunni Tíska og hönnun Eva Marie Saint er látin Lífið „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Lífið Kristrún valdi Victoriu Beckham Tíska og hönnun „Ég geri bara ráð fyrir því að fólk sé búið að gleyma mér“ Tónlist Fleiri fréttir Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Eva Marie Saint er látin Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Hvað veistu um... íslenska hönnun? Funheit í fimm ára afmæli Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs Tendra friðarsúluna í tuttugasta sinn Elegant herrar selja perlu í 101 Tískudrottningar fögnuðu kærkominni opnun Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Stjörnulífið: „Lukka lífs míns að vera gift þessum“ Fæddist á Íslandi en þurfti áratugi til að fá það staðfest Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Ástæða fyrir því að þau fóru ekki hátt með sambandið Hágrét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn Krakkatía vikunnar: Eurovision, Harry Potter og Mr. Beast Líður betur eftir að hún þurfti að þjóta upp á spítala í miðri útsendingu Haustbingó Blökastsins í beinni Hemmi Gunn hjálpaði Hilmari og Birni Braga að svindla Segir Ríkissjónvarpið bregða fyrir sig fæti Unglingavinnan var tískupallurinn í París Sjá meira
Stórbrotinn stíll Zendayu Það er of vægt til orða tekið að segja að leikkonan Zendaya beri af í klæðaburði. Engin önnur stjarna kemst með tærnar þar sem hún hefur hælana og undanfarið hefur henni tekist að toppa sjálfa sig algjörlega. 7. júlí 2026 14:00
Ariana Grande sækir um skilnað Tónlistarkonan heimsfræga Ariana Grande hefur sótt um skilnað frá eiginmanni sínum, Dalton Gomez. Þau hafa verið gift í tvö ár. 18. september 2023 23:55
Ariana Grande með áfallastreituröskun Söngkonan Ariana Grande segir að hún muni aldrei getað talað um sprengjuárásina í Manchester án þess að bresta í grát. 5. júní 2018 08:50
Ariana Grande jafnar sögulegan árangur Bítlanna Söngkonan Ariana Grande er fyrsti tónlistarmaðurinn til þess að eiga þrjú efstu lögin á Billboard Hot 100 listanum síðan Bítlarnir náðu þeim áfanga árið 1964. 19. febrúar 2019 22:51