Mun það sama gerast við Anderson og gerðist við Philips hjá City? Andri Broddason skrifar 30. júlí 2026 21:03 Ekki rættist úr ferli Kalvin Philips hjá Manchester City eins og hann óskaði sér. Sömu örlog geta hent Elliot Anderson Samsett/Getty Elliot Anderson er ekki fyrsti enski miðjumaðurinn sem Manchester City kaupir og býst við að keppa um sæti í byrjunarliðinu. Manchester City átti að vera stökkpallur fyrir feril Kalvin Philips en hann hefur varla fengið að spila fyrir félagið.
Kalvin Philips ólst upp sem leikmaður Leeds og spilaði stórt hlutverk þegar liðið komst upp í ensku úrvalsdeildina árið 2020. Tímabilið eftir var áhersla lögð á að halda liðinu uppi í úrvalsdeildinni og hafðist það. Eftir frábæra frammistöðu hjá Leeds var hann keyptur yfir til Manchester City. Philips skrifaði undir sex ára samning við félagið en er að öllum líkindum að verða lánaður út í fjórða skiptið síðan hann gekk til liðs við Manchester City. Á síðasta tímabili fór Philips til Sheffield United að láni sem spilar í ensku B-deildinni. Ítrekuð meiðsli á óheppilegum tímum og barátta við Rodri um stöðu á vellinum settu feril Kalvin Philips á hliðina. Eftir meiðsli sem héldu honum frá vellinum í nokkra mánuði fór Philips til Katar með enska landsliðinu á heimsmeistaramótið í fótbolta. Hann náði ekki að spila mikið á því móti og þegar hann kom til baka til Manchester var hann ekki lengur í hóp Manchester City. Pep Guardiola, þáverandi þjálfari Manchester City, sagði hann vera of þungan eftir að hann kom frá heimsmeistaramótinu. Síðan Guardiola sagði þetta hefur ferill Philips ekki verið samur. Staða Manchester City önnur í dag Manchester City liðið er í allt annarri stöðu núna en þegar Kalvin Philips gekk til liðs við það. Félagið er nú að byggja liðið upp aftur með Enzo Maresca við stjórnvölinn. Leikmenn á borð við Bernardo Silva og John Stones sem voru lengi í herbúðum Manchester City hafa yfirgefið félagið og því eru miklar sviptingar í leikmannahópnum. Elliot Anderson þarf að vera meðvitaður um að það er öðruvísi að spila fyrir stórlið eins og Manchester City. Hann þarf að geta tekið þeirri auknu gagnrýni sem getur fylgt því svo ferillinn hans endi ekki eins og Kalvin Philips.
Enski boltinn Manchester City Mest lesið Endurkomusigur hjá City í fyrsta leik Enski boltinn Haaland snoðaði sig fyrir fyrsta leik í enska Enski boltinn KSÍ og Norðurlöndin lýsa yfir vantrausti á Infantino Fótbolti Kynlífsleikföngum aftur kastað inn á völlinn Körfubolti Myndasyrpa frá Reykjavíkurmaraþoninu: Bleyta, bætingar og bros Sport Sjáðu hvernig Hull og Brentford fóru með United og Spurs og öll mörkin úr enska Enski boltinn Sigurvegarar krýndir í Reykjavíkurmaraþoninu Sport Newcastle - Liverpool | Rauði herinn heimsækir skjórana Enski boltinn Algjört hrun í fyrsta leik hjá Aston Villa Enski boltinn Harkalegur árekstur hjá Verstappen á heimaslóðum Formúla 1 Fleiri fréttir Newcastle - Liverpool | Rauði herinn heimsækir skjórana Brynjólfur hélt áfram að skora en allt hrundi á hinum endanum Algjört hrun í fyrsta leik hjá Aston Villa Thelma gaf stoðsendingu í hefndarsigri Endurkomusigur hjá City í fyrsta leik Watkins utan hóps en Emery vill ekki tjá sig Brynjar og Daníel byrja tímabilið í brekku Haaland snoðaði sig fyrir fyrsta leik í enska „Ég mun reyna að finna nýjan Rodri“ KSÍ og Norðurlöndin lýsa yfir vantrausti á Infantino Messi skoraði en Miami heldur áfram að tapa Gamli Primark-starfsmaðurinn sem var nálægt því að skemma fyrir Mourinho Sjáðu hvernig Hull og Brentford fóru með United og Spurs og öll mörkin úr enska Vesen hjá Palace: Mateta heldur því fram að lokaár samningsins sé ógilt Sigurmark á lokamínútunni í fyrsta leiknum í endurkomu Mourinhos De Bruyne gerði gæfumuninn gegn Mikael Agli og félögum De Zerbi ósáttur: „Vorum ekki tilbúnir að berjast“ Hinrik kominn á blað með nýja liðinu og okkar menn í Tyrklandi fögnuðu sigrum Sara skoraði tvö og Haukar fóru upp í annað sætið Brentford tók Tottenham í karphúsið Njarðvíkingar stöðvuðu sigurgöngu Húsvíkinga Ísfirðingar geta andað léttar Andri heldur áfram að skora fyrir Blackburn Góð byrjun hjá strákunum hans Moyes Glæsimark kom ekki í veg fyrir nýliðasigur HK vann enn einn heimaleikinn og Fylkir flengdi Grindavík Tryggði sigur beint úr aukaspyrnu undir blálokin Stefán Teitur með tvennu í þægilegum bikarsigri Infantino beðinn um að mæta ekki á barnamót sem FIFA fjármagnar „Þeir litu ekki út fyrir að vera í formi“ Sjá meira