LeBron framleiðir „Last Dance“ heimildarþætti Ágúst Orri Arnarson skrifar 30. júlí 2026 14:42 Mun LeBron James enda ferilinn með meistaratitli? Luke Hales/Getty Images LeBron James er að ganga frá samkomulagi við ESPN um framleiðslu á heimildarþáttum í anda „The Last Dance“ hjá Michael Jordan.
Tíu þátta serían sem var gerð um Jordan og kom út í miðjum Covid faraldri árið 2020 naut gríðarlegra vinsælda. Þar fengu áhorfendur innsýn í hvað gekk á bakvið tjöldin á síðasta tímabili Jordan hjá Chicago Bulls og yfirferð um alla sex meistaratitlana sem hann vann. LeBron er nýbúinn að ganga frá tveggja ára samningi við Philadelphia 76ers, sem hann segir að verði síðasta stoppið á ferli sem spannar rúmlega tvo áratugi hjá Cleveland Cavaliers, Miami Heat og Los Angeles Lakers. The Athletic greinir frá því að heimildarþættirnir um síðustu tímabil LeBron muni einnig skyggnast bakvið tjöldin og sýna frá öllum ferli hans í NBA deildinni, með áður óséðu myndefni. Enda hefur myndatökulið fylgt LeBron eftir síðan hann var enn í menntaskóla og úr nægu að taka. Óvíst er hvenær þættirnir verða gefnir út og að sjálfsögðu er ekki vitað hvort þeir endi með meistaratitli eins og í tilfelli Jordan hjá Bulls. LeBron James og Michael Jordan eru af flestum taldir tveir bestu körfuboltamenn sögunnar. Líklega munu þættirnir um LeBron ekki fylgja nákvæmlega sömu uppskrift og gert var með Jordan en engu að síður verða þeir bornir saman, líkt og LeBron hefur upplifað allan sinn feril.
NBA Mest lesið Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Fótbolti Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Fótbolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Fótbolti Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Fótbolti Gómuð við gróft svindl í Berlín Sport Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Íslenski boltinn Bakgarðsáskorunin: Leitast eftir óprenthæfri hvatningu Sport Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Dregið á föstudag: Sjáðu mörk og fögnuð ungu strákanna okkar Fótbolti Fleiri fréttir Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Meisturunum spáð miðjumoði: „Skil ekki hvernig þeir náðu honum aftur“ Dagskráin í dag: Tveir leikir og málin tækluð í Körfuboltakvöldi Æfði með rúgbíliði í Frakklandi á undirbúningstímabilinu Uppgjörið: Grindavík - Haukar 81-71| Grindavík sterkari á lokasprettinum KR vann erkifjendurna sannfærandi Sóttu fyrsta sigur tímabilsins á heimavelli Hefur sitt 40. tímabil: „Eins og að bera saman epli og appelsínur“ „Við þurfum að gera margt betur“ Grindavík - KR 79-106 | Yfirburðir bikarmeistaranna Álftanesi spáð sigri í Bónus-deild karla Uppgjörið: Valur - Njarðvík 77-64| Valur skellti Íslandsmeisturunum Haukar létu Fjölni bíða eftir fyrstu stigum tímabilsins Sigurganga Tindastóls í Evrópu heldur áfram Setti silfurliðið í sjötta sæti: Nýr þjálfari og þynnri hópur „Ég hef miklar áhyggjur af Valsstelpunum“ „Þurfum að bæta varnarleikinn umtalsvert“ „Baráttan góð en margt sem við þurfum að gera betur“ Grindavík hóf tímabilið á stórsigri Uppgjörið: KR - Stjarnan 94-87 | KR-ingar höfðu betur í sveiflukenndum leik Grænn Rúnar dró Grindavík Meiri pressa á sterkara KR-liði Lebron talaði hreint út Tröllvaxinn Tryggvi hóf tímabilið af krafti Tindastóll með fullt hús stiga í Evrópu eftir spennutrylli Uppgjörið: Njarðvík - Keflavík 83-78| Njarðvíkingar eru meistarar meistaranna Njarðvík spáð toppsætinu og nýliðarnir verma botninn Martin frábær í sigurleik Stólarnir unnu fyrsta leik sannfærandi Martin byrjar nýtt tímabil eins og hann endaði síðasta Sjá meira