Eftirlætis myndir Laufeyjar: „Mig dreymir um þetta augnablik“ Magnús Jochum Pálsson skrifar 28. júlí 2026 17:30 Laufey Lín er greinilega mikill kvikmyndaunnanndi. EPA Súperstjarnan Laufey Lín hefur greint frá því hvaða fjórar kvikmyndir hún heldur mest upp á. Óhætt er að segja að Laufey sé með fjölbreyttan smekk, myndirnar ná yfir sjötíu ára tímabil og eru af ólíkri gerð
Á kvikmyndaforritinu Letterboxd getur fólk skráð kvikmyndir sem það hefur horft á eða vill horfa á, gefið stjörnur, skrifað dóma og séð hvað öðrum finnst um sömu myndir. Einn af fídusum forritsins er að fólk velur sínar fjórar eftirlætis myndir til að hafa á prófilsíðunni sinni. Starfsmenn Letterboxd hafa á síðustu árum verið duglegir við að taka viðtöl við kvikmyndagerðarfólk og aðra fræga einstaklinga um uppáhaldsmyndir þeirra og viðtalsröðin notið mikilla vinsælda. Í gær birtist viðtal blaðamanns Letterboxd við tónlistarkonuna Laufeyju sem valdi sínar fjórar eftirlætis myndir. Ofurhetjur, elskendur og stórborgir „Mig dreymir um þetta augnablik og ég óttast að ég muni ekki ná að standa mig,“ sagði Laufey í upphafi viðtalsins. Fyrsta myndin á blað hjá Laufeyju var söngleikurinn An American in Paris (1951) í leikstjórn Vincente Minelli og með Gene Kelly og Leslie Caron í aðalhlutverkum. Þar segir frá ástarþríhyrningi strögglandi Ameríkana í París. Sígildur söngleikur. „Ég er mikill aðdáandi gullaldarsöngleikja og gullaldarkvikmynda. Mér finnst An American in Paris virkilega tala til mín því það er ballet og fullt af klassískri tónlist í henni. George Gershwin er eitt af mínum allra uppáhaldstónskáldum. Hún er algjört augnakonfekt, sögusviðið í París, allir búningarnir og dansatriðin. Þegar mér finnst mig vanta innblástur þá horfi ég aftur á hana og fyllist innblæstri,“ sagði Laufey um myndina. Önnur myndin sem Laufey nefndi var Pixar-teiknimyndin The Incredibles (2004) um ævintýri Parr-ofurhetjufjölskyldunnar í leikstjórn Brad Bird með Craig T. Nelson og Holly Hunter í aðalhlutverkum. „Hún er bara svo skemmtileg og virkilega vel gerð. Ég elska söguna. Hún er mjög smart, „mid-century“-arkitektúrinn er svo smart og algjörlega stórkoslegur. Mig langar til að flytja inn í húsið þeirra,“ sagði Laufey. Þriðja myndin sem hún nefndi var rómantíska gamanmyndin You've Got Mail (1999) í leikstjórn Noru Ephron og með Tom Hanks og Meg Ryan í aðalhlutverkum. „Við erum á Upper West Side, svo þetta er allt mjög viðeigandi. Fyrir mér er þetta allra besta kósýmyndin. Ég ólst upp við að horfa á hana, ég elska tónlistina, togstreituna og vinina sem verða að elskendum. Þetta er eiginlega fullkomin mynd og ég elska Tom Hanks og Meg Ryan,“ sagði Laufey. Tom Hanks og Meg Ryan í You've Got Mail. Fjórða og síðasta mynd Laufeyjar var ástardramað Past Lives (2023) í leikstjórn Celine Song, með Gretu Lee og Teo Yoo í aðalhlutverkum. „Hugmyndin um hvað ef, að snúa aftur og skoða samband sem þú yfirgafst þegar þú varst yngri og fylgdir ekki alveg eftir. Hún snýr upp á hjarta manns á mjög sérstakan hátt. Það er ekki eitt óþarft orð í kvikmyndinni og það er heldur ekki mikið sagt, ef það meikar sens. Allt er á sínum stað, sögusviðið í New York,“ sagði hún „Ætli New York-myndir séu ekki ofarlega á baugi hjá mér,“ bætti hún síðan við. „Ég trúi ekki að ég hafi fengið mitt augnablik en ég er svo glöð,“ sagði hún að lokum. Viðtalið í heild sinni má sjá hér að neðan: View this post on Instagram A post shared by Letterboxd (@letterboxd)
Bíó og sjónvarp Hollywood Laufey Lín Mest lesið Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ Lífið Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Lífið Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Lífið Lækna-Tómas og Ármann skemmtu sér á safninu Menning Barnaspítalabindi Billy stal senunni Tíska og hönnun Eva Marie Saint er látin Lífið „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Lífið Kristrún valdi Victoriu Beckham Tíska og hönnun „Ég geri bara ráð fyrir því að fólk sé búið að gleyma mér“ Tónlist Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Lífið Fleiri fréttir Hrútar orðnir að kóreskum kálfum La Gradiva hlaut Gullna lundann „Þetta eru verstu fréttir sem ég hef fengið á ævi minni“ Gengst loksins við fjörutíu ára gömlu ástarævintýri með Turner Leikur í myndinni en skilur ekki nokkurn skapaðan hlut Bransafólk í blússandi fíling Hasar, húmor og hryllingur til að hámhorfa í haust Hjónin David Leitch og Kelly McCormick hlutu heiðursverðlaun RIFF Hlaut óvænt heiðursverðlaun RIFF Gugga í gúmmíbát handtekin á frumsýningu „Þetta snýst um líf og dauða“ Níu bíómyndir sem berjast um heitustu verðlaunin Gömul leyndarmál koma upp á yfirborðið Streymisveitan Apple TV loksins á Íslandi Hinsta ferð Johns Snorra á hvíta tjaldið Sjónvarp Símans opnar veitu helgaða bresku sjónvarpsefni Sögulegur tvöfaldur sigur á Emmy-verðlaunum Af TikTok á skjáinn Carla Jeffery látin 33 ára að aldri Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Jörðin undir fótum okkar framlag Íslands til Óskarsverðlauna Alexander Skarsgård heiðraður á RIFF Klaufskar löggur, kvartanir yfir kynlífi og kúkur á húddi Sjá meira