„Klopp er tvímælalaust rétti maðurinn“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 23. júlí 2026 15:32 Jürgen Klopp er að ganga frá samningum við þýska sambandið um að taka við landsliðinu. Getty/Harry Langer Herbert Hainer, forseti Bayern München, er ánægður með plön þýska sambandsins því hann telur Jürgen Klopp vera rétta manninn fyrir karlalandslið Þýskalands í fótbolta. „
Mér finnst þetta góð lausn,“ sagði Hainer við fréttamenn á miðvikudag. „Þegar litið er á frammistöðu landsliðsins á síðustu þremur heimsmeistaramótum þarf það núna hvatningu og tilfinningu fyrir nýju upphafi. Klopp er tvímælalaust rétti maðurinn,“ sagði Hainer við þýsku fréttastofuna DPA en Yahoo Sports segir frá. Hinn 59 ára gamli Klopp ætlar að öllum líkindum að snúa aftur í þjálfun og reyna að rífa upp þýska landsliðið sem hefur ollið vonbrigðum á hverju stórmótinu á fætur öðru. Viðræður standa yfir og er vilji hjá báðum að semja. Herbert Hainer supports the appointment of Jürgen Klopp as coach of the German national team:"What's needed now is motivation, a fresh start, and a positive atmosphere. We have good footballers, and everything needs to be organized. And I believe that Jürgen Klopp is absolutely… pic.twitter.com/Vev3hC7cFB— Bayern Echo (@BayrnEcho) July 22, 2026 Hainer lítur á leikmannahópinn sem er í boði og ferilskrá Klopps sem góða blöndu sem er líkleg til afreka. „Við eigum góða fótboltamenn. Ég tel að Jürgen Klopp sé tvímælalaust rétti maðurinn. Hann hefur náð gríðarlegum árangri með öllum félögunum sem hann hefur starfað hjá, Mainz, Dortmund og Liverpool,“ sagði Haine „Hann náði stuðningsmönnunum á sitt band. Hann náði leikmönnunum á sitt band og lyfti öllu félaginu í hvert skipti. Ég held að það myndi líka gera þýska landsliðinu gott,“ sagði Haine Síðan Julian Nagelsmann yfirgaf Þýskaland eftir vonbrigðin á HM gegn Paragvæ hefur Jürgen Klopp verið augljós fyrsti kostur fyrir þýska knattspyrnusambandið. Áður staðfesti Klopp hjá MagentaTV að hann hefði náð samkomulagi við Red Bull, sem myndi gefa honum tækifæri til að taka við sem landsliðsþjálfari.
Þýski boltinn EM 2028 í fótbolta Mest lesið Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Fótbolti Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Fótbolti Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Fótbolti Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Leitast eftir óprenthæfri hvatningu Sport Gómuð við gróft svindl í Berlín Sport Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Íslenski boltinn Uppgjörið: Færeyjar - Ísland 0 - 2 | Umspilssæti Íslendinga staðreynd Fótbolti Fleiri fréttir Leggur skóna á hilluna Andar léttar: Skilorðsbundið bann fyrir njósnirnar Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Upp um eitt sæti á heimslistanum Rekinn frá Tyrkjum Arteta framlengir við Arsenal Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Dregið á föstudag: Sjáðu mörk og fögnuð ungu strákanna okkar Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Kveðjubréf frá Kidda Steindórs Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Fékk að fara á fyrstu A-landsliðsæfinguna á afmælisdaginn Fagnar stiginu: „Ég var að fíla Eistana“ „Bara lét okkur heyra það í hálfleik“ „Svo lengi sem ég get hlaupið vil ég spila fyrir Ísland“ „Hefðum tapað ef Hákon væri ekki í markinu“ „Það sem svíður mest“ Uppgjörið: Eistland - Ísland 0-0 | Markalaust en strákarnir á toppnum Einkunnir Íslands: Takmörkuð gæði í Tallinn Ronaldo segir þjálfarann hafa svikið sig Unnu stórsigur og komu Íslandi í umspil Króatía - Spánn 2-1 | Varamaðurinn bjargaði sigri fyrir Spán Kane með tvennu í öruggum sigri Byrjunarlið Íslands: Fimm breytingar og Gylfi inn Uppgjörið: Færeyjar - Ísland 0 - 2 | Umspilssæti Íslendinga staðreynd Leikdagur í Tallinn: Hitað upp á Íslandstorgi fyrir mikilvægan leik Skrýtinn leiktími og leikmenn því ekki með fulla stjórn Af hverju er svona mikilvægt að vinna riðilinn? Sjá meira