Finnur til með leikmönnum: „Síðustu mánuðir verið erfiðir“ Valur Páll Eiríksson skrifar 18. júlí 2026 22:38 Chris Brazell segist finna til með leikmönnum Vals þessa dagana. Valur Chris Brazell stendur frammi fyrir mikilli áskorun sem þjálfari Vals eftir þriðja tap liðsins í röð í kvöld. Fram vann 3-2 sigur á Hlíðarenda og Brazell fer ekki í grafgötur með stöðuna sem lið hans er í. „
Þetta eru vonbrigði. Það er ekki að segja að við höfum átt skilið að vinna. Þetta var villtur leikur, sérstaklega í lokin eftir rauða spjaldið,“ segir Brazell við Sýn Sport og Vísi eftir leik. Fram rúllaði yfir Valsmenn stærstan hluta fyrri hálfleiks og hefði getað verið 5-1 yfir í hléi, en staðan var aðeins 3-1. Valsmenn minnkuðu muninn en fengu svo rautt spjald þegar 20 mínútur lifðu leiks. Þrátt fyrir liðsmuninn var Valur líklegri á þeim lokakafla leiksins. „En eins og í síðustu viku finn ég fyrst og fremst til með strákunum. Þeir eru að fara í gegnum erfiða tíma, síðustu vikur og jafnvel mánuðir hjá félaginu hafa verið erfiðir. Þetta tekur á þá en þeir gefa samt allt í þetta. Maður sá það í lokin að þeir tóku yfir leikinn þrátt fyrir að vera aðeins með tíu leikmenn,“ segir Brazell og bætir við: „Þetta eru vonbrigði, en fyrst og fremst fyrir þá vegna þess hvað þeir lögðu mikið í þetta. En þrátt fyrir að það virðist sem dökkt ský sé yfir núna er ég viss um að það birti til fljótlega,“ „Vonbrigðin eru að þetta eru ekki einstaklingsmistök heldur samansafn mistaka. Þetta eru mörk sem er einfalt að koma í veg fyrir en það er auðveldara að segja það en framkvæma það í þessari stöðu sem við erum í,“ „Í hvert skipti sem við fáum á okkur mark þessa dagana er það þyngra högg en það þarf að vera. Mistökin eru ekki beint vonbrigði heldur frekar að á þeim kafla leiksins fannst mér leikmenn ekki gefa sig alla í að klára sitt,“ „En það sem við sáum í síðari hálfleiknum var akkúrat öfugt við fyrri hálfleikinn. Þeir brugðust við og glímdu ótrúlega vel við rauða spjaldið og gerðu spennu úr þessu í lokin,“ „Ég held að Rúnar fallist á það að þegar komið var í lok leiks áttum við skilið að jafna. Mistök eru hluti af fótbolta, sérstaklega þegar sjálfstraustið er lágt og gengið slæmt. En ég get ekki sett út á strákana og það sem þeir gáfu í þetta í dag,“ segir Brazell. Nýtur áskorunarinnar Hann sagði eftir 2-0 tap fyrir FH í síðasta leik að liðið glímdi við skort á sjálfstrausti. Það er mikil áskorun að snúa við blaðinu. „Þetta er mikil áskorun. Ef ég á að vera hreinskilinn er þetta áskorun sem ég nýt vel, þó það líti ekki endilega út fyrir það. Það er heiður að starfa fyrir þetta félag og með þessum leikmönnum, jafnvel í þann stutta tíma sem það starf varir,“ „Ég mun ekki vorkenna sjálfum mér og ekki strákarnir ættu ekki að gera það heldur. Þetta er mikil áskorun, ekki áskorun sem við vildum endilega glíma við, en við þurfum að takast á við hana og ef við höldum okkar góðu nálgun í gegnum þessa erfiðleika er ég viss um það að við verðum reynslunni ríkari og komum sterkari út hinu megin,“ segir Brazell. Brazell var þá spurður út í leikmannamarkaðinn en segist ekkert hafa með leikmannakaup að gera. Þau mál liggi hjá æðri stjórnendum innan félagsins.
Valur Besta deild karla Fram Mest lesið Endurkomusigur hjá City í fyrsta leik Enski boltinn Haaland snoðaði sig fyrir fyrsta leik í enska Enski boltinn KSÍ og Norðurlöndin lýsa yfir vantrausti á Infantino Fótbolti Kynlífsleikföngum aftur kastað inn á völlinn Körfubolti Myndasyrpa frá Reykjavíkurmaraþoninu: Bleyta, bætingar og bros Sport Newcastle - Liverpool | Rauði herinn heimsækir skjórana Enski boltinn Sjáðu hvernig Hull og Brentford fóru með United og Spurs og öll mörkin úr enska Enski boltinn Sigurvegarar krýndir í Reykjavíkurmaraþoninu Sport Algjört hrun í fyrsta leik hjá Aston Villa Enski boltinn Harkalegur árekstur hjá Verstappen á heimaslóðum Formúla 1 Fleiri fréttir ÍA - FH | Heldur sigurganga Skagamanna áfram eða nær FH vopnum á ný? Keflavík - ÍBV | Heimamenn vilja halda sér í efri hlutanum KA - KR | Hvað gerir Eiður Smári í nýju starfi fyrir norðan? Stjarnan - Þór | Nýir menn við stjórnvölinn hjá Stjörnunni Sara skoraði tvö og Haukar fóru upp í annað sætið Njarðvíkingar stöðvuðu sigurgöngu Húsvíkinga Ísfirðingar geta andað léttar HK vann enn einn heimaleikinn og Fylkir flengdi Grindavík Sjáðu Bergdísi bjarga botnliðinu, kraftaverk Lillýar og óheppni fyrirliðans „Kærkomið að fá eitt svona mark“ „Ég skora náttúrulega ekki oft þannig að þetta er eiginlega kraftaverk“ „Ég þekki náttúrulega Ásdísi svolítið vel“ Sjáðu Eið Smára stýra sinni fyrstu æfingu með KA Uppgjörið: FH - Víkingur R 0-1 | Magnaður sigur Víkinga Uppgjörið: Þór/KA - Valur 0-1| Valskonur úr fallsæti Uppgjörið: ÍBV - Þróttur 1-2 | Ekki góð endurkoma BBC birtir innslag um sögulegt einvígi KR og Liverpool Strippaði á Kópavogsvelli fyrir Bestu deildina Sjáðu mörkin: Útsendari FH refsaði toppliðinu og Ása Björg með sýningu „Hún fær fullt frelsi til að fara í öll skógarhlaup sem henni dettur í hug“ „Til skammar á Bestu deildar stigi að vökva ekki völlinn“ Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - Fram 4-0 | Unnu Fram í þriðja sinn í sumar Uppgjörið: Stjarnan - Breiðablik 2-0 | Garðabærinn með hreðjatak á Kópavogi Aðalþjálfarar KFG stýra Stjörnunni út tímabilið „Erum peppaðir í að spila þennan leik“ Stjarnan rak þjálfarann í annað sinn í sumar Eiður Smári þjálfar KA Mögnuð þrenna Köru í Keflavík Kara með þrennu fyrir KR og Tindastóll fallið Hvetur fólk til að sjá „skemmtilegasta Keflavíkurlið í mörg ár“ Sjá meira