Kastaði skó í mótherja í miðjum leik Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 13. júlí 2026 22:48 Betnijah Laney-Hamilton var send snemma í sturtu fyrir að kasta skó í mótherja sinn. Getty/Eakin Howard Það gekk mikið á í leik Toronto Tempo og New York Liberty í WNBA-deildinni í körfubolta um helgina en körfuboltakonan Bethinjah Laney-Hamilton var rekin út úr húsi eftir að hafa kastað skó í mótherja.
Toronto Tempo hafði betur gegn Liberty, 93-91, en þegar 1:48 var eftir af leiknum missti Jonquel Jones, miðherji Liberty, skóinn sinn. Laney-Hamilton kastaði honum og hæfði Marina Mabrey, leikmann Toronto, í bakið. Betnijah Laney-Hamilton was ejected after throwing a shoe at Marina Mabrey.Earlier in the game she was assessed a flagrant 1 foul for her arm hitting Mabrey's face. pic.twitter.com/CLybbrDgGM— espnW (@espnW) July 12, 2026 Þetta var önnur tæknivilla Laney-Hamilton í leiknum og dómarar ráku hana út úr húsi. Chris DeMarco, þjálfari Liberty, sagði eftir leikinn að Laney-Hamilton hefði verið að reyna að kasta skónum aftur til Jones og hefði ekki ætlað að hitta Mabrey. Mabrey sagðist einnig telja að það hefði verið raunin. „Ég þurfti aðeins að ná andanum,“ sagði Mabrey um viðbrögð sín þegar skórinn hæfði hana. „En ég held að hún hafi í raun bara verið að reyna að koma skónum aftur til JJ. En ég tek vítaskotið.“ Marina Mabrey spoke after a chippy game between her and Betnijah Laney-Hamilton. pic.twitter.com/OYaLrQYvse— espnW (@espnW) July 13, 2026 Mabrey og Laney-Hamilton höfðu átt í útistöðum allan leikinn þar sem þær dekkuðu hvor aðra; báðar fengu tæknivillu í þriðja leikhluta fyrir deilur þeirra á milli. Kevin Fahy dómari útskýrði brottvísun Laney-Hamilton fyrir blaðamanni á staðnum og sagði að hún hefði „tekið upp skó og kastað honum í Marinu Mabrey, og hann hæfði Marinu í bakið, svo hún fékk sína aðra tæknivillu og var í kjölfarið vikið úr körfuboltaleiknum.“ Sandy Brondello, þjálfari Toronto, sagði að hún teldi að það hefði verið óviljandi að skórinn hæfði Mabrey en það má sjá atvikið hér í fréttinni. Betnijah Laney-Hamilton just threw Jonquel Jones' shoe at Marina Mabrey... 🤨 pic.twitter.com/rwKVP6wfx8— TSN (@TSN_Sports) July 12, 2026
WNBA Mest lesið Endurkomusigur hjá City í fyrsta leik Enski boltinn Haaland snoðaði sig fyrir fyrsta leik í enska Enski boltinn KSÍ og Norðurlöndin lýsa yfir vantrausti á Infantino Fótbolti Kynlífsleikföngum aftur kastað inn á völlinn Körfubolti Myndasyrpa frá Reykjavíkurmaraþoninu: Bleyta, bætingar og bros Sport Sjáðu hvernig Hull og Brentford fóru með United og Spurs og öll mörkin úr enska Enski boltinn Sigurvegarar krýndir í Reykjavíkurmaraþoninu Sport Sigurmark á lokamínútunni í fyrsta leiknum í endurkomu Mourinhos Fótbolti Vesen hjá Palace: Mateta heldur því fram að lokaár samningsins sé ógilt Enski boltinn Harkalegur árekstur hjá Verstappen á heimaslóðum Formúla 1 Fleiri fréttir Tindastóll tekur slaginn aftur í Evrópukeppni Kynlífsleikföngum aftur kastað inn á völlinn ÍR semur við sænsk-bandarískan bakvörð Strákarnir réðu ekki við Finnana Ísland tapaði fyrir Portúgal „Þurfum að gera skítaverkin betur en andstæðingurinn“ Sextán ára nýliði í landsliðinu: „Við erum að velja þær af því þær eru svo góðar“ ÍR semur við bandarískan bakvörð Íslenskan öll að koma til hjá nýliða landsliðsins „Takk fyrir mig körfubolti“ Pablo Bertone aftur í Val Keflavík heldur áfram að styrkja sig Hópurinn klár fyrir næsta skref að HM Berglind Katla valin í A-landsliðið aðeins 16 ára Yfir milljón í boði á nýrri íslenskri mótaröð Keflavík bætir við sig Bandaríkjamanni Krakkarnir bjuggu til sögulegt sumar fyrir íslenskan körfubolta Stjarnan fær 208 sentímetra miðherja Strákarnir sekúndum frá gullinu eftir frábæra frammistöðu „Hann var fyndinn, hann var hávær og hann var alltaf að grínast“ Strákarnir í úrslitaleikinn og upp í A-deild eftir risasigur Sló tvo leikmenn í andlitið og lét vísa áhorfanda út „Hinn fullkomni keppnismaður“ leggur skóna á hilluna Keyrðu yfir Svartfellinga undir lokin og undanúrslitin bíða Gætu rekið íslenska ríkissjóðinn fyrir kaupverðið á Lakers Sturla Böðvarsson til KR Sjáðu tilþrif Berglindar úr úrslitaleiknum: Skoraði 46 meira en næsti leikmaður á EM Lakers selt fyrir metupphæð Berglind fékk Gullboltann Stórbrotin endurkoma næstum því nóg í úrslitaleiknum Sjá meira