Fyrsta mynd umdeildrar gervigreindarleikkonu í framleiðslu Magnús Jochum Pálsson skrifar 6. júlí 2026 16:30 Gervigreindarfyrirbærið Tilly Norwood fer fyrir sinn fyrstu kvikmynd í fullri lengd en framleiðsla hennar er hafin. Fyrsta kvikmynd „gervigreindarleikkonunnar“ Tilly Norwood, sem uppskar gríðarlega reiði í kvikmyndabransanum þegar hún kom fyrst fram á sjónarsviðið í fyrra, er farin í framleiðslu. Myndin heitir Misaligned og er lýst sem gamandrama um gervigreindarveru.
Norwood var sköpuð á síðasta ári af Xicoia, gervigreindardeild framleiðslufyrirtækisins Particle6 Group, og í september það ár bárust fréttir af því að hún væri komin á mála hjá umboðsskrifstofu. Vakti það úlfúð hjá mörgum í kvikmyndabransanum víða um heim. Hérlendis var Norwood töluvert til umræðu og sagði leikkonan Katla Njálsdóttir meðal annars að hún ætti erfitt með að sjá fyrir sér tölvu skipa sér í leiklist því hana skorti helstu eiginleika leikarastarfsins sem byggist á tilfinningum og lífsreynslu. Sjá einnig: Leikarar furða sig á Tilly Norwood Þá sagði leikstjórinn Baldvin Z í samtali við Síðdegisútvarpið að gervigreindarleikarar væru ekki spennandi því fegurðin í góðum leik fælist í hinu óvænta. Viðtalið við hann vakti þó einna helst fyrir óhepileg ummæli hans um að á tökustað þyrfti maður að vera tilbúinn fyrir alls konar uppákomur, til dæmis leikkonu á blæðingum sem væri í vondu skapi. Gervigreind sem fær mennska eiginleika Framleiðslufyrirtækið Particle6 hefur nú tilkynnt að framleiðsla sé hafin á kvikmyndinni Misaligned sem er lýst sem gamandrama og uppvaxtarsögu sem er full af „tilvistarlegum gervigreindarkaos“. Myndin gerist í svokölluðum Tillyheimi (e. Tillyverse) sem er súrrealískur stafrænn heimur staðsettur í skýinu. Í kvikmyndinni verður Tilly líkamslaus gervigreind sem býr hvorki yfir æsku né raunverulegum minningum en hefur aðgeng að reynslu allra annarra. Saga hennar fer á flug þegar stjórnlaus þjarkur af myrkranetinu sannfærir hana um að þróa með sér þrár, hvatir og væntingar, sem gerir að verkum að hún verður mennskari. Kvikmyndin er fyrsta gervigreindarmyndin í fullri lengd frá Particle6 en talsmenn þess segja myndina framleidda af blöndu hefðbundinna kvikmyndagerðarmanna, leikstjóra, handritshöfuna og klippara, og gervigreindarsérfræðinga. Skjáskot af Tilly Norwood. „Starfsemi okkar á þessu ári hefur sýnt nokkuð sem okkur hefur alltaf grunað. Gervigreind getur stutt við viðurkennda kvikmyndagerð en aðeins með haldgóðu magni af mennsku handverki, færni, dómgreind og tíma,“ sagði Eline van der Velden, forstjóri og stofnandi Particle 6. „Það er ekki takmörkun tækninnar heldur markmið hennar. Kvikmyndagerðarfólkið sem mun þrífast næsta áratuginn verður það sem getur komið með áratugi af kvikmyndagerðarinnsæi að þessum tólum og í Misaligned erum við að vinna þá vinnu á stórum skala,“ „Kvikmyndin verður algjörlega fyndin, kaótísk og sjálfsmeðvituð, mjög Tilly-leg,“ sagði van der Velden um myndina og bætti við: „Undir niðri er þó eitthvað dýpra um sjálfsvitund, leikframmistöðu og mennska ótta okkar við gervigreind. Og já, listin mun sannarlega líkja eftir raunveruleikanum.“ Kvikmyndin Misaligned er enn á frumstigi framleiðslu og á enn eftir að ráða í helstu hlutverk framleiðslunnar.
Hollywood Bandaríkin Gervigreind Bíó og sjónvarp Tengdar fréttir Will Smith sakaður um að falsa áhorfendur með gervigreind Will Smith hefur verið sakaður um að nota gervigreind til að fjölga aðdáendum sínum í nýju myndbandi af yfirstandandi tónleikaferðalagi hans. 26. ágúst 2025 09:28 Gervigreindarfyrirsæta í Vogue vekur ugg Gervigreindin teygir anga sína sífellt víðar og nú síðast inn í heim hátískunnar. Lesendur Vogue ráku nýverið upp stór augu þegar ein opna tímaritsins innihélt fagra ljóshærða fyrirsætu sem reyndist eintómt gervigreindarfals. 26. júlí 2025 15:17 Þungaður LeBron leggst þungt á LeBron Stofnendur gervigreindartólsins Interlink segja körfuboltastjörnuna LeBron James hafa sigað lögfræðiteymi sínu á fyrirtæki þeirra vegna gervigreindarmyndbanda af James þar sem má sjá hann bæði óléttan og í hafmeyjulíki. 25. júlí 2025 10:58 Mest lesið Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ Lífið Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Lífið Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Lífið Lækna-Tómas og Ármann skemmtu sér á safninu Menning Barnaspítalabindi Billy stal senunni Tíska og hönnun Eva Marie Saint er látin Lífið „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Lífið Douglas gengst við enn einu framhjáhaldinu Bíó og sjónvarp Kristrún valdi Victoriu Beckham Tíska og hönnun „Ég geri bara ráð fyrir því að fólk sé búið að gleyma mér“ Tónlist Fleiri fréttir Hrútar orðnir að kóreskum kálfum La Gradiva hlaut Gullna lundann „Þetta eru verstu fréttir sem ég hef fengið á ævi minni“ Gengst loksins við fjörutíu ára gömlu ástarævintýri með Turner Leikur í myndinni en skilur ekki nokkurn skapaðan hlut Bransafólk í blússandi fíling Hasar, húmor og hryllingur til að hámhorfa í haust Hjónin David Leitch og Kelly McCormick hlutu heiðursverðlaun RIFF Hlaut óvænt heiðursverðlaun RIFF Gugga í gúmmíbát handtekin á frumsýningu „Þetta snýst um líf og dauða“ Níu bíómyndir sem berjast um heitustu verðlaunin Gömul leyndarmál koma upp á yfirborðið Streymisveitan Apple TV loksins á Íslandi Hinsta ferð Johns Snorra á hvíta tjaldið Sjónvarp Símans opnar veitu helgaða bresku sjónvarpsefni Sögulegur tvöfaldur sigur á Emmy-verðlaunum Af TikTok á skjáinn Carla Jeffery látin 33 ára að aldri Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Jörðin undir fótum okkar framlag Íslands til Óskarsverðlauna Alexander Skarsgård heiðraður á RIFF Klaufskar löggur, kvartanir yfir kynlífi og kúkur á húddi Sjá meira
Will Smith sakaður um að falsa áhorfendur með gervigreind Will Smith hefur verið sakaður um að nota gervigreind til að fjölga aðdáendum sínum í nýju myndbandi af yfirstandandi tónleikaferðalagi hans. 26. ágúst 2025 09:28
Gervigreindarfyrirsæta í Vogue vekur ugg Gervigreindin teygir anga sína sífellt víðar og nú síðast inn í heim hátískunnar. Lesendur Vogue ráku nýverið upp stór augu þegar ein opna tímaritsins innihélt fagra ljóshærða fyrirsætu sem reyndist eintómt gervigreindarfals. 26. júlí 2025 15:17
Þungaður LeBron leggst þungt á LeBron Stofnendur gervigreindartólsins Interlink segja körfuboltastjörnuna LeBron James hafa sigað lögfræðiteymi sínu á fyrirtæki þeirra vegna gervigreindarmyndbanda af James þar sem má sjá hann bæði óléttan og í hafmeyjulíki. 25. júlí 2025 10:58