Íslenskt Love Island gæti verið tekið upp á Möltu Agnar Már Másson og Oddur Ævar Gunnarsson skrifa 1. júlí 2026 14:29 Mun íslensk skutla mæta í villuna? Úr safni Síminn hefur til skoðunar að framleiða íslenska útgáfu af raunveruleikaþáttunum Love Island. Til skoðunar er að taka upp þættina á Möltu. Samtal er sagt vera í gangi á milli Símans, Sagafilm og bresku sjónvarpsstöðvarinnar ITV vegna þáttanna.
Raunveruleikaþættirnir Love Island hófu göngu sína á bresku sjónvarpsstöðinni ITV árið 2005 og ganga þættirnir út á að hópur ungs fólks dvelur saman á eyju þar sem því er falið að finna ástina, með tilheyrandi usla. Birkir Ágústsson, framkvæmdastjóri miðla hjá Símanum, staðfestir í svari við fyrirspurn fréttastofu að til skoðunar sé að koma á fót íslenskri útgáfu af Love Island. Sjá einnig: Raunveruleikaþættir „Love Island er auðvitað eitt allra vinsælasta raunveruleika-format heims og því eðlilegt að slíkt verkefni komi til skoðunar þegar verið er að meta stærri sjónvarpsverkefni fyrir íslenskan markað,“ skrifar Birkir í svari til Vísis. Samtal við Sagafilm og ITV Síminn hafi að undanförnu kannað möguleikann á íslenskri útgáfu af Love Island í samvinnu við íslenska framleiðslufyrirtækið Sagafilm og ITV. „Það samtal er í gangi og hluti af þeirri vinnu snýr að því að kanna hvort, hvernig og hvar væri raunhæft að ráðast í slíka framleiðslu fyrir íslenskan markað,“ skrifar hann. Ástareyjan svokallaða hefur notið gríðarlegra vinsælda og getið af sér fjölda hliðarþáttarraða í fleiri löndum, svo sem í Bandaríkjunum, Svíþjóð og á Möltu svo eitthvað sé nefnt, en einnig þáttarröðina Love Island All Stars þar sem stjörnur úr fyrri þáttaröðum taka þátt. Samfélagsmiðlar loga iðulega eftir hvern nýjan þátt en þeir eru gefnir út daglega meðan á hverri þáttaröð stendur. Upphaflega voru þættirnir aðeins teknir upp og sýndir á sumrin en nú eru einnig sérstakar vetrarþáttaraðir. Verður Íslendingavillan á Möltu? Þættirnir gerast allir á svokallaðri „villu“ þar sem þátttakenur dvelja út seríuna alla. Ísland verður ólíklega sú ástareyja sem vísað er til í heiti þáttanna, heldur verður hlýrri staður líklegast fyrir valinu. „Í því samhengi hefur meðal annars verið skoðað að taka upp íslenska útgáfu á eyjunni Möltu, enda hafa fleiri þjóðir nýtt sér frábæra aðstöðu þar fyrir Love Island-framleiðslu,“ bætir Birkir hjá Símanum við. Hann tekur þó fram að slíkar þreifingar séu hluti af undirbúnings- og greiningarvinnu en ekki endanleg staðfesting á framleiðslu, tökustað eða tímasetningu. Yfirleitt hafa þátttakendur í Love Island dvalið í svokallaðri villu á Mallorca, en þetta yrði ekki í fyrsta sinn sem þættirnir myndu eiga sér stað á Möltu, þar sem sögusvið Love Island Malta var einmitt þar. Ekki liggur fyrir hverjir keppendur verða, ef af þessari þáttaröð verður og ITV hefur ekki svarað fyrirspurn Vísis vegna málsins.
Raunveruleikaþættir Bíó og sjónvarp Hollywood Ástin og lífið Malta Kvikmyndagerð á Íslandi Mest lesið Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ Lífið Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Lífið Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Lífið Lækna-Tómas og Ármann skemmtu sér á safninu Menning Barnaspítalabindi Billy stal senunni Tíska og hönnun Eva Marie Saint er látin Lífið „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Lífið Kristrún valdi Victoriu Beckham Tíska og hönnun „Ég geri bara ráð fyrir því að fólk sé búið að gleyma mér“ Tónlist Svona getur lyfjaskammtarinn einfaldað daglegt líf Lífið samstarf Fleiri fréttir Hrútar orðnir að kóreskum kálfum La Gradiva hlaut Gullna lundann „Þetta eru verstu fréttir sem ég hef fengið á ævi minni“ Gengst loksins við fjörutíu ára gömlu ástarævintýri með Turner Leikur í myndinni en skilur ekki nokkurn skapaðan hlut Bransafólk í blússandi fíling Hasar, húmor og hryllingur til að hámhorfa í haust Hjónin David Leitch og Kelly McCormick hlutu heiðursverðlaun RIFF Hlaut óvænt heiðursverðlaun RIFF Gugga í gúmmíbát handtekin á frumsýningu „Þetta snýst um líf og dauða“ Níu bíómyndir sem berjast um heitustu verðlaunin Gömul leyndarmál koma upp á yfirborðið Streymisveitan Apple TV loksins á Íslandi Hinsta ferð Johns Snorra á hvíta tjaldið Sjónvarp Símans opnar veitu helgaða bresku sjónvarpsefni Sögulegur tvöfaldur sigur á Emmy-verðlaunum Af TikTok á skjáinn Carla Jeffery látin 33 ára að aldri Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Jörðin undir fótum okkar framlag Íslands til Óskarsverðlauna Alexander Skarsgård heiðraður á RIFF Klaufskar löggur, kvartanir yfir kynlífi og kúkur á húddi Sjá meira