Spurður út í Adam Ægi: „Getur vel verið að við spjöllum við hann“ Árni Gísli Magnússon skrifar 28. júní 2026 21:09 Sigurður Höskuldsson, þjálfari Þórs Akureyri Vísir/Pawel Sigurður Höskuldsson, þjálfari Þórs, var afar svekktur eftir 4-2 tap gegn Val á heimavelli eftir að lið hans hafði jafnað leikinn í 2-2 í síðari hálfleik en fengið á sig mörk í lokin.
Ég ímynda mér að þú sért nokkuð niðurbrotinn eftir þetta? „Já þetta var svekkjandi, komum til baka í seinni hálfleik og fannst svona þessi leikur jafnvel mögulega vera detta okkar megin en ævintýralega klaufalegt að vera fá á sig svona mark úr innkasti og allt það. Þannig að já mjög svekktur.“ Mikill meðbyr var með Þórsliðinu eftir að hafa jafnað leikinn en Valur skorar svo undir lok venjulegs leiktíma og snýr leiknum aftur sé í vil. Sigurður vill ekki meina að það sé saga sumarsins að svona leikir falli ekki með þeim. „Nei nei ekkert þannig, ég held að þetta sé í fyrsta skipti sem þetta gerist, að við séum einhvern veginn í svona að fá þetta, við erum nú yfirleitt svona á leiðinni í að jafna eða eitthvað svoleiðis. Ég ætla ekki að vera eitthvað, saga sumarsins, nei bara klaufagangur að fá þetta mark á sig þegar svona einhvern veginn mómentið var með okkur til þess að sækja leikinn.“ Ingimar Arnar Kristjánsson og Sigfús Fannar Gunnarsson komu inn á í hálfleik hjá Þór og við það færðist Christan Jakobsen á miðjuna sem virtist hjálpa liðinu mikið auk þess að fá kraftinn fram á við hjá Ingimar og Sigfúsi. „Já já, miklu betri en í fyrri hálfleik. Þorum ekkert að vera með boltann, þorum ekkert að spila, og þess vegna leit kannski út fyrir að þeir væru miklu grimmari og flottari en við en bara sendum alltaf á þá. Breyttum því í síðari hálfleik, bað bara menn að gjöra svo vel að vilja vera með boltann og það var allt annað Þórslið sem mætti hérna í seinni hálfleik.“ Þór situr á botninum eftir leiki dagsins og nokkuð ljóst að liðið þarf að styrkja sig þegar leikmannaglugginn opnar. „Nei, ekkert í hendi, við erum bara að skoða og við fáum inn tvo, þrjá karla.“ Á þessari stundi í viðtalinu gekk Adam Ægir Pálsson framhjá okkur lafmóður eftir að hafa verið að taka spretti á vellinum ásamt öðrum varamönnum sem komu ekkert eða lítið við sögu í leiknum. Adam Ægir hefur lítið fengið að spila hjá Val og kom ekkert við sögu í dag og því kjörið að spyrja Sigurð hvort hann væri að reyna fá Adam í þorpið. „Nei, sko Adam er samt náttúrulega bara að renna út á samningi í haust. Það getur vel verið að við spjöllum við hann og reynum að fá hann út tímabilið“. Þór mætir KR á heimavelli í næstu umferð í þann mund sem Pollamótið fræga fer fram á Þórssvæðinu og verður því vonandi alvöru stemning á pöllunum. „Bara eins og KR leikirnir eru allir, það verður líf og fjör í þeim leik“, sagði Sigurður að lokum.
Besta deild karla Valur Þór Akureyri Mest lesið Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Fótbolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Fótbolti Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Fótbolti Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Fótbolti Gómuð við gróft svindl í Berlín Sport Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Íslenski boltinn Bakgarðsáskorunin: Leitast eftir óprenthæfri hvatningu Sport Uppgjörið: Færeyjar - Ísland 0 - 2 | Umspilssæti Íslendinga staðreynd Fótbolti Fleiri fréttir Kveðjubréf frá Kidda Steindórs Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Fékk að fara á fyrstu A-landsliðsæfinguna á afmælisdaginn Stóri munurinn á feigum og ófeigum: „Hvað er planið?“ Mikið sem þarf að hugsa um áður en fyrirkomulagi Íslandsmótsins sé breytt Selfoss missir mikið efni Ákvörðun Vals algjörlega galin og það sýnir sig núna Sjáðu fernu Niu og þrennu Ásu í ótrúlegum leik „Við erum alltaf að fara að taka þetta“ Breiðablik - Þróttur 5-4 | Ótrúleg endurkoma meistaranna FH - ÍBV 5-0 | Stórsigur FH sem lagaði markatöluna Sjáðu mörkin sem felldu Víking og Val Uppgjörið: Fram - Valur 1-2 | Valskonur fallnar í fyrsta sinn ,,Mikið í gangi í hausnum núna” „Sorglegt fyrir íslenskan fótbolta“ Uppgjörið: Víkingur R - Þór/KA 0-2 | Björguðu sér og sendu bæði Víking og Val niður um deild Sveppi og mamma hans gætu séð tvö lið falla Enn er penninn á lofti í Laugardal Fékk engar skýringar á mestu vonbrigðum ferilsins Sjáðu þrennu sextán ára Bríetar og hægasta sigurmark ársins Segir skipulagið fáránlegt: „Ekki sanngjarnt að annað liðið sé alltaf að elta“ Bríet Fjóla Bjarnadóttir: „Ég varð að klára þetta með þrennu “ Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - FH 3-2 | Áfall fyrir titilbaráttu FH Uppgjörið: Þróttur R. - Stjarnan 5-1 | Bríet Fjóla með þrennu í stórsigri Þróttar Sorgarferli að sættast við ónýtan skrokk „Þetta er þorpið manns“ Uppgjörið: ÍBV - Breiðablik 1-2 | Blikar verma toppinn Þrjú lið berjast um eitt öruggt sæti en Fram bjargaði sér „Enginn annar sem hafði trú á okkur en við sjálf“ Valur - Víkingur R. 1-1 | Valur enn á lífi Sjá meira