Lét drauminn rætast á Ítalíu Sigurgeir Þorkelsson skrifar 26. júní 2026 16:51 Svana fann loks draumahúsið eftir að hafa orðið ástfangin af Ítalíu. Innsent „Þetta gerist þegar þú ert ekki að leita,“ segir Svana Símonardóttir sem fann draumahúsið sitt á Ítalíu í fyrra. Að koma í húsið var í fyrstu eins og að stíga í tímavél og ferðast beint aftur til ársins 1970. Kominn var tími á endurbætur sem Svana og eiginmaður hennar Ríkarð réðust í. „
Það var bara eins og einhver hefði labbað út,“ útskýrir Svana. „Við keyptum húsið í ágúst og erum búin að vinna í að gera það upp síðan.“ Svana segir þau hafa sett í fyrsta sæti í endurbótunum „að halda í þennan ítalska sjarma.“ Húsið hefur tekið ótrúlegum breytingum.Innsent Húsið er staðsett í Piedmont-héraði á Ítalíu, í fjallsfæti Alpanna, rétt við smábæ sem heitir Acqui Terme. Svana hafði lengi skimað eftir húsi til að kaupa á Ítalíu en það var ekki fyrr en hún var við það að gefast upp sem draumahúsið kom til hennar. Svana segir að það hafi einfaldlega birst. „Við vorum nýkomin heim frá Ítalíu þar sem við vorum næstum því búin að bjóða í hús. Við vorum búin að vera heima í tvo daga þegar húsið bara hoppaði upp!“ Svana sagði að það væri eins og fyrri eigandi hefði bara gengið út og tíminn hefði síðan staðið í stað. Innsent Svana vissi strax að þetta væri húsið. „Ég sagði bara við manninn minn: Þú verður að fara út! Þú býður í þetta hús.“ Svana hafði samband við fasteignasalann en það var þegar par sem komið var á fremsta hlunn með að bjóða í húsið. Það stóð ekki á svörum: „Ég ætla að bjóða núna. Maðurinn minn kemur á morgun.“ Tíminn hafði staðið í stað í hálfa öld. Innsent Það fór svo að tilboð var lagt inn á föstudegi og samþykkt daginn eftir. Síðan leið einn og hálfur mánuður þar til Svana fékk loks að sjá húsið. Að öðrum kostum ólöstuðum er útsýnið úr húsinu engu líkt. Slakandi litapalletta inn á við og gullfallegt útsýni út á við. Innsent „Við urðum ástfangin af Ítalíu fyrir tíu árum og ákváðum að kaupa okkur hús einn daginn.“ Fyrir og eftir í sjónvarpsstofunni. Innsent Húsið var bókstaflega eins og tímahylki sem færði Svönu og manninn hennar hálfa öld aftur í tímann. Allt það helsta mátti enn finna þar, föt, húsgögn og geymsludraslið. Bjart og fallegt baðherbergi. Innsent Vinafólk Svönu hefur núna einnig heillast af Ítalíu og hafa þau fjárfest í öðru húsi með þeim þar sem endurbætur eru að fara í gang. Svana hvetur þau sem hafa áhuga á að fylgjast með ferlinu til að fylgja sér á Instagram, @svanasimonardottir. Einna mestar breytingar má sjá í borðstofunni sem hýsir nú nýstárlega eldhúsinnréttingu. Innsent Svana segir viðtökur heimafólks hafa verið hlýjar og góðar. Þetta sé pínulítill bær þar sem allir þekki alla og nágrannar birtist með nýbökuð brauð og kirsuber af trjánum. Síðan hafi þau hjónin vingast við manninn sem upprunalega gerði úttekt á húsinu við kaupin og konu hans. Hann hafi í kjölfarið séð um byggingarstjórn yfir endurbótunum hússins og er í dag vingott með þeim hjónum. Útsýnið er engu öðru líkt. Innsent Það er ekki auðsótt að gera upp hús á svæðinu þar sem landslag vínekra í héraðinu er UNESCO-verndað. Þá gilda einnig takmarkanir í gamla bænum sjálfum en sögu hans má rekja auðveldlega aftur á miðaldir og fornminjar má rekja allt aftur til tíma Rómverja þegar bærinn varð þekkt heilsulind. Byggð voru upp mikil baðhýsi og fólk kom víða að til að upplifa hin heitu böð Acqui Terme, en nafn bæjarins vísar einmitt til hinna heitu baða. Alparnir vaka yfir Svönu og fjölskyldu á Ítalíu. Húsið er nú orðið hluti af fjölskyldu Svönu. „Það eru bara skemmtilegar tilviljanir sem réðu þessu,“ segir Svana en hún reynir nú að eyða öllum sínum frítíma þar: sumarfríi, jólum, áramótum og páskum.
Ítalía Íslendingar erlendis Hús og heimili Mest lesið Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ Lífið Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Lífið Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Lífið Lækna-Tómas og Ármann skemmtu sér á safninu Menning Barnaspítalabindi Billy stal senunni Tíska og hönnun Eva Marie Saint er látin Lífið „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Lífið Kristrún valdi Victoriu Beckham Tíska og hönnun „Ég geri bara ráð fyrir því að fólk sé búið að gleyma mér“ Tónlist Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Lífið Fleiri fréttir Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Eva Marie Saint er látin Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Hvað veistu um... íslenska hönnun? Funheit í fimm ára afmæli Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs Tendra friðarsúluna í tuttugasta sinn Elegant herrar selja perlu í 101 Tískudrottningar fögnuðu kærkominni opnun Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Stjörnulífið: „Lukka lífs míns að vera gift þessum“ Fæddist á Íslandi en þurfti áratugi til að fá það staðfest Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Ástæða fyrir því að þau fóru ekki hátt með sambandið Hágrét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn Krakkatía vikunnar: Eurovision, Harry Potter og Mr. Beast Líður betur eftir að hún þurfti að þjóta upp á spítala í miðri útsendingu Haustbingó Blökastsins í beinni Hemmi Gunn hjálpaði Hilmari og Birni Braga að svindla Segir Ríkissjónvarpið bregða fyrir sig fæti Unglingavinnan var tískupallurinn í París Sjá meira