Fjölskylduferð í skemmtigarð tók óvænta stefnu í hitabylgjunni Sigurgeir Þorkelsson skrifar 22. júní 2026 21:36 Hólmfríður Gísladóttir fréttamaður er stödd í rauðri veðurviðvörun í Frakklandi. Samsett Mikil hitabylgja geisar í Evrópu og eru rauðar veðurviðvaranir í gildi á stórum svæðum vegna hita. Áhrif hitabylgjunnar hafa verið gríðarlega mikil í Frakklandi. Í suðausturhluta landsins fundust tvö börn, tveggja og fjögurra ára, látin í bifreið í dag. Hitastig á svæðinu mældist 39 gráður á hádegi.
Júníhitamet fyrir París var slegið í dag þegar hiti mældist 38,4 gráður. Frá hádegi á morgun verður rauð veðurviðvörun í gildi vegna hitans í fimmtíu og fjórum af níutíu og sex sýslum Frakklands (á frönsku départements). Rauðar viðvaranir voru þegar í gildi yfir stóran hluta landsins. Hæst fór hiti í 43,3 gráður í Chateaumeillant í Frakklandi í dag. Fjölmörgum skólum hefur verið lokað auk þess sem lestarsamgöngur liggja víða niðri. Þá er álag mikið á neyðarþjónustu með fjölgun neyðarsímtala og útkalla. Franska blaðið Le Monde greinir frá því að minnst þrettán hafi látið lífið vegna drukknunar í Frakklandi yfir helgina og létust þrír eldri borgarar nærri Bordeaux vegna hitans. Le Monde segir hitabylgjuna fordæmalausa en þegar er ekki fyrr en undir lok vikunnar sem hún sleppir tökunum á Frökkum. Í fréttavakt sinni greinir blaðið frá því að samkvæmt vísindalegum rannsóknum hafi loftslagsbreytingar ýkt upp hitastig bylgjunnar um tvær til fjórar gráður. Fréttamaður Sýnar stödd í Frakklandi Hólmfríður Gísladóttir, fréttamaður Sýnar, er stödd í La Rochelle á vesturströnd Frakklands. Hún segir heimafólk kvíða því að hitabylgjan sé aðeins merki um það sem koma skuli á næstu árum. Rauð veðurviðvörun er í gildi þar sem Hólmfríður er stödd ásamt fjölskyldu sinni í sumarleyfi. „Hitinn í dag náði 39 gráðum sem er sextán gráðum yfir meðalhita fyrir þennan árstíma. Við sjáum mjög vel að þetta veður, sem mig langar að kalla óbærilegt, hefur ekki aðeins áhrif á ferðamenn heldur líka Frakkana sjálfa.“ Miðbærinn sé tómur og verslanir lokaðar. Það fólk sem fari út fyrir hússins dyr leiti á skuggsæla staði líkt og skóglendi. Ferð fjölskyldunnar í skemmtigarð í vikunni sem leið tók óvænta stefnu. „Fyrr í vikunni fórum við í skemmtigarð þar sem við þurftum að koma frönskum hjónum til aðstoðar, eldra fólki sem fékk hitaslag. Það er augljóst að þessi hiti er að hafa mikil áhrif á hið daglega líf.“ Hitabylgjan orsakast af heitu lofti sem streymir til Evrópu sunnan frá Sahara. Hennar var þegar orðið vart í lok síðustu viku og hún heldur áfram að teygja sig norðar og austar á meginlandi Evrópu. Hitabylgjan berst norður yfir Ermarsundið Rauðar veðurviðvaranir taka gildi á Englandi á morgun. Viðvörunin nær til mið- og suðurhluta Englands, meðal annars höfuðborgarinnar London, og suðausturhluta Wales. Varað hefur verið við truflunum á samgöngum og rafveitu vegna veðursins. Spáð er allt að fjörutíu stiga hita og það gæti því gerst að fjögurra ára hitamet landsins falli á morgun. Hitametið var slegið síðast þegar gefin var út rauð veðurviðvörun vegna hita í Bretlandi þegar hiti mældist 40,3 gráður í Coningsby. Á Spáni er yfirleitt svalara í fjalllendari norðurhéruðum landsins en þrátt fyrir það náði hiti 40 gráðum í Baskalandi í dag, einu norðurhéraða landsins. Inn til landsins steig hiti upp í 42 gráður sem er fimm til tíu gráðum yfir meðalhita þessa árstíma. Eins og fram hefur komið mun hitabylgjan teygja sig norður og austur eftir því sem líður á vikuna. Í Belgíu og Hollandi er spáð að hiti fari upp í 37 gráður og í Þýskalandi sunnan- og vestanverðu gæti hann náð 40 gráðum á fimmtudag og föstudag. Hitabylgjan mun áfram teygja sig norðaustur og mun hiti ná þrjátíu gráðum í sunnanverðri Svíþjóð á föstudag og stíga upp í þrjátíu og tvær gráður á laugardag.
Veður Frakkland Loftslagsmál Íslendingar erlendis Hitabylgja í Evrópu í júní 2026 Mest lesið Viðvaranir á viðvaranir ofan Veður Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Styður Repúblikana með tugum milljarða Erlent Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Innlent Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Innlent Segja hálfa milljón hafa tekið þátt Erlent Fjörutíu ár fyrir morðið á Tupac Erlent Skuldar ekkert Innlent Heppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir Innlent Fleiri fréttir Segja hálfa milljón hafa tekið þátt Styður Repúblikana með tugum milljarða Páfinn greindist með lungnakrabbamein Fjörutíu ár fyrir morðið á Tupac Aðgerð páfa gekk vel Staðfestir að Rússar höfðu afskipti af Brexit Sendiherrann beðinn um að segja af sér „Þeir samþykktu, af því að ég segi að þeir samþykktu“ Atkvæðagreiðsla boðuð í þrátefli eftir sænsku kosningarnar Þingkona segist fórnarlamb pólitískra ógnana Trump eftir húsleit Rannsaka dauðsfall í rússíbana í Six Flags Úkraínsku skipi sökkt við strendur Búlgaríu Þurftu að kyrrsetja flugvél vegna veggjalúsa Hafa gert árásir á sex orkumannvirki eftir yfirlýsingu Trump Gull að leysa kókaín af hólmi Stolnu málverkin fundust á bak við vegg Henda mat eftir tölvuárás hitaði kæla upp í fimmtíu gráður Gerðu húsleit hjá þingkonu sem Trump á sökótt við Verðlaunaðir fyrir að smíða hagstjórnartæki samtímans Skaut konu sína, börn og barnabörn Sektaður fyrir að geyma lík foreldranna í frysti í áratugi Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu Vonast til að leysa ráðgátuna um hvarf Ameliu Earhart Tígrisdýrið verður ekki aflífað Rússar ráðist á orkuinnviði þrátt fyrir yfirlýsingu Trumps Fær aukadag til stjórnarmyndunar Kom af fjöllum eftir tilkynningu Trump um orkuvopnahlé Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Leó páfi á leið í aðgerð eftir að hnútur fannst á lunga Vara við því að fara um flugvelli í Sádí-Arabíu Sjá meira