Helförin var bara fugladrit Helgi Gunnlaugsson skrifar 19. júní 2026 10:01 Er nýkominn úr námsferð félagsgreinakennara úr framhaldsskólanum til Berlínar. Ég kenndi lengi í MR og hef farið margar námsferðir erlendis af þessu tagi á vegum félagsins gegnum árin og haft bæði gagn og gaman af. Berlín var sannarlega engin undantekning, vöxtur öfgahópa í Þýskalandi, viðfangsefni okkar að þessu sinni. Raddir þýskra menntaskólanemenda Við heimsóttum menntaskóla þar sem nemendur á lokaári kynntu verkefni sín. Afar opnir með örugga framkomu en höfðu áhyggjur af uppgangi öfgahægrisins sem er í mikilli sókn í Þýskalandi. Tæplega 30% þjóðarinnar styðja AFD (Alternative Für Deutchland) skv. skoðanakönnunum og stefna í meirihluta í Saxlandi í kosningum í haust. Hafa mikið fylgi í gamla Austur-Þýskalandi og meðal ungra karla – sem nemendurnir töldu sig geta þekkt á götu úti oft stuttklipptir og herralegir í fasi. Nemendurnir í menntaskólanum voru aftur á móti alþjóðasinnaðir og töldu Evrópusambandið og þau gildi sem liggja að baki lykilforsendu þess að friður og hagsæld haldist í Evrópu. Sundruð muni Evrópa óhjákvæmilega falla á viðsjárverðum tímum. Þau töldu sig skynja kulið sem berist frá öfgahægrinu og óttuðust uppgang þess. Nokkrir nemendanna sögðust hafa tekið þátt í mótmælum til stuðnings Palestínu og horft upp á ofbeldið sem lögreglan beiti þátttakendur. Sektarkenndin yfir helförinni plagar enn þjóðina og þýsk yfirvöld telja sig ekki geta annað en samþykkt framferði stjórnvalda í Ísrael hvað sem á dynur. Allt andóf sem túlka má sem andstöðu við Ísrael er því illa séð af stjórnvöldum, uppnefnt gyðingahatur eins og kunnugt er. Íslenska sendiráðið í Berlín Við heimsóttum sendiráðið íslenska í Berlín sem er vel í sveit sett í glæsilegri byggingu með hinum Norðurlöndunum. Við kynntumst því gróskumikla starfi sem sendiráðið stendur fyrir frá sendiherra okkar í Þýskalandi Auðunni Atlasyni, hlýddum á erindi Jóhönnu Ýr Bjarnadóttur fræðikonu frá Humboldt stofnuninni í Berlín um AFD og Arthúrs Björgvins Bollasonar rithöfundar og fjölmiðlamanns um óvenju sterk tengsl Þýskalands og Íslands. Öfgahægrið í hnotskurn – mín túlkun Hugmyndafræði AFD gengur út á að efla þjóðerniskennd og endurvekja þýska reisn og glæsta sögu. Utanaðkomandi öfl hafi of lengi fengið að grafa undan þessari arfleifð, einkum útlendingar og aðrir minnihlutahópar. Skiptingin í við og þeir áberandi. Við verðum að verjast þessum utanaðkomandi öflum sem elítan hefur gefið frítt spil í þýsku samfélagi. Innflytjendur fengið að streyma stjórnlaust inn í landið með leyfi elítunnar og afbrot og upplausn vaxið í kjölfarið. Þessa flóðbylgju verði strax að stöðva og í framhaldi draga úr umfangi þeirra í samfélaginu. Þýskaland þarf að verða hreint land á ný. Íbúar austurhluta Þýskalands upplifa sig hlunnfarna af elítunni í vestri eins og öfgahægrið kallar yfirvöldin. Fagstjóri félagsvísinda í menntaskólanum sem við heimsóttum uppalinn í A-Þýskalandi sagði þegar löndin sameinuðust hafi hann nýlokið löngu háskólanámi tæplega þrítugur. Sótti um starf í vestrinu en var uppálagt að byrja næstum upp á nýtt, nám hans eystra í raun einskis virði. Öfgahægrið talar einmitt til hópa af þessu tagi sem telja sig útundan, ýtt til hliðar, sitji eftir niðurlægðir og sviknir af elítunni. Alls konar hópar fái of mikið rými í Þýskalandi hvort sem það eru innflytjendur, hinsegin fólk, trans, múslimar eða aðrir minnihlutahópar. Samkennd og samlíðan með öðrum en þeim sjálfum er bara fyrir góða fólkið og kemur lýðræði og mannréttindum ekkert við. Hefðbundnu gildin þarf að endurvekja, Þýskaland er ein þjóð, kynin aðeins tvö, femínismi er bein ógn við góð og gegn gildi. Endurskrifa þarf söguna, helförin fær of mikið rými í sögukennslunni, er í raun bara eins og hvert annað fugladrit í sögu þjóðarinnar sem sé óvenju glæsileg og beri að hampa. Skylduheimsóknir skólabarna í útrýmingarbúðir nasista þarf því að afleggja, listaverk sem minna á helförina eru of mörg í Þýskalandi og stemma þarf stigu við fjölda þeirra. Helförin, þar sem fyrst og fremst Gyðingar, eða alls sex milljónir, voru drepnir, einungis stutt frávik í langri og farsælli sögu germönsku þjóðarinnar. Ísland og lærdómur sögunnar Stundum er sagt að erlend áhrif berist aðeins síðar til Íslands. Aftur á móti er óhætt að velta því fyrir sér hvort ekki megi heyra eitthvert bergmál í íslensku pólitíkinni sem rekja megi til þeirrar hugmyndafræði sem kennd er við AFD. Er mannkynssagan að endurtaka sig? Er lærdómur sögunnar kannski sá einn að við lærum aldrei neitt af sögunni og séum dæmd til að endurtaka ófarir fortíðarinnar? Vonandi ekki. Höfundur er prófessor í félagsfræði við Háskóla Íslands. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Helgi Gunnlaugsson Mest lesið Kópavogur fjölgar kennurum og fjárfestir í framtíð barna Ásdís Kristjánsdóttir Skoðun Leigubremsan og vönduð lagasetning Gunnar Ármannsson Skoðun Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson Skoðun Hvernig styðja skal við árangur í Efra-Breiðholti Sæmundur Árni Hermannsson Skoðun Bitna kjarasamningar kennara á börnunum okkar? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir Skoðun 2,5% fyrir alla – nema höfuðstól húsnæðislánanna? Friðrik Björgvinsson Skoðun Frá gullsöltum til líftæknilyfja Hrönn Stefánsdóttir Skoðun Tímamót Samúel Guðmundsson Skoðun Leigubremsa er almannahagsmunamál Yngvi Ómar Sigrúnarson Skoðun Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson Skoðun Skoðun Skoðun Hvað fær Ísland fyrir Seyðisfjörð? Ólafur Margeirsson skrifar Skoðun Gerum gott betra – þorum að horfa á allar hliðar Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Það gengur svo vel hjá okkur! Kristján Freyr Halldórsson skrifar Skoðun Hver er framtíð litlu hjúkrunarheimilanna á landsbyggðinni? Eydís Inga Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Skammsýni eða skynsemi? Skúli Mogensen skrifar Skoðun Mjúkt net og snjallrassar Unnar Geir Unnarsson skrifar Skoðun Frá gullsöltum til líftæknilyfja Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Orð eiga að hafa merkingu og undirskriftir að skipta máli Guðmundur Halldór Björnsson skrifar Skoðun Hvernig styðja skal við árangur í Efra-Breiðholti Sæmundur Árni Hermannsson skrifar Skoðun 2,5% fyrir alla – nema höfuðstól húsnæðislánanna? Friðrik Björgvinsson skrifar Skoðun Kópavogur fjölgar kennurum og fjárfestir í framtíð barna Ásdís Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Hvað kostar stjórnun okkur? Maríanna Magnúsdóttir skrifar Skoðun Forsendubresturinn sem varð að friðarkaupum Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Leigubremsan og vönduð lagasetning Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Leigubremsa er almannahagsmunamál Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Tímamót Samúel Guðmundsson skrifar Skoðun Næsta verðhækkun á ekki að vera sjálfgefin Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Börn eftir pöntun Fæðingarorlofssjóðs Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun 100 ár af dellu Helgi Tómasson skrifar Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Maðurinn sem hringdi í óvininn Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samráð sem breytir Karólína Helga Símonardóttir skrifar Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar Skoðun Farsælt framhaldslíf Steinunn Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Það sem ég dáist að við íslenskar konur Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Bitna kjarasamningar kennara á börnunum okkar? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Fíllinn í postulínsbúðinni: Veldisvöxtur breytinganna Árni Sigurðsson skrifar Skoðun Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Það eru ekki allir jafnir hér: Krefjumst jafnræðis lífsskoðunarfélaga og afnáms sérstakrar þjóðkirkju Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Ræktum samtakamátt ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Sjá meira
Skoðun Hver er framtíð litlu hjúkrunarheimilanna á landsbyggðinni? Eydís Inga Sigurjónsdóttir skrifar
Skoðun Orð eiga að hafa merkingu og undirskriftir að skipta máli Guðmundur Halldór Björnsson skrifar
Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar
Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar
Skoðun Það eru ekki allir jafnir hér: Krefjumst jafnræðis lífsskoðunarfélaga og afnáms sérstakrar þjóðkirkju Svanur Sigurbjörnsson skrifar