Munaði minnstu að hún væri sjálf komin út í þegar árásin varð: „Það verður bara allt í blóði í sjónum“ Freyja Þórisdóttir og Tómas Arnar Þorláksson skrifa 14. júní 2026 10:56 Ásta segir ekki rétt að kalla þetta árás enda sé fólk að vaða inn í náttúrulegt umhverfi hákarlanna, ekki öfugt. Getty/Aðsend Kona var á sundi skammt frá landi á einni vinsælustu strönd Sydney í Ástralíu þegar gríðarstór hákarl réðst á hana en hún er nú í lífshættu. Íslendingur sem var á ströndinni þegar atvikið átti sér stað segist enn þá vera að meðtaka það, enda „eins og að vera stödd í einhverri kvikmynd“. Hún segir mikla umræðu hafa skapast meðal íbúa svæðisins en ótrúlegt þyki að hákarlinn hafi komist svona nálægt landi án þess að til hans sæist. „
Ég vil nú kannski ekki kalla þetta árás vegna þess að þessir hákarlar eru ekki að ráðast á okkur, þeir halda kannski að við séum selur eða matur,“ segir Ásta Hafþórsdóttir en það munaði minnstu að hún væri sjálf komin út í sjó þegar að þriggja og hálfs metra langur hvítháfur, (e. great white shark), birtist skyndilega og beit konuna og gerði sig líklegan til að draga hana í kaf. Konan var flutt af vettvangi í lífshættulegu ástandi en er nú sögð stöðug. Hefði getað verið ég Ásta er sem stendur í Ástralíu við tökur á nýjustu mynd Baltasars Kormáks, The Big Fix. Hún segir ströndina vera mjög vinsæla meðal ferðamanna og tekur fram að í gær hafi verið lítill öldugangur og margt fólk sem naut sín í góða veðrinu. Maðurinn sem kom að konunni fyrstur hefur verið titlaður „helsta hetja Ástralíu“ í fréttum þarlendis.aðsend „Ég er rétt komin niður á strönd þegar það heyrist væl í sírenum. Ég tek eftir því að það eru allir að hlaupa upp úr sjónum og það er einhver ungur maður á bretti í sjónum að greinilega bjarga konu og það verður bara allt í blóði í sjónum,“ segir Ásta. Maðurinn hafi svo reynt að koma konunni á þurrt land með herkjum. „Svo eru sem betur fer bæði læknar og einhverjir aðrir þarna sem brugðust hratt við“. „Ég var kominn niður á ströndina sjálfa og ef ég hefði verið tíu mínútum fyrr, þá hefði ég verið kominn út í sjó. Það þýðir náttúrulega ekkert að hugsa þannig en þetta hefði getað verið ég en þetta var ekki ég þannig að það er bara þannig,“ segir Ásta. Samkvæmt ástralska miðlinum Sky news hlaut konan alvarlega áverka á handlegg og fótlegg og hún er sögð í stöðugu ástandi en í lífshættu. Ótrúleg hetjudáð mannsins Ásta segir það ekki hafa svo mikið sem hvarflað að henni að lenda í árás sem þessari. Fólk á svæðinu hafi áður sagt henni að hafa engar áhyggjur. „Það eru engir hákarlar og þú þarft ekkert að vera smeyk við það og svo bara gerist þetta. Sem er auðvitað ekki mjög algengt og sumir segja líka bara já, já, en það eru meiri líkur á að þú verðir fyrir bíl heldur en að þetta gerist,“ segir hún og bætir við að henni hugnist ekki að fara aftur í sjóinn eftir atvikið. Ásta segir einnig frá því að maðurinn sem hafi verið fyrstur að konunni sé álitin hetja eftir björgunina. „Hann var ekki í björgunarstörfum þarna en hann var búinn að læra björgun og hann ætlar að grípa hana þegar að hákarlinn dregur hana niður,“ segir hún. Hann hafi strax séð hve gríðarlega stór hákarlinn væri og þannig áttað sig á því að hann gæti ekki reynt að ýta við honum eða fæla hann. Í kjölfarið náði hann taki á hendi konunnar og komið þeim báðum í land. Á meðan hafði hákarlinn sveimað í sjónum í kringum þau. „Þetta er ótrúleg hetjudáð að hafa náð henni á land,“ segir Ásta. Árásirnar um þrettán hundruð Hún segir hákarlinn hafa verið um þrjátíu metrum frá flæðarmálinu sem sé „mjög, mjög nálægt“ og að það sé í rauninni innan við það sem fólki er ráðlagt að synda ekki út fyrir. Það sé mögulega það sem veki mesta skelfingu hjá fólki að hann hafi komist svona nálægt landi án þess að nokkur yrði hans var. „Það eru þyrlur sem fljúga yfir reglulega til að fylgjast með,“ segir Ásta en í umfjöllun breska ríkisútvarpsins (BBC) kemur fram að árásin hafi orðið á Coogee-strönd sem er austarlega í Sydney. Þar er einnig greint frá því að konan sé þrjátíu og fimm ára en í síðustu viku lést kafari eftir að hafa verið bitinn af hákarli sem talinn er hafa verið fjögurra og hálfs metra langur suðaustur af Perth í Vestur-Ástralíu. Hákarlsárásir við Ástralíu eru algengari en víða annars staðar í heiminum, þótt þær séu ekki endilega alltaf banvænar. Frá því að skráningar hófust árið 1791 hafa verið skráðar tæplega þrettán hundruð hákarlsárásir í Ástralíu og hafa rúmlega 260 þeirra leitt til dauða eftir því sem fram kemur í grein BBC. „Sumir vilja meina að þetta sé bara svona og við förum í sjóinn bara á okkar eigin ábyrgð og að þetta sé þeirra umráðasvæði og það sé lítið við því að gera en þetta er stór partur af lífi fólks hér að fara í sjóinn og synda allt árið um kring,“ segir Ásta en í Sydney er mikil brimbrettamenning sem og gríðarlegur hiti á sumrin. Eins og í kvikmynd Hún segir það hafa verið í umræðunni að setja niður net sem eiga að koma í veg fyrir svona en það hafi verið búið að fjarlægja þau einhvern tímann í apríl, þannig að það hafi ekki verið nein net og engir drónar. Hvítháfar geta orðið allt að sex metra langir.Getty „Þannig að það er mikil reiði í fólki núna og miklar umræður og þetta er náttúrulega bara hræðilegt. Þetta var bara, já, ung móðir sem að bara, þú veist, var bara að synda og og var ekki að taka neina áhættu þannig, hún var ekkert að fara langt út fyrir heldur sko,“ segir hún sömuleiðis og bætir við að það hafi verið fjallað um það í áströlskum fréttum að það hefðu átta eða níu hákarlar verið „spottaðir“ undan ströndum borgarinnar. „Það er búið að loka á flestum ströndum þarna á þessu svæði í einhvern tíma, ég veit ekki hvað það verður lengi, en þetta var bara eins og að vera stödd í einhverri kvikmynd sko, ég er bara ennþá ekki alveg búin að ná utan um þetta sko, óraunverulegt,“ segir hún.
Ástralía Dýr Íslendingar erlendis Mest lesið Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Innlent Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Innlent Sakamálið sem skekur Bandaríkin Innlent „Ætlar hann að segja já eða nei?“ Innlent Rúmlega hundrað flugferðum aflýst og langar biðraðir Erlent „Þeir báðu um of mikið og buðu of lítið“ Erlent Þrír handteknir eftir árás þar sem eggvopnum og hnúajárni var beitt Innlent Nei eða já frá ólíkum sjónarhornum á Sprengisandi Innlent Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Innlent Límmiðar lifðu ekki af nóttina Innlent Fleiri fréttir Kanada vilji fríðindi þess að vera hluti af Bandaríkjunum Rúmlega hundrað flugferðum aflýst og langar biðraðir „Þeir báðu um of mikið og buðu of lítið“ Skildi sjö ára son sinn eftir á Fuji-fjalli Tveir hinna látnu lögreglumenn Nokkrir látnir eftir árekstur lögreglubíls Þingkosningar í Bandaríkjunum: Meira en helmingslíkur á að Demókratar nái öldungadeildinni TikTok gert að greiða Bandaríkjunum sögulega upphæð Einn látinn og tveir drengir alvarlega særðir í Fagersta Gerðu tvöfalda árás á verslunarmiðstöð fjarri víglínunni Fundu rússneskt vopnabúr í skógi fyrir utan Berlín Auka fjárútlát til varnarmála um tæpan fimmtung Getur „D-dagur“ Trumps gegn Íran skilað árangri? Réðst á grunnskólanemendur með sverði Skipstjóri sem sigldi næstum á hús fær fangelsisdóm Leysa upp nýja drónahersveit sem átti að læra af Úkraínumönnum Búast við fordæmalausum El niño næsta árið Nord Stream skemmdarverkin: Handtekni ráðgefandi við gerð Hollywood-myndar um málið Fimm ríki fordæma nýjar landtökubyggðir á Vesturbakkanum Stillir sér upp með gálga og skreytti afmæliskökuna snöru Handtekinn fyrir annan glæp en ekki vegna hvarfs Anne-Elisabeth Sjóræningjar tóku tyrkneskt hergagnaskip Rúmenar grönduðu drónabát nærri borpalli Hælisleitendum kennt að það sé bannað að berja konur og nauðga Hver er „mennski prentari“ Trumps? „Þú ert það eina sem skiptir mig máli“ Bílasali gerður að prinsi eftir faðernispróf Hætta við að bjarga gammablossasjónauka Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Rekinn vegna viðvörunar um „samfélagskrísu“ í Rússlandi Ný meðferð gegn sortuæxlum lofar góðu Hópur tengdur rétttrúnaðarkirkjunni reyndi að komast til áhrifa í Danska þjóðarflokkinum Sjá meira