Segir að það sé bara einn heimsklassaleikmaður í enska landsliðinu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 13. júní 2026 08:01 Harry Kane er markahæsti leikmaður í sögu enska landsliðsins með 79 mörk í 114 landsleikjum. Hann er kominn með 26 fleiri mörk en næsti maður á listanum sem er Wayne Rooney. Getty/Carmen Mandato Knattspyrnusérfræðingurinn Gary Neville telur að Harry Kane sé eini heimsklassaleikmaðurinn í HM-hópi Englands í ár.
Þetta kemur fram í viðtali hans við Sky Sports. Fyrrverandi leikmaður Manchester United og einn þekktasti sparkspekingur enska boltans nefnir fyrirliða enska landsliðsins sem langmikilvægasta leikmann liðsins fyrir opnunarleikinn á HM gegn Króatíu. „Við tölum um að England eigi marga hæfileikaríka leikmenn, en við eigum aðeins einn ósvikinn heimsklassaleikmann, og það er Harry Kane,“ sagði Neville við ITV. Do you agree with Gary Neville? 💭 pic.twitter.com/fE0jkx4bnp— Sky Sports Football (@SkyFootball) June 12, 2026 Kane kemur á mótið eftir besta tímabil ferilsins. Framherjinn skoraði 61 mark í 51 leik fyrir Bayern München og er nefndur sem kandídat fyrir Gullknöttinn. Neville telur að landsliðsþjálfarinn Thomas Tuchel hafi byggt hópinn í kringum Kane. Hann bendir meðal annars á að leikmönnum eins og Cole Palmer og Phil Foden hafi verið hafnað í þágu hraðra kantmanna sem geta nýtt styrkleika framherjans. „Allur hópurinn er settur saman í kringum Kane. Mikið af þessu móti hvílir á herðum hans,“ segir Neville. Kane er markahæsti leikmaður í sögu enska landsliðsins með 79 mörk í 114 landsleikjum. Hann er kominn með 26 fleiri mörk en næsti maður á listanum sem er Wayne Rooney. Kane er þegar kominn með átta mörk í aðeins ellefu leikjum sínum á HM en 69 af 79 mörkum hans hafa komið í keppnislandsleikjum. England leikur sinn fyrsta leik á HM gegn Króatíu miðvikudaginn 17. júní.
Enski boltinn HM 2026 í fótbolta Mest lesið Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Fótbolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Fótbolti Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Fótbolti Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Fótbolti Gómuð við gróft svindl í Berlín Sport Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Íslenski boltinn Bakgarðsáskorunin: Leitast eftir óprenthæfri hvatningu Sport Uppgjörið: Færeyjar - Ísland 0 - 2 | Umspilssæti Íslendinga staðreynd Fótbolti Fleiri fréttir Leggur skóna á hilluna Andar léttar: Skilorðsbundið bann fyrir njósnirnar Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Upp um eitt sæti á heimslistanum Rekinn frá Tyrkjum Arteta framlengir við Arsenal Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Dregið á föstudag: Sjáðu mörk og fögnuð ungu strákanna okkar Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Kveðjubréf frá Kidda Steindórs Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Fékk að fara á fyrstu A-landsliðsæfinguna á afmælisdaginn Fagnar stiginu: „Ég var að fíla Eistana“ „Bara lét okkur heyra það í hálfleik“ „Svo lengi sem ég get hlaupið vil ég spila fyrir Ísland“ „Hefðum tapað ef Hákon væri ekki í markinu“ „Það sem svíður mest“ Uppgjörið: Eistland - Ísland 0-0 | Markalaust en strákarnir á toppnum Einkunnir Íslands: Takmörkuð gæði í Tallinn Ronaldo segir þjálfarann hafa svikið sig Unnu stórsigur og komu Íslandi í umspil Króatía - Spánn 2-1 | Varamaðurinn bjargaði sigri fyrir Spán Kane með tvennu í öruggum sigri Byrjunarlið Íslands: Fimm breytingar og Gylfi inn Uppgjörið: Færeyjar - Ísland 0 - 2 | Umspilssæti Íslendinga staðreynd Leikdagur í Tallinn: Hitað upp á Íslandstorgi fyrir mikilvægan leik Skrýtinn leiktími og leikmenn því ekki með fulla stjórn Af hverju er svona mikilvægt að vinna riðilinn? Sjá meira