Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Magnús Jochum Pálsson skrifar 10. júní 2026 14:00 Erla Gerður Sveinsdóttir, sérfræðingur í offitu, fer yfir lífseigar mýtur varðandi sjúkdóminn offitu. Getty/Sýn Er offita alvöru sjúkdómur? Er fólk í ofþyngd ekki bara latara en aðrir? Og er BMI besti mælikvarðinn til að ákvarða ákjósanlega þyngd? Þetta er brot af þeim mýtum sem er að finna í samfélagsumræðunni um sjúkdóminn offitu. Erla Gerður Sveinsdóttir, sérfræðilæknir í offitumeðferð, fór yfir lífseigar mýtur varðandi sjúkdóminn offitu í Íslandi í dag.
Það ríkir mikil upplýsingaóreiða um sjúkdóminn offitu, mögulega af því að sama hugtakið er notað annars vegar um þann sem er sjúkur og hins vegar um þann sem er ekki í kjörþyngd. Erla Gerður fór yfir þrettán mýtur um offitu með fjölmiðlakonunni Lilju Katrínu Gunnarsdóttur í nýjasta þætti Íslands í dag. Hægt er að horfa á viðtalið við Erlu í heild sinni hér að neðan og mýturnar þrettán þar fyrir neðan: 1. Offita er ekki alvöru sjúkdómur „Offita er alvöru sjúkdómur en það er ekkert skrýtið að fólk ruglist á því. Vegna þess að líkamsþyngdarstuðullinn BMI, sem hefur verið mjög ráðandi, segir að 30 sé offita. Það er ekki sjúkdómurinn offita,“ segir Erla Gerður og fer yfir einkenni sjúkdómsins. Skilgreiningin á sjúkdómnum offitu sér skýr en „hann er ekki skilgreindur út frá kílóum,“ segir Erla. „Fyrirferð fituvefjar getur verið að valda truflunum í starfsemi hans, það getur verið að fituvefurinn sjálfur starfi óeðlilega og það getur verið að stýrikerfi þyngdar í líkamanum starfi óeðlilega sem gerir að verkum að líkaminn safnar óeðlilega upp fitu. Meingerð sjúkdómsins offitu eru margþætt og flókin.“ Það eru ekki allir feitir sem eru með offitu? „Nei. Og það er til fólk í kjörþyngd sem er með sjúkdóminn offitu. Það er ekki sjúkdómur að fitna,“ segir Erla Gerður. 2. Fólk með offitu er latara en aðrir og borðar óhollari mat „Þetta er svo lífseig mýta að það þurfi bara að hreyfa sig meira og borða minna. Þetta er kannski ein af okkar hættulegustu mýtum sem við verðum hreinlega að leiðrétta,“ segir Erla. „Einstaklingur eru mjög misduglegir og latir og það hefur ekkert með holdafar að gera. Einstaklingar með offitu eru oft að hreyfa sig mjög mikið og það eru margir einstaklingar með granna líkama sem hreyfa sig lítið þannig að það segir okkur lítið um það. Einstaklingar í öllum tegundum holdafars borða vel og ekki vel. Þetta segir alveg óskaplega lítið til um það,“ segir hún. Ráðleggingar um að borða minna og hreyfa sig meira til manneskju sem er komin með röskun í þyngdarstjórnunarkerfin geti gert meira illt en gagn. Varnarviðbrögð líkamans ýkist og „þá hreinlega ræsum við svengdarhormónin, lækkum brennsluna og gerum stöðuna miklu verri,“ segir Erla. 3. Allir geta grennt sig án aðstoðar Erla Gerður segir einnig að það geti ekki allir grennt sig án aðstoðar. Sumir geti auðveldlega losnað við nokkur aukakíló eftir sumarfrí en þeir sem eru með röskun í þyngdarstjórnunarkerfunum þurfi aðstoð til að ná jafnvægi. „Það er mjög flókið fyrirbæri að létta sig. Það er mjög auðvelt að þyngjast en það er mjög erfitt að léttast,“ segir Erla Gerður. 4. BMI er frábær mælikvarði til að mæla ákjósanlega þyngd „Líkamsþyngdarstuðull er góður til að fylgjast með breytingum, fylgjast með hópi fólks og var fundinn upp til þess að vera í rannsóknum en hann er ekki góður mælikvarði á heilsu einstaklingsins,“ segir Erla. Stuðullinn geti bæði ofmetið og vanmetið fitusöfnun í líkamanum því það sé hægt að vera með sjúkdóminn offitu með eðlilega líkamsþyngd og sömuleiðis vera heilbrigður með töluverða fitusöfnun. „Hann er gott skimunartæki til að skoða: „Er breyting á mínum líkama í báðar áttir? Er mögulega eitthvað undirliggjandi sem ég þarf að laga?“,“ segir Erla. 5. Meðferð við offitu gengur vel ef sjúklingur léttist Erla Gerður hefur áratugareynslu af því að vinna með fólki með sjúkdóminn offitu og segir það mikla mýtu að offitumeðferð snúist eingöngu um að fólk léttist. Hægt sé að léttast mikið en verða óheilbrigðari. „Við þurfum að hætta að horfa svona mikið á þessi kíló,“ segir hún. 6. Þyngdarstjórnunarlyf munu leysa offituvandann „Nei, það munu þau ekki gera. En þau eru gríðarlega mikil hjálp fyrir einstaklinga sem eru komnir með sjúkdóminn offitu og það er frábært að vera með verkfæri sem geta hjálpað líkamanum að leiðrétta skekkju og komast í betra jafnvægi. Þyngdarstjórnunarlyf muni ekki leysa allt og það verði að takast á við offitu á samfélagsgrunni. Í dag búum við í offituhvetjandi umhverfi með gjörunnu, óhollu mataræði, mikilli inniveru, lítilli daglegri hreyfingu og miklu áreiti. „Til að ná tökum á offituvandanum, sem klárlega er vandi, þá verðum við að breyta þjóðfélaginu okkar. Það er ekki þannig að við getum vaðið áfram í þessari vitleysu og sett svo alla á lyf. Það er ekki raunhæft, heilbrigt eða gott á neinn máta,“ segir Erla. Hvað finnst þér um að fólk sem er ekki komið með sjúkdóminn sem er að nota lyfin? „Ég er hrædd við þá þróun og auðvitað sér maður gríðarlega mikið á samfélagsmiðlum að það er eins og þessi lyf séu að leysa öll heimsins vandamál hvað varðar heilsu fólks,“ segir Erla Gerður. „Nei, við erum ekki á réttri leið í þessari þróun.“ 7. Þyngdarstjórnunarlyfjum fylgja gríðarmargar aukaverkanir Erla segir aukaverkanir fylgja öllum lyfjum og þyngdarstjórnunarlyf séu engin undantekning. Alvarlegar aukaverkanir við þeim séu óalgengar en skynsamleg notkun lyfjanna dragi úr líkum á aukaverkunum. „Við eigum að vera vakandi fyrir öllum mögulegum aukaverkunum og taka þær alvarlega. Enn þá erum við að læra á nýjar aukaverkanir við þessum lyfjum og við munum halda áfram að læra það,“ segir hún. 8. Manneskja sem byrjar einu sinni á þyngdarstjórnunarlyfi þarf að vera á því alla ævi „Við gerum ráð fyrir því að þegar fólk byrjar á þyngdarstjórnunarlyfi þá noti það lyfið alla ævi,“ segir Erla en bætir við að það sé mögulegt að fólk sem nýti tímann vel meðan það er á lyfjunum geti á endanum hætt á þeim. Sjá einnig: Þyngdartap með lyfjum fljótara að ganga til baka eftir að notkun er hætt Viðbrögðin við því að fólk þurfi að vera ævilangt á þyngdarstjórnunarlyfjum veki oft undrun en það sé ekkert öðruvísi en að vera ævilangt á astmalyfjum eða blóðþrýstingslyfjum. 9. Þyngdarstjórnunarlyf munu útrýma efnaskiptaaðgerðum Þyngdarstjórnunarlyf munu ekki útrýma efnaskiptaaðgerðum að mati Erlu. Þörf fyrir magaermi muni minnka til muna en magahjáveita sé enn öflugasti meðferðin við offitu. 10. Bæði þyngdarstjórnunarlyf og efnaskipaaðgerðir eru auðvelda leiðin úr vandanum eða svindl „Þetta er stór ákvörðun og það þarf að vinna mikið með þessu. Það sem fólk fær gjarnan að heyra þegar það fer á lyfin eða fer í aðgerð að það sé að svindla, sé ekki sjálft að taka á þessu eða að fara auðveldu leiðina, er svo fjarri því. Þetta er heilmikil vinna, við eigum að bera virðingu fyrir þessum inngripum og vinna vel með þau,“ segir Erla. 11. Það verður allt betra þegar ég grennist „Trúin á það að þyngdin stýri svo miklu af okkar lífshamingju, velferð og hamingju er rosalega sterk. Þeir sem eru með aukna þyngd trúa því mjög oft að við það að léttast muni allt lagast af því áherslan er svo mikil á að þyngdin sé fyrir,“ segir Erla. „Þegar fólk grennist kemst það oft að því að það eru alls konar hlutir sem lagast ekkert við að þyngdin fari og þetta var aldrei þyngdinni að kenna. Það er svo sterkur áróður í samfélaginu að maður eigi að vera grannur og megi ekki vera með nein aukakíló,“ bætir hún við. Trúin að þyngd sé mælikvarði á karakter, dugnað, þekkingu og sjálfstjórn sé kolröng. „Og ég get líka fullyrt að það er fullt af grönnu fólki sem er ekki mjög hamingjusamt,“ segir Erla. 12. Ef ég er sátt við líkama minn og þykir vænt um hann má ég ekki þiggja hjálp við þyngdarstjórnun „Það er svolítið ríkjandi að fólk sem vill líkama sínum vel, er sátt við hann og þykir vænt um hann en er í yfirþyngd hefur fengið þann þrýsting að þá megi ekki endilega vinna með þyngdina. Það sé rangt því þá sértu að sýna fram á að þér þyki ekki vænt um hann og sért ekki sáttur við hann,“ segir Erla. Hún horfir frekar á það þannig að við viljum öll líkömum okkar vel og þess vegna eigum við líka að vilja hjálpa honum ef hann er að ströggla og þiggja hjálpartækin. 13. Allir verða að vera grannir „Það þurfa ekki allir að vera grannir, við þurfum bara að vera heilbrigð,“ segir Erla. Hægt sé að vera grannur og heilbrigður rétt eins og það er hægt að vera heilbrigður með aukakíló. Aukin uppsöfnun fituvefjar í líkamanum sé alltaf ábending um eitthvert undirliggjandi ójafnvægi. „Er þá eitthvað sem líkaminn er að segja okkur? Við eigum að hlusta á hann og skoða hvað það sé,“ segir Erla. Að lokum segir Erla að það sé mikilvægt að koma ákveðnum skilaboðum á framfæri til samfélagsins sem þurfi á ákveðinni hugarfarsbreytingu að halda. „Mig langar að sjá að við förum að horfa á holdafar og offitu þannig að fólk hætti að skipta sér af holdafari annarra. Fólk vinni sjálft í að næra sinn líkama vel og fallega, hugsi vel um líkamann og lifi heilbrigðu lífi,“ segir hún.
Heilsa Heilbrigðismál Þyngdarstjórnunarlyf Ísland í dag Tengdar fréttir „Þetta er erfiðasta mýta sem næringarfræðin hefur þurft að díla við lengi“ Eru kolvetni rót alls ills? Er sykur það versta sem þú lætur ofan í þig? Hvað með jurtaolíurnar - skaða þær virkilega líkamann? Mýturnar um mataræði og næringu eru mýmargar og því settist Lilja Katrín Gunnarsdóttir niður með Dögg Guðmundsdóttur, klínískum næringarfræðingi, til að fara yfir þær nokkrar. 10. febrúar 2026 13:02 Mest lesið Steinn Ármann er látinn Lífið Davíð Þór um fráfall Steins Ármanns: „Engin orð. Bara sorg“ Lífið Kjóllinn brann korter í brúðkaup Lífið Fór létt með tíu kílómetra: „Við sjáumst bara í markinu gamla mín“ Lífið Svona voru afmælistónleikar Bylgjunnar á Menningarnótt Lífið Krakkatía vikunnar: Svampur Sveinsson og Sesarsalatið Lífið „Maður veit aldrei hvað framtíðin ber í skauti sér“ Lífið Leikkonan Bunny Levine er látin Lífið Úlfadrengurinn í Sierra Morena allur Lífið Fréttatía vikunnar: Eiður Smári, Harry og frelsissvipting Lífið Fleiri fréttir Leikkonan Bunny Levine er látin Davíð Þór um fráfall Steins Ármanns: „Engin orð. Bara sorg“ Steinn Ármann er látinn Kjóllinn brann korter í brúðkaup Krakkatía vikunnar: Svampur Sveinsson og Sesarsalatið Fór létt með tíu kílómetra: „Við sjáumst bara í markinu gamla mín“ Úlfadrengurinn í Sierra Morena allur „Maður veit aldrei hvað framtíðin ber í skauti sér“ Fréttatía vikunnar: Eiður Smári, Harry og frelsissvipting Missti allan mátt fyrir neðan bringu: Dreymir um að geta spilað golf á ný Fyrsta kvennalandsliðið í kotru býður á opna æfingu Svona voru afmælistónleikar Bylgjunnar á Menningarnótt Þessi hafa safnað mestu fyrir Reykjavíkumaraþonið Lögmaður kærasta Panettiere með yfirlýsingu um andlátið Barnastjörnurnar sem Hollywood brást Hvað veistu um... Köngulóarmanninn? Ekkert annað í stöðunni en að fara á brókinni í ísbúðina Guðmundur Felix frumsýnir nýja nefið Týndi farangrinum og klæddist íslensku merki frá toppi til táar Hlutir sem þú ættir aldrei að deila með maka þínum Svona verður dagskráin á Menningarnótt Harry og Meghan ætla að flytja aftur til Bretlands Þorsteinn Leó orðinn pabbi Versluðu sígarettur af rússneskum sjómönnum: „Þetta var bara eins og gull“ Jinny Lu er ljótasti hundur í heimi 2026 „Hver á eftir að vilja konu sem kúkar í poka?“ Jóhann Kristófer og Nadía Áróra slá sér upp Nicole birtir myndir úr Íslandsheimsókninni: „Við elskum ykkur Ísland!!“ Sögðu já þar sem ástarsagan hófst Frank Beard er látinn 77 ára að aldri Sjá meira
„Þetta er erfiðasta mýta sem næringarfræðin hefur þurft að díla við lengi“ Eru kolvetni rót alls ills? Er sykur það versta sem þú lætur ofan í þig? Hvað með jurtaolíurnar - skaða þær virkilega líkamann? Mýturnar um mataræði og næringu eru mýmargar og því settist Lilja Katrín Gunnarsdóttir niður með Dögg Guðmundsdóttur, klínískum næringarfræðingi, til að fara yfir þær nokkrar. 10. febrúar 2026 13:02