„Heima beið hvolpur sem ég gæti alveg vanist“ Magnús Jochum Pálsson skrifar 1. júní 2026 10:14 Sigmundur átti gott kvöld í gær. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, átti svo góðan dag í gær að hann freistaðist til að segja Facebook-vinum frá því. Ekki nóg með að heima biði hans hvolpur heldur einnig góður kvöldmatur og Sopranos-gláp í kjölfarið. „
Ég er yfirleitt feiminn við að vera á persónulegu nótunum en einstaka sinnum koma dagar sem þróast þannig að það verður freistandi að segja frá því,“ skrifaði Sigmundur í Facebook-færslu sem hann birti um áttaleytið í gærkvöldi. Eftir allan hamaganginn sem fylgdi sveitarstjórnarkosningum, ESB-umsókninni og síðustu skyldum sem fylgdu þeirri orrahríð sagðist Sigmundur hafa haldið heim til sín. „Heima beið hvolpur sem ég gæti alveg vanist (þrátt fyrir smávægilegar efasemdir áður en hann mætti),“ skrifaði hann í færslunni sem innihélt mynd af brúnum hvolpi. En fleira beið Sigmundar en hvolpur. „Svo komst ég að því að það væri búið að kaupa lambalund og kartöflur í kvöldmat,“ bætti hann við. „Dóttirin mátti ráða sjónvarpsefninu og lagði til Hobbitann sem hljómaði vel, en myndin var ekki aðgengileg. Þá sagði hún: „Ég var að byrja að horfa á þætti sem heita The Sopranos. Viltu horfa á það? Við getum byrjað á byrjuninni.“,“ skrifaði Sigmundur sem var meira en til í það. Miðað við þetta virðast tveir hundar komnir á heimilið því fjölskyldan fékk sér Havanese-hvolp árið 2024 eftir að Emma, gamli hundurinn þeirra, lést. Sigmundur hafði lofað konu sinni og dóttur hvolpinum í Kryddsíldinni fyrir þremur árum.
Hundar Miðflokkurinn Bíó og sjónvarp Mest lesið Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ Lífið Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Lífið Douglas gengst við enn einu framhjáhaldinu Bíó og sjónvarp Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Lífið Lækna-Tómas og Ármann skemmtu sér á safninu Menning Barnaspítalabindi Billy stal senunni Tíska og hönnun Eva Marie Saint er látin Lífið „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Lífið Kristrún valdi Victoriu Beckham Tíska og hönnun „Ég geri bara ráð fyrir því að fólk sé búið að gleyma mér“ Tónlist Fleiri fréttir Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Eva Marie Saint er látin Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Hvað veistu um... íslenska hönnun? Funheit í fimm ára afmæli Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs Tendra friðarsúluna í tuttugasta sinn Elegant herrar selja perlu í 101 Tískudrottningar fögnuðu kærkominni opnun Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Stjörnulífið: „Lukka lífs míns að vera gift þessum“ Fæddist á Íslandi en þurfti áratugi til að fá það staðfest Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Ástæða fyrir því að þau fóru ekki hátt með sambandið Hágrét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn Krakkatía vikunnar: Eurovision, Harry Potter og Mr. Beast Líður betur eftir að hún þurfti að þjóta upp á spítala í miðri útsendingu Haustbingó Blökastsins í beinni Hemmi Gunn hjálpaði Hilmari og Birni Braga að svindla Segir Ríkissjónvarpið bregða fyrir sig fæti Unglingavinnan var tískupallurinn í París Sjá meira