Vann Steraleikana en hefði endað síðastur á Ólympíuleikunum Aron Guðmundsson skrifar 25. maí 2026 11:00 Fred Kerley í hlaupi næturinnar Vísir/Getty Hlauparinn Fred Kerley, sem talaði digurbarkalega um heimsmet Usain Bolt í hundrað metra hlaupi, vann greinina á Steraleikunum en hefði endað í síðasta sæti í úrslitahlaupinu á síðustu Ólympíuleikum.
Kerley hélt því staðfastlega fram í aðdraganda Steraleikanna að hlaupið yrði á tíma í hundrað metra hlaupi karla sem væri betri en ríkjandi heimsmet Usain Bolt upp á 9,58 sekúndur. Þrátt fyrir að hlaupararnir væru á frammistöðubætandi efnum og hafi ekki þurft að gangast undir lyfjapróf komust þeir ekki nálægt heimsmeti Usain Bolt í hundrað metra hlaupi sem þurfti að ræsa fjórum sinnum út í. Téður Kerley, sem talaði digurbarkalega fyrir leikana og segist hafa keppt sem íþróttamaður án frammistöðubætandi efna, vann vissulega hundrað metra hlaupið, en var á tíma sem hefði skilað honum síðasta sæti í úrslitahlaupi greinarinnar á Ólympíuleikunum í París árið 2024. Tími Kerley var rétt undir tíu sekúndunum, nánar tiltekið 9,97 sekúndur. Þrátt fyrir fögur fyrirheit skipuleggjenda Steraleikanna um að hvert heimsmetið á fætur öðru myndi falla, sem hefði þó ekki talist gilt sökum frammistöðubætandi efnanna, var aðeins einn keppandi á leikunum sem kláraði á tíma undir ríkjandi heimsmeti í sinni grein. Það gerði Grikkinn Kristian Gkolomeev í 50 metra sundi með frjálsri aðferð. Fékk hann að launum eina milljón Bandaríkjadala, því sem nemur rúmum 124 milljónum íslenskra króna.
Steraleikarnir Ólympíuleikar Ólympíuleikar 2024 í París Mest lesið Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Fótbolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Fótbolti Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Fótbolti Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Fótbolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Gómuð við gróft svindl í Berlín Sport Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Íslenski boltinn Bakgarðsáskorunin: Leitast eftir óprenthæfri hvatningu Sport Dregið á föstudag: Sjáðu mörk og fögnuð ungu strákanna okkar Fótbolti Fleiri fréttir Andar léttar: Skilorðsbundið bann fyrir njósnirnar Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Sérfræðingar skilja ekki landsliðsþjálfarann Upp um eitt sæti á heimslistanum Rekinn frá Tyrkjum Meisturunum spáð miðjumoði: „Skil ekki hvernig þeir náðu honum aftur“ Arteta framlengir við Arsenal Fékk „brjálæðislegt“ magn rasískra skilaboða eftir umdeilt atvik Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Dregið á föstudag: Sjáðu mörk og fögnuð ungu strákanna okkar Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Bakgarðsáskorunin: Leitast eftir óprenthæfri hvatningu Kveðjubréf frá Kidda Steindórs Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Mun ekki stíga aftur á völlinn það sem eftir er tímabilsins Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Dagskráin í dag: Tveir leikir og málin tækluð í Körfuboltakvöldi Æfði með rúgbíliði í Frakklandi á undirbúningstímabilinu Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Fékk að fara á fyrstu A-landsliðsæfinguna á afmælisdaginn Uppgjörið: Grindavík - Haukar 81-71| Grindavík sterkari á lokasprettinum Fagnar stiginu: „Ég var að fíla Eistana“ KR vann erkifjendurna sannfærandi „Bara lét okkur heyra það í hálfleik“ „Svo lengi sem ég get hlaupið vil ég spila fyrir Ísland“ „Hefðum tapað ef Hákon væri ekki í markinu“ „Það sem svíður mest“ „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Uppgjörið: Eistland - Ísland 0-0 | Markalaust en strákarnir á toppnum Sjá meira