„Fyrri hálfleikur líklega sá besti í sumar“ Hjörvar Ólafsson skrifar 17. maí 2026 21:17 Hermann Hreiðarsson var kampakátur á Hlíðarenda í kvöld. Vísir/Guðmundur Einlæg gleði Hermanns Hreiðarssonar, þjálfarar Vals, skein úr augum hans og hann átti erfitt með að fela sigurvímu sína eftir að hans menn innbyrtu dramatískan endurkomusigur gegn Breiðabliki í Bestu-deild karla í fótbolta í kvöld. „
Mér fannst við spila frábærlega í fyrri hálfleik og sá hálfleikur er líklega það besta sem við höfum sýnt í sumar. Einkum þegar litið er til uppspilsins hjá okkur, uppbyggingu á sóknum og stöðum sem við vorum að skapa,“ sagði Hermann Hreiðarsson, þjálfari Vals, sigurreifur. „Við slökktum svo á okkur í upphafi seinni hálfleiks og það er líklega vegna þess að við kjöftuðum of mikið í hálfleik. Þeir náðu að þrýsta okkur niður og komast verðskuldað yfir. Við náðum hins vegar vopnum okkar aftur og innbyrtum sigurinn sem er dásamlegt,“ sagði Hermann enn fremur. „Það var yndislegt að sjá boltann í netinu þarna í lokin. Við vorum á hinum endanum í síðustu umferð og sýndum að þessu sinni karakter að koma til baka. Þetta er frábært kvöld, flott frammistaða og geggjaður sigur,“ sagði hann. „Liðið allt spilaði mjög vel í þessum leik og það var sjálfstraust og hugrekki í okkar aðgerðum. Lúkas Logi var til að mynda frábær og lagði upp tvö mörk. Þá voru fleiri leikmenn sem spiluðu frábærlega. Flottur liðssigur hjá mínum mönnum,“ sagði Hermann.
Íslenski boltinn Besta deild karla Valur Mest lesið Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Fótbolti Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Fótbolti Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Fótbolti Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Fótbolti Gómuð við gróft svindl í Berlín Sport Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Íslenski boltinn Bakgarðsáskorunin: Leitast eftir óprenthæfri hvatningu Sport Uppgjörið: Færeyjar - Ísland 0 - 2 | Umspilssæti Íslendinga staðreynd Fótbolti Fleiri fréttir Leggur skóna á hilluna Andar léttar: Skilorðsbundið bann fyrir njósnirnar Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Upp um eitt sæti á heimslistanum Rekinn frá Tyrkjum Arteta framlengir við Arsenal Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Dregið á föstudag: Sjáðu mörk og fögnuð ungu strákanna okkar Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Kveðjubréf frá Kidda Steindórs Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Fékk að fara á fyrstu A-landsliðsæfinguna á afmælisdaginn Fagnar stiginu: „Ég var að fíla Eistana“ „Bara lét okkur heyra það í hálfleik“ „Svo lengi sem ég get hlaupið vil ég spila fyrir Ísland“ „Hefðum tapað ef Hákon væri ekki í markinu“ „Það sem svíður mest“ Uppgjörið: Eistland - Ísland 0-0 | Markalaust en strákarnir á toppnum Einkunnir Íslands: Takmörkuð gæði í Tallinn Ronaldo segir þjálfarann hafa svikið sig Unnu stórsigur og komu Íslandi í umspil Króatía - Spánn 2-1 | Varamaðurinn bjargaði sigri fyrir Spán Kane með tvennu í öruggum sigri Byrjunarlið Íslands: Fimm breytingar og Gylfi inn Uppgjörið: Færeyjar - Ísland 0 - 2 | Umspilssæti Íslendinga staðreynd Leikdagur í Tallinn: Hitað upp á Íslandstorgi fyrir mikilvægan leik Skrýtinn leiktími og leikmenn því ekki með fulla stjórn Af hverju er svona mikilvægt að vinna riðilinn? Sjá meira