FIFA stefni öryggi leikmanna í hættu á HM Aron Guðmundsson skrifar 15. maí 2026 11:02 Gianni Infantino er forseti FIFA. Vísir/Getty Hópur vísindamanna varar FIFA við að öryggisráðstafanir sambandsins fyrir heimsmeistaramót karla í fótbolta í sumar séu ófullnægjandi þegar kemur að þeim mikla hita sem stefnir í að einhverjir leikir mótsins verði spilaðir í og gætu sett leikmenn í alvarlega hættu.
Í opnu bréfi sem vísindamennirnir, sem starfa á sviði lýðheilsu, loftslagsmála og íþrótta, skrifuðu til forkólfa FIFA segir að regluverkið sem sambandið hefur sett á þessu sviði sé úr takt við ríkjandi vísindi og óverjanlegt. Heimsmeistaramótið í fótbolta fer fram í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó og hefst þann 11.júní næstkomandi. Kalla vísindamennirnir eftir því að FIFA efli viðbrögð sín, þar með talið með því að lengja svokölluð kælihlé í leikjunum sjálfum á HM sem og setja á skýrari verkferla þegar kemur að því að mögulega þurfa fresta leikjum sökum öfgafullra veðurfarslegra aðstæðna. Talið er að hátt hitastig muni valda miklum vandræðum á heimsmeistaramótinu í sumar og vara sérfræðingar við því að hitastigið á fjórtán af sextán völlum mótsins geti farið yfir hættumörk. Það í bland við rakastig, vindstyrk og styrkleika sólarinnar geti skapað aðstæður þar sem reyna mun mikið á leikmenn. Það sem vísindamennirnir vilja að FIFA geri: Fresti leikjum þegar að hitastig nái 28 gráðum skv. WBGT Lengi vatns/kælipásur upp í sex mínútur að lengd. Bæti kæliaðstöðu fyrir leikmenn. Uppfæri reglulega öryggisviðmið sín. FIFA fer eftir Wet Bulb Globe Temperature (WBGT) staðlinum þar sem reiknað er út álag á mannslíkamann sökum hita og rakastigs. Samkvæmt WBGT er 28 gráðu hiti þröskuldurinn þegar að álag á líkamann sökum hita verður að vandamáli fyrir íþróttafólk. FIFA hins vegar miðar við 32 gráðu hita, fjórum gráðum meira en WBGT gerir ráð fyrir.
HM 2026 í fótbolta FIFA Mest lesið Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Enski boltinn Toppbaráttan í vetur: Vildi spá KR titlinum Körfubolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Býður sig fram á móti Infantino Fótbolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Bakgarðsáskorunin: Soðnar kartöflur besta nestið Sport Wirtz sé búinn að missa trúna Enski boltinn „Framkoman eins og við hverja aðra leikmuni“ Fótbolti Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik Handbolti Heimir þrefalt líklegri en Ísland til að fara á EM Fótbolti Fleiri fréttir Wirtz sé búinn að missa trúna Varaforsetinn mildar afstöðu sína gagnvart Infantino Eins og óendurgoldin ást „Framkoman eins og við hverja aðra leikmuni“ Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Heimir þrefalt líklegri en Ísland til að fara á EM Guardiola verður viðstaddur fyrsta heimaleik Manchester City eftir dóminn Manchester City-goðsögn hættir við að hætta Býður sig fram á móti Infantino Tarik framlengir við Víking Leggur skóna á hilluna Andar léttar: Skilorðsbundið bann fyrir njósnirnar Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Upp um eitt sæti á heimslistanum Rekinn frá Tyrkjum Arteta framlengir við Arsenal Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Dregið á föstudag: Sjáðu mörk og fögnuð ungu strákanna okkar Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Kveðjubréf frá Kidda Steindórs Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Fékk að fara á fyrstu A-landsliðsæfinguna á afmælisdaginn Fagnar stiginu: „Ég var að fíla Eistana“ „Bara lét okkur heyra það í hálfleik“ „Svo lengi sem ég get hlaupið vil ég spila fyrir Ísland“ „Hefðum tapað ef Hákon væri ekki í markinu“ „Það sem svíður mest“ Uppgjörið: Eistland - Ísland 0-0 | Markalaust en strákarnir á toppnum Sjá meira