Oddvitaáskorunin: Vopnið á Skaganum Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 14. maí 2026 20:01 Rósaganga Vísir stendur fyrir Oddvitaáskoruninni 2026 þar sem skorað er á oddvita allra flokka í sveitarfélögum um land allt að taka þátt. Áskorunin felur í sér stutta kynningu og að svara nokkrum spurningum.
Sigurður Vopni Vatnsdal er oddviti Samfylkingarinnar á Akranesi. Ég heiti Sigurður Vopni, alltaf kallaður Vopni og er 29 ára. Sambýliskona mín heitir Ragna Dís Sveinbjörnsdóttir og saman eigum við einn 6 mánaða dreng. Ég hef gaman af ferðalögum innanlands og utan, skotveiði og smíðavinnu (ef ég hef einhvern til þess að leiðbeina mér í smíðinni). Ég brenn fyrir velferðarsamfélagi sem byggir á sterku atvinnulífi. Samfélag þar sem samkennd, sanngirni og framtíðarsýn eru okkar gildi. Þar sem barnafjölskyldur finna stuðning, eldra fólk nýtur virðingar og íþróttalífið blómstrar. Ég vill að Akranes sé bær þar sem við stöndum saman og finnum lausnir í samtali við hvert annað. Við í Samfylkingunni á Akranesi viljum að fjölskyldan sé númer eitt. Með því að setja á 100% systkinaafslátt á leikskólum og hækka frístundastyrk fyrir öll börn. Að eldra fólk fái þjónustu sem uppfyllir þarfir hvers og eins og bæta þjónustu fyrir fatlað fólk. Vera með heildstæða sýn á öllum íþróttamannvirkjum bæjarins og tryggja markvisst viðhald, skýra forgangsröðun og góða aðstöðu til framtíðar. Hvar á Íslandi myndir þú búa ef þú mættir ekki búa í þínu sveitarfélagi? „Ég elska Akranes, ef ég mætti ekki búa þar myndi ég velja Hvalfjarðarsveit og þá rétt fyrir utan Akranes.“ Hver er uppáhalds bókin þín? „Ég er alltaf með minnisbók á mér, einmitt núna er hún uppáhalds því það kemur sér mjög vel í að punkta niður það sem íbúum finnst þurfa að bæta í bænum okkar.“ Vopni og Birnir Reyr sonur hans Ef þú þyrftir að skera niður í rekstri sveitarfélagsins þíns um hundrað milljónir, hvar myndir þú skera niður? „Ég myndi byrja á toppnum og þá reyna tryggja að hver króna nýtist á sem bestan hátt í þjónustu við íbúa og tryggja að niðurskurðurinn komi ekki niður á velferðarmálum.“ Ef þú fengir hundrað milljónir til að efla tiltekin verkefni eða svið í sveitarfélaginu, hver væru þau? „Það færi í beinan stuðning við barnafjölskyldur og eldra fólk. Til dæmis í gegnum tómstunda- og íþróttastarf.“ Hver væri titill ævisögu þinnar? „Vopnið á Skaganum? Svona tenging við nafnið..“ Hvort er betra að hringja eða senda skilaboð? „Alltaf hringja ef þú vilt svar innan 24 tíma og ég er líka alltaf til í spjall.“ Hvaða skoðun þín er óvinsæl innan eigin flokks? „Ég vill leyfa hvalveiðar, það eru ekki öll þar í Samfylkingunni en við erum samt ágætur hópur.“ Ragna Dís, Vopni og Birnir Reyr Ef þú gætir orðið sérfræðingur í einhverju samstundis, hvað væri það? „Ég væri til í að vera sérfræðingur í að fara snemma að sofa á kvöldin.“ Hvaða ákvörðun myndir þú taka á fyrsta ári í sveitarstjórn sem yrði umdeild? „Setja meira fjármagn í leikskóla, með það að markmiði að minnka áreiti og álag bæði á börn og starfsfólk. Það eru nefnilega ekki allir sammála um að setja aukið fjármagn í leikskólana okkar.“ Hvað var það síðasta sem þú notaðir gervigreindina í? „Ég var að dæma firmakeppni hjá hestamannafélaginu Dreyri, ég leitaði á náðir gervigreindarinnar þess að fá smá upplýsingar um það, en þetta var frumraun mín í því að dæma á hestamóti og ég viðurkenni að ég veit ekki mikið um hesta.“ Hvaða flokki gætir þú hugsað þér að mynda meirihluta með? Hvaða flokki gætir þú alls ekki unnið með? „Við í Samfylkingu á Akranesi erum spennt að sjá hvað kemur upp úr kössunum og munum setja hagsmuni íbúa númer eitt, tvö og þrjú.“ Vopni og Svenni tengdapabbi Nefndu mistök sem þú hefur gert á ævi þinni. „Þau eru nú alveg nokkur, en það mikilvæga við mistök er að læra af þeim. Ég hefði viljað fara í iðnnám, en það er ekki of seint!“ Hvað er betra í þínu sveitarfélagi en öðrum? „Akranes er með framúrskarandi skóla á öllum skólastigum og öflugt íþróttasamfélag. Mér finnst við best í þeim efnum. Og svo auðvitað göturnar líka…Djók.“ Hvað borðar þú í morgunmat? „Í morgun var það bara heiðarlegt svart kaffi“ Hvað fer í taugarnar á þér varðandi stjórnun sveitarfélagsins í dag? „Stjórnsýslan getur verið flókin og hlutir mega gerast hraðar. Þetta er fyrst og fremst þjónusta til íbúa og fyrirtækja.“ Hvað finnst þér raunhæft að afreka á næstu fjórum árum? „Að hækka frístundastyrk fyrir öll börn, 100% systkinaafslátt á leikskólum og að við tökum fyrstu skrefin að tryggri fjármögnun leikskólastigsins og lögfestingu á rétti barna til leikskólavistar með ríkinu.“ Hvert er uppáhalds lagið þitt? „Einmitt núna er mest spilaða lagið á mínu heimili Maístjarnan með Hafdís Huld, en litli 6 mánaða gaurinn minn sofnar alltaf yfir því.“ Hvaða mistök hafa verið gerð í þínu sveitarfélagi undanfarin ár? „Það mætti horfa meira á það sem hefur áhrif á daglegt líf íbúa. Það þarf að gera betur í málefnum fatlaðra á Akranesi, við þurfum að setja meira fjármagn í göturnar og umferðaröryggi, bæta aðgengi fólks með skerta hreyfigetu að mannvirkjum og leggja áherslu á gatnakerfi og göngustíga sem virka fyrir öll.“ Hvert er uppáhalds gælunafnið sem þú hefur fengið og af hverju? „Ég heiti Sigurður Vopni, en er alltaf kallaður Vopni. Það kemur fyrir að fólk kalli mig Vopnið.“ Hvaða loforð úr kosningabaráttunni munt þú standa við? „Að lækka kostnað barnafjölskyldna, Það er mikilvægt að við sem bjóðum okkur fram í þjónustu við íbúa tökum okkar loforðum alvarlega og það ætlum við í Samfylkingunni að gera“
Oddvitaáskorunin Samfylkingin Akranes Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum Lífið Grætur enn að hafa misst af símtalinu Lífið Húsið helmingi dýrara tveimur árum síðar Lífið Finnst hún loksins geta borið höfuð hátt á ný Lífið Sætti sig við að geta ekki breytt pabba sínum Lífið Fréttatía vikunnar: Stjörnur, svindl og Nóbel Lífið Grenjaði aftur eins og smábarn þrjátíu árum seinna Lífið Vala sagði einfaldlega „fokk jú“ Lífið Digger grefur sína eigin gröf Gagnrýni Opinbera haustrómantík á Spáni Lífið Fleiri fréttir Vala sagði einfaldlega „fokk jú“ Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum Grenjaði aftur eins og smábarn þrjátíu árum seinna Jón flutti frumsamið lag um fjörutíu ára sögu Stöðvar 2 og Sýnar Grætur enn að hafa misst af símtalinu Finnst hún loksins geta borið höfuð hátt á ný Fréttatía vikunnar: Stjörnur, svindl og Nóbel Öllu til tjaldað í afmælisþætti Sýnar Húsið helmingi dýrara tveimur árum síðar Hetjan 1986 veit enn ekki hver sendi honum spóluna Fjörutíu ár frá stofnun Stöðvar 2: „Þetta varð milljónatjón“ Stefndu á 150 milljónir en einbýlið kostaði meira „Ætli við endum ekki í einhvers konar fráhvörfum“ Sætti sig við að geta ekki breytt pabba sínum Opinbera haustrómantík á Spáni Framhald af manninum sem mátti ekki fara út með strákunum Hvað veistu um... Nóbelsverðlaunin? Alaska og Flóni hætt saman Saga Sig og Villi naglbítur eignuðust dóttur Verðlaunin ráðgáta og tilfinningin klikkuð Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Eva Marie Saint er látin Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Sjá meira