Almar í kassanum ætlar að sækja um hjá Fox-sjónvarpsstöðinni Jakob Bjarnar skrifar 6. maí 2026 16:36 Almari Steini líst vel á starfið sem er í boði hjá Fox og telur sig hafa allt sem þarf til að geta skilað því með sóma. vísir/vilhelm Almar Steinn Atlason myndlistarmaður, sem jafnan er kenndur við glerkassann sem hann dvaldi í þegar hann framdi frægasta listagjörning sem gerður hefur verið á Íslandi, þá á 1. ári í Listaháskólanum, ætlar að sækja um sérstakt starf sem Fox Sports hefur auglýst laust til umsóknar. „
Jájá, ég á eftir að senda eitthvað út. Þó að ég sé ekki endilega hrifinn af þessari fréttaveitu, ekki í sjálfu sér. Þetta eru blóðpeningar, jafnvel þó að maður sé bara að horfa á leikinn,“ segir Almar í samtali við Vísi. Fox Sports, sem er með réttinn til að sýna frá HM í Bandaríkjunum í sumar, hefur nú auglýst starf sem ætti að vekja áhuga fjölmargra fótboltaáhugamanna. Starfstitilinn mætti þýða sem „yfiráhorfandi HM“ en starfið felst einfaldlega í því að horfa á alla leikina á HM í fótbolta og fá fyrir það 6,1 milljón króna í laun. „Sá sem hlýtur starfið „þarf“ að horfa á alla 104 leiki heimsmeistaramótsins, frá 11. júní til 19. júlí, í sérstökum glerkassa sem komið verður fyrir á miðju Times Square í New York,“ skrifaði íþróttafréttamaður Vísis. Og hugur hans flögraði umsvifalaust að glerkassanum þar sem Almar dvaldi í viku fyrir allra augum árið 2015. „Hann gæti því búið yfir reynslu sem forráðamenn Fox horfa til þegar þeir ráða í starfið,“ og það er einmitt það sem Almar hyggst nú gera. Almar segir að Vísir sé búinn að skrifa fyrir sig meðmælabréfið og það sé flott.vísir/vilhelm „Þið eruð búin að skrifa fyrir mig meðmælabréfið. Þetta er mjög flott,“ segir Almar. Hann hefur þó varann á sér hvað Fox varðar. „Maður veit aldrei hvað þeir gera. Kannski verð ég sendur þarna inn með ísraelska fánann, þeir eru til alls líklegir.“ Stutt í þjóðernisnationalismann En umsóknin fer. Almar segir að það sé alltaf betra að vera sá sem segir nei en já neyddur, ef það er það sem þarf. Kannski breyta þeir Fox í sjálfseignarstofnun, það er ekki ólíklegt,“ segir Almar hugsi. Almar segist hafa gaman af fótbolta. „Ég hef gaman af öllu sem hægt er að vinna í og tapa. Ég verð samt alltaf hræddur þegar Ísland er að keppa. Það er stutt niður á Ölver og þangað fer maður, kyrjar þjóðsönginn með tárum bara til að uppgötva að það er stutt á milli stoltsins og þjóðernisnationalismans.“ Almar segist hafa gaman af fótbolta, hann hefur reyndar gaman af öllu þar sem hægt er að vinna og tapa.vísir/vilhelm Blaðamaður og Almar eru þó sammála um að þar sé ekki eins mikil hætta á ferðum ef maður er sér meðvitaður um það að þarna sé þunn lína. „Svo getur maður alltaf haldið með þeim sem er að vinna. Mér finnst það vannýtt meðal þeirra sem halda með smáþjóð. Mér hættir til að velja mér einn brjálæðing og halda svolítið með honum. En við sjáum hvernig þetta fer.“ Málar nú inn í framtíðina Almar segist alltaf vera eitthvað að föndra. „Já, búa til viljandi illa gert veggskraut og finnast það mikilvægt. Það er sýning í Bolholti í gluggagalleríinu Stétt. Þau reka þetta Snorri og Steinunn Guðlaugsdóttir myndlistarkona. Sem gerði hafpulsuna meðal annars, sem stóð úti í tjörn. Almar er farinn að mála inn í framtíðina og ef menn keyra Bolholtið má sjá hans nýjasta verk: Byltingunni hefur verið frestað vegna skorts ríkisframlagi.vísir/vilhelm Þar stendur nú stórt verk eftir mig sem heitir: „Byltingunni hefur verið frestað vegna skorts á ríkisframlagi“. Það er málað inn í framtíðina. Óður. Landslagsmálverk. Altari af Landmannalaugum eins og þær verða 2027.“ Nú, það er ekki langt í það? „Nei. Ég er nýbyrjaður að mála inn í framtíð. Ég kemst svo stutt. Ég sé ekki nema svona eitt og hálft ár fram í tímann. Miðilsmálari. Ég mæli með þessu, þetta er voðalega fínt verk og ég er ánægður með það.“
HM 2026 í fótbolta Fjölmiðlar Fótbolti Vistaskipti Myndlist Tengdar fréttir Almar í allri sinni dýrð á ljósmyndasýningu í Crymogeu Sýnir myndir sem hann tók á einnota myndavél í kassanum. 18. desember 2015 16:41 Ruslaralýður vakti Almar í nótt með hrópum og köllum Almar Atlason, 23 ára myndlistarnemi, hefur núna verið í fjóra sólahringa inni í glerkassa í húsakynnum Listaháskóla Íslands. 4. desember 2015 12:30 Mest lesið Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ Lífið Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Lífið Douglas gengst við enn einu framhjáhaldinu Bíó og sjónvarp Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Lífið Lækna-Tómas og Ármann skemmtu sér á safninu Menning Barnaspítalabindi Billy stal senunni Tíska og hönnun Eva Marie Saint er látin Lífið „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Lífið Kristrún valdi Victoriu Beckham Tíska og hönnun „Ég geri bara ráð fyrir því að fólk sé búið að gleyma mér“ Tónlist Fleiri fréttir Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Eva Marie Saint er látin Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Hvað veistu um... íslenska hönnun? Funheit í fimm ára afmæli Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs Tendra friðarsúluna í tuttugasta sinn Elegant herrar selja perlu í 101 Tískudrottningar fögnuðu kærkominni opnun Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Stjörnulífið: „Lukka lífs míns að vera gift þessum“ Fæddist á Íslandi en þurfti áratugi til að fá það staðfest Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Ástæða fyrir því að þau fóru ekki hátt með sambandið Hágrét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn Krakkatía vikunnar: Eurovision, Harry Potter og Mr. Beast Líður betur eftir að hún þurfti að þjóta upp á spítala í miðri útsendingu Haustbingó Blökastsins í beinni Hemmi Gunn hjálpaði Hilmari og Birni Braga að svindla Segir Ríkissjónvarpið bregða fyrir sig fæti Unglingavinnan var tískupallurinn í París Sjá meira
Almar í allri sinni dýrð á ljósmyndasýningu í Crymogeu Sýnir myndir sem hann tók á einnota myndavél í kassanum. 18. desember 2015 16:41
Ruslaralýður vakti Almar í nótt með hrópum og köllum Almar Atlason, 23 ára myndlistarnemi, hefur núna verið í fjóra sólahringa inni í glerkassa í húsakynnum Listaháskóla Íslands. 4. desember 2015 12:30