Það sem sveitastjórnir geta gert gegn kynbundnu ofbeldi Drífa Snædal skrifar 4. maí 2026 10:00 Að vera beitt ofbeldi getur haft veruleg og langvarandi áhrif á líf brotaþola til hins verra; aukið veikindi, örorku, sjálfskaða og haft umtalsverð áhrif á sjálfsmynd og framtíðarhorfur. Að berjast gegn ofbeldi er eitt stærsta lífsgæðamál kvenna og auðvitað forsenda jafnréttis. Það er vonandi óþarfi að fara yfir tölfræðina; kynferðislegt og kynbundið ofbeldi er staðreynd og svo algengt að fólk sem vill bæta samfélagið og hafa áhrif getur ekki skorast undan ábyrgð í þessum málaflokki. Það kemur því á óvart að lítið er fjallað um þessi mál í stefnuskrám framboða fyrir sveitastjórnarkosningarnar framundan. Það er þó ótal margt sem fulltrúar almennings á sveitastjórnarstigi geta gert í forvörnum, viðbrögðum og stefnumótun og í raun ber skylda til ef markmiðið með stjórnmálum er að bæta lífsgæði. Við hjá Stígamótum erum ávallt tilbúin til að miðla af þekkingu okkar og reynslu af því að vinna með brotaþolum. Við höfum líka oft átt afar farsæl samskipti við kjörna fulltrúa og starfsfólk sveitarfélaga í einstaka málum þó það fari ekki alltaf hátt. Við tökum þátt í að fræða starfsfólk sveitarfélaga, leggjum okkar til við stefnumótun og leggjum mikla áherslu á forvarnarstarf. Fyrir frambjóðendur sem eru ekki vissir hvernig þeir geta lagt sitt lóð á vogaskálarnar eru hér nokkrir mikilvægir punktar: Sjúk ást og Sjúkt spjall: Stígamót eru í samstarfi við Samfés og ríki um forvarnarverkefnið Sjúk ást þar sem ungt fólk fær fræðslu um eðlileg og óeðlileg samskipti, mörk og samþykki. Auk þess reka Stígamót nafnlaust spjall fyrir ungmenni undir heitinu Sjúkt spjall. Það er mikilvægt að halda þessum verkefnum áfram og byggja áfram á þeim grunni sem til er og sækja á í forvarnarstarfi. Sveitarfélög þurfa að vera með virkar stefnur til að verja starfsfólk sitt og skjólstæðinga fyrir ofbeldi hvers konar og vita hvernig beri fumlaust að taka á atvikum sem kunna að koma upp, hvort sem það er meðal starfsfólks, gagnvart starfsfólki eða innan eininga sem sveitarfélagið rekur. Fjárhagslegt sjálfstæði kvenna er ein besta vörnin gegn ofbeldi, að þær geti komið sér út úr aðstæðum og séu ekki háðar þeim sem beita ofbeldi eða neyðast út í vændi. Aðgengilegir leikskólar og dagsvistun barna er forsenda fyrir fjárhagslegu sjálfstæði kvenna, fyrir utan hið augljósa; að útrýma kynbundnum launamun og meta virði kvennastarfa að verðleikum. Vændi og mansal þrífst á Íslandi, í stórum og smáum bæjarfélögum. Sveitarfélög þurfa að taka skýra afstöðu gegn slíku vegna þess skaða sem það veldur einstaklingum og samfélaginu öllu. Þá er mikilvægt að vera með stefnu til að auðvelda fólki (oftast konum) að komast út úr vændi. Starfsfólk sveitarfélaga, einkum þau sem sinna félagsþjónustu, þurfa að fá fræðslu um orsakir og afleiðingar vændis og mæta brotaþolum með fordómalausum skilningi. Síðustu ár og áratugi hefur verið byggð upp þjónusta fyrir brotaþola víðsvegar um landið auk þjónustu fyrir gerendur til að bæta ráð sitt. Þetta er iðulega rekið af frjálsum félagasamtökum sem berjast stöðugt við að fjármagna starfsemi sína. Sveitarfélög þurfa að tryggja starfsemi sem þessa með fjárframlögum enda um grunnþjónustu að ræða á meðan ofbeldi þrífst. Rétt viðbrögð við ofbeldi meðal ungmenna skiptir lykilmáli í grunn- og framhaldsskólum. Ef ekkert er aðhafst í slíkum aðstæðum fara brotaþolar út í lífið með lægra sjálfsmat og gerendur með þau skilaboð að ofbeldið hafi engar afleiðingar. Þetta hefur alvarlegar afleiðingar á einstaklingana og samfélagið í heild. Um 70% þeirra sem leita til Stígamóta hafa orðið fyrir kynferðisofbeldi fyrir 18 ára aldur – langstærstur hluti konur sem hafa verið beittar ofbeldi af körlum. Kynjafræði- og hinseginfræðsla á öllum skólastigum eru mikilvæg forvörn gegn skaðlegum staðalmyndum sem geta alið af sér misrétti og kynbundið ofbeldi. Öll sveitarfélög geta lagt sitt af mörkum til að stuðla að virðingu og heilbrigðum samskiptum fólks af öllum kynjum. Þá er mikilvægt að starfsfólk skóla- og frístundastarfs fái fræðslu um ofbeldi, afleiðingar þess, úrræði og einkenni ofbeldishegðunar. Þannig er hægt að bregðast við, styðja við bakið á þolendum og uppræta ofbeldismenningu. Stígamót skora á frambjóðendur að horfast í augu við vandann og axla ábyrgð í baráttunni gegn kynbundnu og kynferðislegu ofbeldi. Við erum ávallt til í samtal og samráð um lausnir og viðbrögð. Höfundur er talskona Stígamóta. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Drífa Snædal Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Kynbundið ofbeldi Mest lesið Bitna kjarasamningar kennara á börnunum okkar? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir Skoðun Leigubremsan og vönduð lagasetning Gunnar Ármannsson Skoðun Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson Skoðun Leigubremsa er almannahagsmunamál Yngvi Ómar Sigrúnarson Skoðun Tímamót Samúel Guðmundsson Skoðun Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty Skoðun Skjátími eða skjátími? Mathieu Grettir Skúlason Skoðun Heilbrigð þjóð þarf gott samtal Victor Guðmundsson Skoðun Maðurinn sem hringdi í óvininn Einar Bárðarson Skoðun Skoðun Skoðun Orð eiga að hafa merkingu og undirskriftir að skipta máli Guðmundur Halldór Björnsson skrifar Skoðun Hvernig styðja skal við árangur í Efra-Breiðholti Sæmundur Árni Hermannsson skrifar Skoðun 2,5% fyrir alla – nema höfuðstól húsnæðislánanna? Friðrik Björgvinsson skrifar Skoðun Kópavogur fjölgar kennurum og fjárfestir í framtíð barna Ásdís Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Hvað kostar stjórnun okkur? Maríanna Magnúsdóttir skrifar Skoðun Forsendubresturinn sem varð að friðarkaupum Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Leigubremsan og vönduð lagasetning Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Leigubremsa er almannahagsmunamál Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Tímamót Samúel Guðmundsson skrifar Skoðun Næsta verðhækkun á ekki að vera sjálfgefin Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Börn eftir pöntun Fæðingarorlofssjóðs Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun 100 ár af dellu Helgi Tómasson skrifar Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Maðurinn sem hringdi í óvininn Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samráð sem breytir Karólína Helga Símonardóttir skrifar Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar Skoðun Farsælt framhaldslíf Steinunn Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Það sem ég dáist að við íslenskar konur Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Bitna kjarasamningar kennara á börnunum okkar? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Fíllinn í postulínsbúðinni: Veldisvöxtur breytinganna Árni Sigurðsson skrifar Skoðun Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Það eru ekki allir jafnir hér: Krefjumst jafnræðis lífsskoðunarfélaga og afnáms sérstakrar þjóðkirkju Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Ræktum samtakamátt ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Öfugsnúið fyrirkomulag - lífeyrissjóðir okkar Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Hver á upplýsingarnar um ofnæmi barnsins þíns? Bjarni Þór Ævarsson skrifar Skoðun Skjátími eða skjátími? Mathieu Grettir Skúlason skrifar Skoðun Stöndum með Seyðisfirði! Hannes Pétursson skrifar Skoðun 23? Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Íslenskt táknmál er ekki erlent tungumál Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Heilbrigð þjóð þarf gott samtal Victor Guðmundsson skrifar Sjá meira
Skoðun Orð eiga að hafa merkingu og undirskriftir að skipta máli Guðmundur Halldór Björnsson skrifar
Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar
Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar
Skoðun Það eru ekki allir jafnir hér: Krefjumst jafnræðis lífsskoðunarfélaga og afnáms sérstakrar þjóðkirkju Svanur Sigurbjörnsson skrifar