Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Stefán Árni Pálsson skrifar 29. apríl 2026 12:04 Diljá bauð Sindra í morgunkaffi. Hún lýsir sjálfri sér sem fýlupúka sem elskar sveittan skyndibita. Um hvern ræðir? Jú, það er hún Diljá Mist, þingkona Sjálfstæðisflokksins, og hún ætlar sér stóra hluti í pólitík. Sindri Sindrason leit við hjá þingkonunni í morgunkaffi í Íslandi í dag í gærkvöldi. „
Ég er algjör b-manneskja. Ég náttúrulega þarf að neyðast til þess að vakna með hundinum og börnunum,“ segir Diljá og heldur áfram. „Ég drekk ekki kaffi og ég hafði kviðið því aðeins að fá þig í heimsókn og þá myndi svona uppljóstrast,“ segir Diljá og hlær. En svona hefst venjulegur dagur hjá Diljá. „Svona virkur dagur byrjar yfirleitt á nefndastarfi uppi á Alþingi. Þegar ég er búin að labba með krökkunum í skólann með Simba [hundi fjölskyldunnar]. Um helgar er ég á náttfötunum fram eftir degi. Það er mjög gjarnan hægt að finna mig hérna í Spönginni síðdegis um helgar á náttfötum. Ég helst fer ekki úr náttfötunum,“ segir Diljá og bætir við að hún elski skyndibita og það helst í sjoppunni Gullnesti í Grafarvoginum. Diljá ásamt vinkonum sínum. Diljá segist ekki móðgast mikið í starfi sínu og þegar fólk tjáir sínar skoðanir og mögulega sínar skoðanir á henni. Óþolandi þegar fólk móðgast fyrir hönd annarra „Ég er nú ekki móðgunargjörn og það er náttúrulega leiðinlegasta fólk sem fyrirfinnst, er auðvitað móðgunargjarnt fólk, hvað þá fólk sem móðgast fyrir hönd annarra. En ég er meira svona að spara fýluna fyrir mína nánustu.“ Hún segist samt sem áður vera skapstór. „Ég er búin að vera svona frá því að ég var krakki og þeir sem halda að það lækni fýlu að ganga ekki eftir börnum, mamma mín er svo ofboðslega þrjósk að hún gekk aldrei eftir með mér fýlu. Það virkar ekki. Maður heldur bara áfram að vera fýlupoki,“ segir Diljá og bætir við að sjálf hafi hún eignast fýlupúka sem sé dóttir hennar. Mikið miðjubarn „Ég á þrjú systkini og tvö eftirlifandi. Ég er miðjubarn. Ég er rosalega týpískt miðjubarn. Við erum þarna tvö, ég og Páll bróðir minn, við erum mikil miðjubörn. Litli bróðir minn segir að ég hafi fæðst þrítug og alltaf verið að segja þeim til og verið svona svolítið mikið mamma. Svo var ég ákveðin. Ég glímdi við svona raddbandavandamál þegar ég var krakki og greiningin var að ég væri ákveðin og notaði til þess röddina. Þannig að ég hef alltaf verið hávær og látið mikið fyrir mér fara þrátt fyrir að vera ekkert rosalega stór. Enda er maður bara eins stór og manni finnst maður vera.“ Hún er lögfræðingur að mennt en hefur ekki starfað mikið sem slíkur „Þegar ég réð mig inn í pólitíkina þá var ég nýorðin hæstaréttarlögmaður. Ég var byrjuð að flytja mál í Hæstarétti. Það var æðislegt og ég var á lítilli stofu sem heitir Lögmál. Ég sakna þessa alveg.“ En af hverju pólitík? „Ég er búin að vera svo sem með annan fótinn í pólitíkinni frá því ég var bara unglingur, frá því ég var í Versló og ég var virk í starfinu hjá Heimdalli, félagi ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík. Einhverjum finnst þetta hljóma rosalega kortlagt, að menn séu búnir að vera þarna frá því maður var krakki. Ég er nú alin upp á miklu Sjálfstæðisheimili.“ Reynum öll eitthvað En lífið hefur ekki alltaf farið mjúkum höndum um Diljá. „Flestöll höfum við reynt eitthvað. Ég auðvitað missti systur mína mjög ung. Við vorum ótrúlega nánar vinkonur og aldar upp hérna saman því það var bara ár á milli okkar í skóla og við vorum nú saman á herbergi mjög lengi. Þannig að við vorum ótrúlega nánar. Hún lést úr fíknisjúkdómi og það er nú líka málaflokkur sem er ótrúlega vanræktur. Ég hef verið að tala fyrir því og benda á það að ég telji að það sé vegna fordóma sem ríkja í garð þessa málaflokks. Nú erum við með ríkisstjórn sem lofaði öllu fögru þegar kemur að ungu fólki með ýmiss konar vanda og ég get ekki séð að þau mál hafi verið sett á oddinn.“ Hér að neðan má sjá innslagið í heild sinni þar sem Diljá fer nánar út í pólitíkina og lífið sjálft.
Sjálfstæðisflokkurinn Fíkn Ísland í dag Morgunkaffi í Íslandi í dag Mest lesið Steinn Ármann er látinn Lífið Davíð Þór um fráfall Steins Ármanns: „Engin orð. Bara sorg“ Lífið Kjóllinn brann korter í brúðkaup Lífið Fór létt með tíu kílómetra: „Við sjáumst bara í markinu gamla mín“ Lífið „Ég er bara einhver skel af sjálfri mér núna“ Lífið Krakkatía vikunnar: Svampur Sveinsson og Sesarsalatið Lífið Leikkonan Bunny Levine er látin Lífið „Maður veit aldrei hvað framtíðin ber í skauti sér“ Lífið Úlfadrengurinn í Sierra Morena allur Lífið Fréttatía vikunnar: Eiður Smári, Harry og frelsissvipting Lífið Fleiri fréttir Margir minnast Steins Ármanns: „Gaf okkur stærstu gjöf sem hægt er að gefa“ „Ég er bara einhver skel af sjálfri mér núna“ Leikkonan Bunny Levine er látin Davíð Þór um fráfall Steins Ármanns: „Engin orð. Bara sorg“ Steinn Ármann er látinn Kjóllinn brann korter í brúðkaup Krakkatía vikunnar: Svampur Sveinsson og Sesarsalatið Fór létt með tíu kílómetra: „Við sjáumst bara í markinu gamla mín“ Úlfadrengurinn í Sierra Morena allur „Maður veit aldrei hvað framtíðin ber í skauti sér“ Fréttatía vikunnar: Eiður Smári, Harry og frelsissvipting Missti allan mátt fyrir neðan bringu: Dreymir um að geta spilað golf á ný Fyrsta kvennalandsliðið í kotru býður á opna æfingu Svona voru afmælistónleikar Bylgjunnar á Menningarnótt Þessi hafa safnað mestu fyrir Reykjavíkumaraþonið Lögmaður kærasta Panettiere með yfirlýsingu um andlátið Barnastjörnurnar sem Hollywood brást Hvað veistu um... Köngulóarmanninn? Ekkert annað í stöðunni en að fara á brókinni í ísbúðina Guðmundur Felix frumsýnir nýja nefið Týndi farangrinum og klæddist íslensku merki frá toppi til táar Hlutir sem þú ættir aldrei að deila með maka þínum Svona verður dagskráin á Menningarnótt Harry og Meghan ætla að flytja aftur til Bretlands Þorsteinn Leó orðinn pabbi Versluðu sígarettur af rússneskum sjómönnum: „Þetta var bara eins og gull“ Jinny Lu er ljótasti hundur í heimi 2026 „Hver á eftir að vilja konu sem kúkar í poka?“ Jóhann Kristófer og Nadía Áróra slá sér upp Nicole birtir myndir úr Íslandsheimsókninni: „Við elskum ykkur Ísland!!“ Sjá meira