Neyðarlegast að handleggsbrjóta vinkonu á sviði Magnús Jochum Pálsson skrifar 12. apríl 2026 07:30 Emma Guðrún Davíðsdóttir keppir í Ungfrú Ísland í ár en hún hefur áður keppt í táningsútgáfu keppninnar. „Þegar ég var yngri var ég gagnrýnd fyrir útlit mitt og það gekk á í mörg ár. Mig langar að sýna yngri krökkum að sama hvað aðrir segja, þá byrjar fegurðin innra með þér. Sem keppandi í Ungfrú Ísland finnst mér það vera mitt verkefni að hvetja þau yngri,“ segir Emma Guðrún Davíðsdóttir sem keppir í Ungfrú Ísland 2026.
Fegurðarsamkeppnin Ungfrú Ísland verður haldin í ellefta skiptið þann 22. apríl næstkomandi og fer fram í Gamla bíói þar sem Eva Ruza verður kynnir. Keppendur eru tuttugu talsins og etja kappi um að verða fulltrúi Íslands í Ungfrú alheimi sem fer fram í Puerto Rico í lok árs. Lífið á Vísi ræðir við stúlkurnar sem keppast um titilinn Ungfrú Ísland í ár og fær að kynnast þeim aðeins betur. Ungfrú Ísland verður í beinni útsendingu þann 22. apríl í sjónvarpi Vísis. Áhugi og kurteisi heillandi Emma Guðrún Davíðsdóttir er átján ára nemandi við Fjölbrautaskólann í Breiðholti sem vinnur hjá Te og Kaffi og keppir í Ungfrú Ísland í ár sem Ungfrú Kvígindisfjörður. Hvað kæmi fólki mest á óvart að vita um þig? „Ég átti heima á Akureyri þegar ég var yngri í nokkur ár.“ Emma er Ungfrú Kvígindisfjörður.Arnór Trausti Hver er þinn mesti ókostur? „Minn helsti ókostur (getur einnig verið kostur í mörgum aðstæðum) er að ég get verið þrjósk.“ Hver er fyrirmynd þín í lífinu (sem er ekki ættingi þinn)? „Vigdís Finnbogadóttir.“ Hvað hefur mótað þig mest? „Reynslan. Ef þú dettur, þá stendurðu aftur upp og verður sterkari.“ Hvað finnst þér heillandi í fari fólks? „Þegar það sýnir þér áhuga og kurteisi.“ En óheillandi? „Óvirðing.“ Bílslysið stærsta áskorunin „Ég lenti í bílslysi og missti mikinn mátt í líkamanum. Eftir það leið mér ekki vel andlega. En á hverjum degi reyndi ég mitt besta, bar höfuðið hátt og reif mig í gegnum þetta,“ segir Emma um stærstu áskorunina sem hún hefur þurft að takast á við. Emma er stolt af því að vera íslensk kona. Hver er þín mesta gæfa í lífinu? „Fyrir utan að eiga góða fjölskyldu, þá eru það vinkonur mínar.“ Hvernig tekstu á við stress og álag? „Að halda áfram með höfuðið hátt og taka eitt í einu. Þá verður þetta ekkert mál.“ Besta heilræði sem þú hefur fengið? „Að koma fram við aðra eins og þú vilt að aðrir komi fram við þig.“ Hvar sérðu þig eftir tíu ár? „Orðin móðir, búin að eignast eiginmann og vonandi búin að eignast fallegt hús.“ Steig óvart á hönd vinkonunnar „Árið 2023 keppti ég í Skrekk og í enda atriðisins steig ég óvart á höndina á bestu vinkonu minni og handleggsbraut hana,“ segir Emma um neyðarlegasta atvik sem hún hefur lent í. Hverju ertu stoltust af? „Að vera íslensk kona.“ Emma býr ekki neinum leyndum hæfileikum að eigin sögn. Býrðu yfir einhverjum leyndum hæfileika? „Nei, því miður.“ Hver er frægasti einstaklingur sem þú hefur hitt? „Ég man það ekki.“ Ef þú fengir milljarð til umráða, hvað myndirðu gera við peningana? „Setja þá í sparnað fyrir framtíðina.“ Hver er uppáhaldsbókin þín? „The Housemaid eftir Freidu McFadden.“ Hver er þinn helsti ótti? „Nálar (sprautur).“ Brennur fyrir umferðaröryggi Hvað var það sem vakti áhuga þinn á keppninni? „Að geta látið gott af mér leiða, kynnast nýjum glæsilegum stelpum og stíga út fyrir þægindarammann.“ Hvaða samfélagslega málefni brennur þú fyrir? „Umferðaröryggi.“ Emma keppti í táningsútgáfu Ungfrúr Ísland í fyrra. Hvaða kosti þarf Ungfrú Ísland að búa yfir? „Hún þarf að vera jákvæð, eftirminnileg og svo lengi mætti telja.“ Af hverju sækist þú eftir því að vera næsta Ungfrú Ísland? „Þegar ég var yngri var ég gagnrýnd fyrir útlit mitt og það gekk á í mörg ár. Mig langar að sýna yngri krökkum að sama hvað aðrir segja, þá byrjar fegurðin innra með þér. Sem keppandi í Ungfrú Ísland finnst mér það vera mitt verkefni að hvetja þau yngri.“ Hvað greinir þig frá öðrum keppendum? „Við erum allar einstakar á okkar hátt og reynum ekki að bera okkur saman.“ Hver er stærsta áskorunin sem þín kynslóð stendur frammi fyrir? „Samfélagsmiðlar eru ein af mörgum áskorunum, þar sem samanburður er mikill. Þú sérð stöðugt „fullkomið“ líf hjá öðrum og fólk ber sig saman við óraunhæfar myndir. Hvað viltu segja við þá sem hafa neikvæða skoðun á fegurðarsamkeppnum? „Allir eiga rétt á sínum skoðunum. Meirihluti þessa fólks hefur sjálft ekki tekið þátt í fegurðarsamkeppni og dæmir því eingöngu út frá því sem það sér á miðlum, sem er að vissu leyti eðlilegt.“
Ungfrú Ísland Fegurðarsamkeppnir Mest lesið Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ Lífið Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Lífið Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Lífið Lækna-Tómas og Ármann skemmtu sér á safninu Menning Barnaspítalabindi Billy stal senunni Tíska og hönnun Eva Marie Saint er látin Lífið „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Lífið Kristrún valdi Victoriu Beckham Tíska og hönnun „Ég geri bara ráð fyrir því að fólk sé búið að gleyma mér“ Tónlist Svona getur lyfjaskammtarinn einfaldað daglegt líf Lífið samstarf Fleiri fréttir Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Eva Marie Saint er látin Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Hvað veistu um... íslenska hönnun? Funheit í fimm ára afmæli Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs Tendra friðarsúluna í tuttugasta sinn Elegant herrar selja perlu í 101 Tískudrottningar fögnuðu kærkominni opnun Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Stjörnulífið: „Lukka lífs míns að vera gift þessum“ Fæddist á Íslandi en þurfti áratugi til að fá það staðfest Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Ástæða fyrir því að þau fóru ekki hátt með sambandið Hágrét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn Krakkatía vikunnar: Eurovision, Harry Potter og Mr. Beast Líður betur eftir að hún þurfti að þjóta upp á spítala í miðri útsendingu Haustbingó Blökastsins í beinni Hemmi Gunn hjálpaði Hilmari og Birni Braga að svindla Segir Ríkissjónvarpið bregða fyrir sig fæti Unglingavinnan var tískupallurinn í París Sjá meira