Leikarinn Michael Patrick látinn eftir baráttu við MND Magnús Jochum Pálsson skrifar 9. apríl 2026 10:39 Michael Patrick með guðson sinn Micháel fyrr á árinu. Norður-írski leikarinn og handritshöfundurinn Michael Patrick er látinn, 35 ára að aldri, eftir rúmlega tveggja ára baráttu við taugasjúkdóminn MND. Patrick skrifaði sjónvarpsþættina My Left Nut sem byggðu á hans eigin reynslu, lék á sviði og smáhlutverk í hinum ýmsu þáttum, þar á meðal í sjöttu seríu Krúnuleikanna. Patrick lést á líknardeild í fyrrinótt eftir tíu daga dvöl en eiginkona leikarans, Naomi Sheehan, tilkynnti andlát hans á Instagram í gær. „Í nótt lést Mick því miður á líknardeild Norður-Írlands. Hann greindist með hreyfitaugungahrörnun (e. Motor Neuron Disease) 1. febrúar 2023. Hann var lagður inn fyrir tíu dögum og hlúði ótrúlegt teymi að honum þar. Hann lést friðsamlega, umkringdur fjölskyldu og vinum,“ skrifaði Sheehan í færslunni. View this post on Instagram A post shared by Michael Patrick (@michaelpatrick314) „Orð geta ekki útskýrt hversu niðurbrotinn við erum. Það hefur verið sagt oftar en einu sinni að Mick veitti öllum þeim, sem nutu þeirra forréttinda að hitta hann, innblástur, ekki bara á síðustu árum meðan hann var veikur heldur líka alla daga ævi hans,“ sagði jafnframt. Hann hefði lifað lífinu til fulls, uppfullur af gleði, andagift og smitandi hlátri, „risi í formi rauðhærðs manns“ og þakkaði hún öllum þeim sem hefðu stutt þau í gegnum árin. Verðlaunaður fyrir að leika Ríkharð III Patrick fæddist í Belfast, lærði við Cambridge og kom þar fram með hinum fræga leikhóp Cambridge Footlights áður en breytti um stefnu í lífinu og lagði stund á leiklist við Mountview Academy of Theatre Arts í Lundúnum. Patrick skrifaði sjónvarpsþættina My Left Nut (2020) sem byggðu á samnefndu leikriti hans sem hann skrifaði út frá eigin reynslu. Hann lék sjálfur í þáttunum og fékk smáhlutverk í hinum ýmsu þáttum á tíu ára ferli, þar á meðal Blue Lights (2023), Soft Border Patrol (2018) Krypton (2019). Patrick má sjá hér hægra megin í forgrunni. Stærsta verkefni Patrick, allavega hvað fjölda áhorfenda varðar, var smáhlutverk í sjöttu seríu Krúnuleika þar sem hann leikur einn af vaktmönnum Næturvaktarinnar á veggnum. Patrick greindist með MND-taugasjúkdóminn í febrúar 2023 og þurfti eftir það að nota hjólastól. Þrátt fyrir sjúkdómsgreininguna hélt Patrick áfram að leika. Hvað er MND? „Motor Nourone Disease – í sumum löndum kallað ALS eða Amyotropic lateral scolerosis, einnig Lou Gehrig sjúkdómirinn – er banvænn sjúkdómur sem ágerist venjulega hratt og herjar á hreyfitaugar líkamans sem flytja boð til vöðvanna. Af honum leiðir máttleysi og lömun í handleggjum, fótleggjum, munni, hálsi o.s.fv. Að lokum er um algera lömun að ræða. Vitsmunalegur styrkur helst þó óskaddaður í flestum tilvikum. Líftími sjúklinga eftir að þeir fá sjúkdóminn er frá 2 – 5 ár en sumir lifa lengur,“ segir á vef MND-félagsins. Eitt síðasta hlutverk hans var sem Ríkharður III í samnefndum harmleik sem settur var upp í Lyric-leikhúsinu í Belfast í janúar 2025. Fyrir leik sinn hlaut Patrick dómnefndarverðlaun á Stage-verðlaunahátíðinni árið 2025. Síðasta færsla leikarans á samfélagsmiðlum birtist 6. febrúar og greindi hann þá frá því að læknar hefðu tjáð honum að hann ætti ár eftir ólifað. „Samt nóg eftir til að lifa fyrir og nóg planað,“ skrifaði hann í færslunni. Norður-Írland Andlát Bíó og sjónvarp Game of Thrones Mest lesið Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ Lífið „Það er smá töffari í mér“ Tíska og hönnun Douglas gengst við enn einu framhjáhaldinu Bíó og sjónvarp Fangelsi undir Vatnajökli Leikjavísir Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Lífið Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Lífið Lækna-Tómas og Ármann skemmtu sér á safninu Menning Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Lífið Húsgagnadagar hafnir í JYSK með allt að 40% afslætti Lífið samstarf Eva Marie Saint er látin Lífið Fleiri fréttir Douglas gengst við enn einu framhjáhaldinu Hrútar orðnir að kóreskum kálfum La Gradiva hlaut Gullna lundann „Þetta eru verstu fréttir sem ég hef fengið á ævi minni“ Gengst loksins við fjörutíu ára gömlu ástarævintýri með Turner Leikur í myndinni en skilur ekki nokkurn skapaðan hlut Bransafólk í blússandi fíling Hasar, húmor og hryllingur til að hámhorfa í haust Hjónin David Leitch og Kelly McCormick hlutu heiðursverðlaun RIFF Hlaut óvænt heiðursverðlaun RIFF Gugga í gúmmíbát handtekin á frumsýningu „Þetta snýst um líf og dauða“ Níu bíómyndir sem berjast um heitustu verðlaunin Gömul leyndarmál koma upp á yfirborðið Streymisveitan Apple TV loksins á Íslandi Hinsta ferð Johns Snorra á hvíta tjaldið Sjónvarp Símans opnar veitu helgaða bresku sjónvarpsefni Sögulegur tvöfaldur sigur á Emmy-verðlaunum Af TikTok á skjáinn Carla Jeffery látin 33 ára að aldri Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Jörðin undir fótum okkar framlag Íslands til Óskarsverðlauna Alexander Skarsgård heiðraður á RIFF Klaufskar löggur, kvartanir yfir kynlífi og kúkur á húddi Sjá meira
Patrick lést á líknardeild í fyrrinótt eftir tíu daga dvöl en eiginkona leikarans, Naomi Sheehan, tilkynnti andlát hans á Instagram í gær. „Í nótt lést Mick því miður á líknardeild Norður-Írlands. Hann greindist með hreyfitaugungahrörnun (e. Motor Neuron Disease) 1. febrúar 2023. Hann var lagður inn fyrir tíu dögum og hlúði ótrúlegt teymi að honum þar. Hann lést friðsamlega, umkringdur fjölskyldu og vinum,“ skrifaði Sheehan í færslunni. View this post on Instagram A post shared by Michael Patrick (@michaelpatrick314) „Orð geta ekki útskýrt hversu niðurbrotinn við erum. Það hefur verið sagt oftar en einu sinni að Mick veitti öllum þeim, sem nutu þeirra forréttinda að hitta hann, innblástur, ekki bara á síðustu árum meðan hann var veikur heldur líka alla daga ævi hans,“ sagði jafnframt. Hann hefði lifað lífinu til fulls, uppfullur af gleði, andagift og smitandi hlátri, „risi í formi rauðhærðs manns“ og þakkaði hún öllum þeim sem hefðu stutt þau í gegnum árin. Verðlaunaður fyrir að leika Ríkharð III Patrick fæddist í Belfast, lærði við Cambridge og kom þar fram með hinum fræga leikhóp Cambridge Footlights áður en breytti um stefnu í lífinu og lagði stund á leiklist við Mountview Academy of Theatre Arts í Lundúnum. Patrick skrifaði sjónvarpsþættina My Left Nut (2020) sem byggðu á samnefndu leikriti hans sem hann skrifaði út frá eigin reynslu. Hann lék sjálfur í þáttunum og fékk smáhlutverk í hinum ýmsu þáttum á tíu ára ferli, þar á meðal Blue Lights (2023), Soft Border Patrol (2018) Krypton (2019). Patrick má sjá hér hægra megin í forgrunni. Stærsta verkefni Patrick, allavega hvað fjölda áhorfenda varðar, var smáhlutverk í sjöttu seríu Krúnuleika þar sem hann leikur einn af vaktmönnum Næturvaktarinnar á veggnum. Patrick greindist með MND-taugasjúkdóminn í febrúar 2023 og þurfti eftir það að nota hjólastól. Þrátt fyrir sjúkdómsgreininguna hélt Patrick áfram að leika. Hvað er MND? „Motor Nourone Disease – í sumum löndum kallað ALS eða Amyotropic lateral scolerosis, einnig Lou Gehrig sjúkdómirinn – er banvænn sjúkdómur sem ágerist venjulega hratt og herjar á hreyfitaugar líkamans sem flytja boð til vöðvanna. Af honum leiðir máttleysi og lömun í handleggjum, fótleggjum, munni, hálsi o.s.fv. Að lokum er um algera lömun að ræða. Vitsmunalegur styrkur helst þó óskaddaður í flestum tilvikum. Líftími sjúklinga eftir að þeir fá sjúkdóminn er frá 2 – 5 ár en sumir lifa lengur,“ segir á vef MND-félagsins. Eitt síðasta hlutverk hans var sem Ríkharður III í samnefndum harmleik sem settur var upp í Lyric-leikhúsinu í Belfast í janúar 2025. Fyrir leik sinn hlaut Patrick dómnefndarverðlaun á Stage-verðlaunahátíðinni árið 2025. Síðasta færsla leikarans á samfélagsmiðlum birtist 6. febrúar og greindi hann þá frá því að læknar hefðu tjáð honum að hann ætti ár eftir ólifað. „Samt nóg eftir til að lifa fyrir og nóg planað,“ skrifaði hann í færslunni.
Hvað er MND? „Motor Nourone Disease – í sumum löndum kallað ALS eða Amyotropic lateral scolerosis, einnig Lou Gehrig sjúkdómirinn – er banvænn sjúkdómur sem ágerist venjulega hratt og herjar á hreyfitaugar líkamans sem flytja boð til vöðvanna. Af honum leiðir máttleysi og lömun í handleggjum, fótleggjum, munni, hálsi o.s.fv. Að lokum er um algera lömun að ræða. Vitsmunalegur styrkur helst þó óskaddaður í flestum tilvikum. Líftími sjúklinga eftir að þeir fá sjúkdóminn er frá 2 – 5 ár en sumir lifa lengur,“ segir á vef MND-félagsins.
Norður-Írland Andlát Bíó og sjónvarp Game of Thrones Mest lesið Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ Lífið „Það er smá töffari í mér“ Tíska og hönnun Douglas gengst við enn einu framhjáhaldinu Bíó og sjónvarp Fangelsi undir Vatnajökli Leikjavísir Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Lífið Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Lífið Lækna-Tómas og Ármann skemmtu sér á safninu Menning Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Lífið Húsgagnadagar hafnir í JYSK með allt að 40% afslætti Lífið samstarf Eva Marie Saint er látin Lífið Fleiri fréttir Douglas gengst við enn einu framhjáhaldinu Hrútar orðnir að kóreskum kálfum La Gradiva hlaut Gullna lundann „Þetta eru verstu fréttir sem ég hef fengið á ævi minni“ Gengst loksins við fjörutíu ára gömlu ástarævintýri með Turner Leikur í myndinni en skilur ekki nokkurn skapaðan hlut Bransafólk í blússandi fíling Hasar, húmor og hryllingur til að hámhorfa í haust Hjónin David Leitch og Kelly McCormick hlutu heiðursverðlaun RIFF Hlaut óvænt heiðursverðlaun RIFF Gugga í gúmmíbát handtekin á frumsýningu „Þetta snýst um líf og dauða“ Níu bíómyndir sem berjast um heitustu verðlaunin Gömul leyndarmál koma upp á yfirborðið Streymisveitan Apple TV loksins á Íslandi Hinsta ferð Johns Snorra á hvíta tjaldið Sjónvarp Símans opnar veitu helgaða bresku sjónvarpsefni Sögulegur tvöfaldur sigur á Emmy-verðlaunum Af TikTok á skjáinn Carla Jeffery látin 33 ára að aldri Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Jörðin undir fótum okkar framlag Íslands til Óskarsverðlauna Alexander Skarsgård heiðraður á RIFF Klaufskar löggur, kvartanir yfir kynlífi og kúkur á húddi Sjá meira