Kosning: Hver verður Iðnaðarmaður ársins 2026? X977 og SINDRI 9. apríl 2026 13:42 Sex iðnaðarmenn hlutu náð fyrir augum dómnefndar í ár. Hægt er að kynna sér þau hér og kjósa Iðnaðarmann ársins 2026. X977 og Sindri leita nú að Iðnaðarmanni ársins 2026. Fjöldi ábendinga um flinka iðnaðarmenn bárust dómnefndinni sem hefur legið undir feldi síðustu daga. Sá eða sú sem sem stendur uppi sem sigurvegari hlýtur veglegan verðlaunapakka frá Sindra.
Lesendum gefst hér kostur á að kynna sér þau sem dómnefndinni þótti skara framúr og kjósa á milli þeirra. Kosningin stendur yfir hér fyrir neðan. Þau sem keppa til úrslita eru: Benedikt Rúnar Hermannsson rafvirki, Benedikt Steinþórsson trésmiður og Aníta Björk pípari Benedikt Rúnar Hermannsson rafvirki Umsögn: „Benedikt Rúnar er harðduglegur rafvirki frá Skipaskaga. Hann er fyrsti maður sem býðst til þess að hjálpa örum utan vinnutíma. Hann er ekki bara einn færasti rafvirki landsins sem minnir mann á Tony Stark í Iron Man 1, neinei þú getur látið hann fá hvaða verkfæri sem er og hann mundar það eins og hann hafi aldrei gert annað. Það eina sem er stærra en krumlurnar á honum er hjartað hans sem hefur pláss fyrir alla í kringum hann.“ Benedikt Steinþórsson trésmiður Umsögn: „Benedikt Steinþórsson trésmiður kallar ekkert ömmu sína hvað iðnað varðar. Hann gengur í öll verk, vinnur þau vel, án nöldurs og ef að eitthvað kemur uppá þá leysir hann einfaldlega úr því.“ Aníta Björk pípari Umsögn: „Útskrifaðist frá Tækniskólanum árið 2023 með hæstu einkunn. Hjá Veitum vinnur hún hörðum höndum að því að lagfæra og leggja vatnslagnir borgarinnar. Það sem að Aníta dýrka við pípulagnir er að nánast ekkert verkefni er eins. Það getur verið krefjandi þegar kúnnar eru með flóknar hugmyndir en það er líka mjög gefandi að klára flókin verkefni.“ Garðar Bergmann Gunnlaugsson málari, Jóhann Laxdal pípari og Kristín Ýr Kristensdóttir blikksmiður. Garðar Bergmann Gunnlaugsson málari Umsögn: „Eftir að knattspyrnuferlinum lauk skellti Garðar sér í málarann, brilleraði á sveinsprófi og hefur ekki litið til baka síðan enda nóg að gera hjá öflugum iðnaðarmönnum.“ Jóhann Laxdal pípari Umsögn: „Jói er tveggja barna fjölskyldufaðir, fyrrum fótboltastjarna og hlustar á þungarokk. Hann er skemmtilegur, með risastórt hjarta og vil allt fyrir fólkið sitt gera, hann er líka manna fyrstur að bjóða fram aðstoð. Jói er hörkuduglegur, ef hann er ekki í vinnunni þá er hann að sinna fjölskyldunni, meistaranámi eða bakvakt.“ Katrín Ýr Kristensdóttir blikksmiður Umsögn: „Katrín Ýr er með iðnaðarmannablóðið í sér. Fyrir utan það að vera fimmti ættliður í blikksmiðnum í sinni fjölskyldu lærði hún einnig bílamálun. Hún kláraði sveinsprófið árið 2017 og útskrifaðist sem meistari úr blikkiðn 2025. Hún er 37 ára, þriggja barna móðir og búin að vera með sama karlfíflinu í 22 ár. Hún á og rekur í dag fyrirtækið Nýjablikk ehf. Granít hörð og lætur engan vaða yfir sig.“
Iðnaðarmaður ársins X977 Mest lesið Uggandi yfir afstöðu VR Viðskipti innlent Stýrivextir áfram átta prósent Viðskipti innlent Tölvuþrjótarnir hafi ekki komist yfir kortanúmer Viðskipti erlent Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Viðskipti innlent Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Viðskipti innlent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Viðskipti innlent Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Viðskipti innlent Notendur ASOS fá tilkynningu frá meintum tölvuþrjótum Viðskipti erlent Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Viðskipti innlent Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Viðskipti innlent Fleiri fréttir Nýtt gæðakerfi Michelin Expert center hjá N1 Nýr kafli hafinn hjá NOMY Ert þú með hugmynd sem gæti bætt heilsu fólks? Meira en nýtt útlit hjá Toyota í Kauptúni Fleiri valkostir í Bónus með Salling Ný kynslóð Scania rafmagnsvörubíla er sniðin að þörfum hvers viðskiptavinar Ör þróun í iðngreinum heldur fagfólki á tánum 98 prósent loft en gegnir lykilhlutverki í íslensku atvinnulífi Greiðsluáskorun Leitað að fyrirmyndum í öryggismálum fyrirtækja Toyota sýnir nýja bíla á laugardaginn Frumkvöðull stimplar sig aftur inn með 622 kílómetra drægni Þú þarft ekki alltaf lægri vexti til að spara milljónir á húsnæðislánum Greitt við afhendingu hjá nýrri íslenskri netverslun Sjá meira