Sniðgöngum ísraelska lyfjarisann Teva eins og Rapyd Björn B Björnsson skrifar 27. mars 2026 15:00 Íslendingar hafa í stórum stíl sniðgengið ísraelska fjármálafyrirtækið Rapyd vegna stuðnings þess við hernað Ísraels á Gaza. Þegar hafa yfir 500 fyrirtæki hætt viðskiptum við Rapyd hér á landi sem er örugglega Íslandsmet og líklega heimsmet miðað við mannfjölda. Enn eru nokkur fyrirtæki sem ekki hafa viljað skipta og þess vegna erum við mörg sem forðumst að eiga ekki viðskipti við þau. Meðal þeirra eru S4S samsteypan sem var að kaupa Lindex (og á Ellingsen, skór.is, Steinar Wage, Kaupfélagið, Ecco, Scetchers ofl). Einnig Síminn, H&M, Kaffitár, Myllan og Árvakur svo nokkur séu nefnd. Lista yfir þau fyrirtæki sem nota Rapyd er hægt að sjá á hirdir.is. Teva sem er eitt stærsta lyfjafyrirtæki heims, er frá Ísrael og er skráð í kauphöllinni þar. Teva keypti íslenska lyfjafyrirtækið Actavis árið 2016 og hefur rekið hér starfsemi síðan. Teva í Ísrael og Palestínu Teva hefur líkt og Rapyd lýst yfir stuðningi við hernaðinn á Gaza, sem fjöldi alþjóðastofnana segir að sé þjóðarmorð, og hefur stutt ísraelska herinn í þeirri herferð með ýmsu móti. Það kemur skýrt fram í öllum starfstöðum fyrirtækisins í Ísrael og Teva hefur gefið ísraelska hernum ýmsan búnað eins og lyf og tölvubúnað. Fimmtungur starfsmanna Teva í Ísrael hefur verið í ísraelska hernum eftir að árásirnar á Gaza hófust og fyrirtækið hefur stutt þá sérstaklega. Þá er Teva eitt þeirra fyrirtækja sem hefur hagnast á einokunaraðstöðu ísraelskra fyrirtækja til að selja lyf á Gaza bæði til einstaklinga og sjúkrahúsa. Palestínumenn eru því viðskiptavinir Teva án þess að hafa um það val. Teva hefur þó í engu sýnt Palestínumönnum samlíðan eða stuðning í þjáningum þeirra. Þvert á móti. Í Kóvíd bauð Teva til dæmis Ísraelsmönnum í ólöglegum landtökubyggðum á Vesturbakkanum ókeypis bólusetningar - en ekki Palestínufólki á sömu stöðum og mismunað þannig fólki eftir þjóðerni sem er kynþáttastefna. Teva í Evrópu og Bandaríkjunum Saga Teva á Vesturlöndum er heldur ekki fögur. Árið 2024 sektaði Evrópusambandið Teva um nærri 70 milljarða fyrir markaðsmisnotkun og að dreifa fölskum upplýsingum um samkeppnisaðila sína. Áður hafði Teva verið sektað fyrir að tefja fyrir því að ódýr samheitalyf kæmust á markað í Evrópu. Teva var árið 2024 dæmt til að borga 63 milljarða í sekt í Bandaríkjunum fyrir verðsamráð og halda þannig uppi verði á lyfjum. Árið eftir var Teva dæmt fyrir að tefja fyrir því að ódýrt asmalyf kæmist á markaðinn í Bandaríkjunum. Árið 2022 féllst Teva á að greiða nærri 600 milljarða króna vegna markaðssetningar á ópíóðum í Bandaríkjunum sem ollu fíkn og ómældum þjáningum milljóna manna. Það eru því margar góðar ástæður til að sniðganga Teva. Sniðgöngum Teva Yfirleitt er hægt að fá samheitalyf í apótekum í staðin fyrir lyf frá Teva ef spurt er um þau. Þá er gott að skoða með lækninum sínum hvort til séu aðrir valkostir en lyf sem framleidd eru af Teva. Athugið að sum af lyfjum Teva eru merkt Actavis. Á heimasíðunni snidganga.is er listi unninn af lyfjafræðingi yfir lyf frá Teva sem ekki eru lyfseðilskyld og upplýsingar um sambærileg lyf frá öðrum framleiðendum. Ég hvet alla til að kynna sér málin á snidganga.is/vorumerkin. Sniðganga á lyfjum frá Teva er alþjóðleg og sum apótek í Bretlandi og víðar um heim selja ekki lyf frá Teva af samviskuástæðum. Við getum líka lagt okkar af mörkum. Hvert og eitt. Höfundur er kvikmyndagerðarmaður. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Björn B. Björnsson Mest lesið Bitna kjarasamningar kennara á börnunum okkar? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir Skoðun Leigubremsan og vönduð lagasetning Gunnar Ármannsson Skoðun Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson Skoðun Leigubremsa er almannahagsmunamál Yngvi Ómar Sigrúnarson Skoðun Kópavogur fjölgar kennurum og fjárfestir í framtíð barna Ásdís Kristjánsdóttir Skoðun 2,5% fyrir alla – nema höfuðstól húsnæðislánanna? Friðrik Björgvinsson Skoðun Tímamót Samúel Guðmundsson Skoðun Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty Skoðun Heilbrigð þjóð þarf gott samtal Victor Guðmundsson Skoðun Skoðun Skoðun Frá gullsöltum til líftæknilyfja Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Orð eiga að hafa merkingu og undirskriftir að skipta máli Guðmundur Halldór Björnsson skrifar Skoðun Hvernig styðja skal við árangur í Efra-Breiðholti Sæmundur Árni Hermannsson skrifar Skoðun 2,5% fyrir alla – nema höfuðstól húsnæðislánanna? Friðrik Björgvinsson skrifar Skoðun Kópavogur fjölgar kennurum og fjárfestir í framtíð barna Ásdís Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Hvað kostar stjórnun okkur? Maríanna Magnúsdóttir skrifar Skoðun Forsendubresturinn sem varð að friðarkaupum Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Leigubremsan og vönduð lagasetning Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Leigubremsa er almannahagsmunamál Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Tímamót Samúel Guðmundsson skrifar Skoðun Næsta verðhækkun á ekki að vera sjálfgefin Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Börn eftir pöntun Fæðingarorlofssjóðs Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun 100 ár af dellu Helgi Tómasson skrifar Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Maðurinn sem hringdi í óvininn Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samráð sem breytir Karólína Helga Símonardóttir skrifar Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar Skoðun Farsælt framhaldslíf Steinunn Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Það sem ég dáist að við íslenskar konur Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Bitna kjarasamningar kennara á börnunum okkar? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Fíllinn í postulínsbúðinni: Veldisvöxtur breytinganna Árni Sigurðsson skrifar Skoðun Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Það eru ekki allir jafnir hér: Krefjumst jafnræðis lífsskoðunarfélaga og afnáms sérstakrar þjóðkirkju Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Ræktum samtakamátt ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Öfugsnúið fyrirkomulag - lífeyrissjóðir okkar Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Hver á upplýsingarnar um ofnæmi barnsins þíns? Bjarni Þór Ævarsson skrifar Skoðun Skjátími eða skjátími? Mathieu Grettir Skúlason skrifar Skoðun Stöndum með Seyðisfirði! Hannes Pétursson skrifar Skoðun 23? Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Íslenskt táknmál er ekki erlent tungumál Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Orð eiga að hafa merkingu og undirskriftir að skipta máli Guðmundur Halldór Björnsson skrifar
Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar
Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar
Skoðun Það eru ekki allir jafnir hér: Krefjumst jafnræðis lífsskoðunarfélaga og afnáms sérstakrar þjóðkirkju Svanur Sigurbjörnsson skrifar