„Day of fun“ fól ekki í sér áfengi hjá Jóni Erik Ágúst Orri Arnarson skrifar 19. febrúar 2026 13:45 Óttast var að skíðakappinn hefði sötrað eitthvað allt annað en sódavatn fyrir keppni. Skíðakappinn Jón Erik Sigurðsson vakti mikla athygli þegar hann birti „Day of fun“ myndband með vinum sínum degi áður en hann keppti á Vetrarólympíuleikunum. Jón Erik áréttar að hann drekkur ekki áfengi.
Jón Erik virtist örlítið slompaður í myndbandinu sem hann birti á TikTok eftir þennan gleðidag með vinum sínum. Þeir voru þá sestir á veitingastað, kvöldið áður en Jón keppti á ÓL og náði besta árangri Íslendings í tvo áratugi. „Heil og sæl kæra þjóð. Dagurinn í dag er búinn að vera geggjaður… Strákarnir eru mættir og við tókum day of fun í dag. Ég held að við séum bara klárir í morgundaginn“ sagði Jón Erik í myndbandinu. @joneriik Fylgist með á morgun🇮🇸🇮🇸🇮🇸 #olympicmilanocortina2026 ♬ original sound - Jón Erik Sigurðsson🇮🇸 Umræða fór af stað um það hvort Jón Erik hefði verið með áfengi við hönd þetta kvöld. Meðal annars var þetta mál rætt í hlaðvarpinu Steve Dagskrá. „Hann var ekki í sódavatni þennan dag. Augun alveg fljótandi og sindrandi. Þetta er Paul Gascoigne svigsins, the bad boy of slalom“ sögðu þeir skellihlæjandi og tóku síðan fram að þeir væru ánægðir með þetta framtak. Jón Erik birti annað myndband í gær, eftir heimkomuna til Íslands, þar sem hann sagðist ánægður með sína frammistöðu og áréttaði að áfengi hefði ekki verið við hönd þetta umrædda kvöld. @joneriik Fyrst og fremst stenmingsmaður Takk fyrir mig💙🇮🇸 ♬ original sound - Jón Erik Sigurðsson🇮🇸 „Í ljósi umræðunnar um þetta skemmtilega day of fun myndband þarna hjá mér fyrir stórsvigið… Menn halda að ég hafi farið aðeins of greitt í gleðina en ég vildi bara minnast á það að ég hef aldrei drukkið áfengi, tekið í vörina eða einu sinni drukkið orkudrykki. En bara öll umræða er góð umræða“ sagði Jón Erik og hafði gaman að. „En að öllu gríni slepptu þá vil ég bara þakka kærlega fyrir mig. Við erum rétt að byrja“ sagði þessi efnilegi skíðakappi að lokum.
Vetrarólympíuleikar 2026 í Mílanó og Cortina Skíðaíþróttir Mest lesið Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Fótbolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Fótbolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Fótbolti Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Fótbolti Gómuð við gróft svindl í Berlín Sport Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Íslenski boltinn Bakgarðsáskorunin: Leitast eftir óprenthæfri hvatningu Sport Dregið á föstudag: Sjáðu mörk og fögnuð ungu strákanna okkar Fótbolti Fleiri fréttir Andar léttar: Skilorðsbundið bann fyrir njósnirnar Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Sérfræðingar skilja ekki landsliðsþjálfarann Upp um eitt sæti á heimslistanum Rekinn frá Tyrkjum Meisturunum spáð miðjumoði: „Skil ekki hvernig þeir náðu honum aftur“ Arteta framlengir við Arsenal Fékk „brjálæðislegt“ magn rasískra skilaboða eftir umdeilt atvik Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Dregið á föstudag: Sjáðu mörk og fögnuð ungu strákanna okkar Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Bakgarðsáskorunin: Leitast eftir óprenthæfri hvatningu Kveðjubréf frá Kidda Steindórs Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Mun ekki stíga aftur á völlinn það sem eftir er tímabilsins Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Dagskráin í dag: Tveir leikir og málin tækluð í Körfuboltakvöldi Æfði með rúgbíliði í Frakklandi á undirbúningstímabilinu Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Fékk að fara á fyrstu A-landsliðsæfinguna á afmælisdaginn Uppgjörið: Grindavík - Haukar 81-71| Grindavík sterkari á lokasprettinum Fagnar stiginu: „Ég var að fíla Eistana“ KR vann erkifjendurna sannfærandi „Bara lét okkur heyra það í hálfleik“ „Svo lengi sem ég get hlaupið vil ég spila fyrir Ísland“ „Hefðum tapað ef Hákon væri ekki í markinu“ „Það sem svíður mest“ „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Uppgjörið: Eistland - Ísland 0-0 | Markalaust en strákarnir á toppnum Sjá meira