„Man ekki eftir að hafa spilað við Hauka og fengið fleiri villur en þær“ Andri Már Eggertsson skrifar 17. febrúar 2026 21:47 Einar Árni Jóhannsson þjálfari Njarðvíkur, var ánægður með sigurinn Hulda/Vísir Njarðvík vann níu stiga sigur gegn Haukum 87-96 í Ólafssal. Einar Árni Jóhannsson, þjálfari Njarðvíkur, var ánægður með sigurinn og þá baráttu sem liðið lagði í leikinn. „
Baráttan stóð upp úr. Við tókum mikið af sóknarfráköstum og það var baráttan sem vó þungt fannst mér og ég man ekki eftir að hafa spilað við Hauka áður þar sem við fáum fleiri villur heldur en þær. Við lögðum okkur fram og vorum ákveðnar.“ „Við höfum alveg átt leiki þar sem við höfum gert vel í fráköstum eins og gegn Keflavík fyrir ekki svo löngu síðan. Við erum með ágætis hæð í bakvörðunum okkar og það var vinnsla í þessu,“ Aðspurður út í þriðja leikhluta Njarðvíkur þar sem liðið gerði 35 stig sagði Einar að boltahreyfing liðsins hafi verið góð. „Við hlupum gólfið vel og skutum boltanum vel. Þetta sást á stoðsendingunum þar sem við vorum með sjö stoðsendingar í fyrri hálfleik og við tvöfölduðum það í þriðja leikhluta. Þetta var virkilega flott frammistaða á báðum endum vallarins.“ Í stöðunni 75-86 tók Einar Árni leikhlé þegar tæplega þrjár mínútur voru eftir. Þetta leikhlé nýttist Haukum betur sem gerðu tíu stig í röð en Einar var ekki sammála um að það hafi verið mistök að taka leikhlé. „Við vorum að horfa í það að Brittany og Danielle höfðu ekki fengið hvíld í fjórða leikhluta. Við vorum sammála því að við ætluðum ekki að brenna leikhlé og við vildum taka leikhlé þegar það voru 2-4 mínútur eftir. Það var værukærð í okkur í fyrstu tveimur sóknum Hauka eftir leikhléið en það kom ekki að sök og við erum kát,“ sagði Einar Árni að lokum.
UMF Njarðvík Bónus-deild kvenna Mest lesið Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Fótbolti Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Fótbolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Fótbolti Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Fótbolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Gómuð við gróft svindl í Berlín Sport Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Íslenski boltinn Bakgarðsáskorunin: Leitast eftir óprenthæfri hvatningu Sport Dregið á föstudag: Sjáðu mörk og fögnuð ungu strákanna okkar Fótbolti Fleiri fréttir Andar léttar: Skilorðsbundið bann fyrir njósnirnar Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Sérfræðingar skilja ekki landsliðsþjálfarann Upp um eitt sæti á heimslistanum Rekinn frá Tyrkjum Meisturunum spáð miðjumoði: „Skil ekki hvernig þeir náðu honum aftur“ Arteta framlengir við Arsenal Fékk „brjálæðislegt“ magn rasískra skilaboða eftir umdeilt atvik Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Dregið á föstudag: Sjáðu mörk og fögnuð ungu strákanna okkar Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Bakgarðsáskorunin: Leitast eftir óprenthæfri hvatningu Kveðjubréf frá Kidda Steindórs Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Mun ekki stíga aftur á völlinn það sem eftir er tímabilsins Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Dagskráin í dag: Tveir leikir og málin tækluð í Körfuboltakvöldi Æfði með rúgbíliði í Frakklandi á undirbúningstímabilinu Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Fékk að fara á fyrstu A-landsliðsæfinguna á afmælisdaginn Uppgjörið: Grindavík - Haukar 81-71| Grindavík sterkari á lokasprettinum Fagnar stiginu: „Ég var að fíla Eistana“ KR vann erkifjendurna sannfærandi „Bara lét okkur heyra það í hálfleik“ „Svo lengi sem ég get hlaupið vil ég spila fyrir Ísland“ „Hefðum tapað ef Hákon væri ekki í markinu“ „Það sem svíður mest“ „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Uppgjörið: Eistland - Ísland 0-0 | Markalaust en strákarnir á toppnum Sjá meira