Fáum loks að feta í fótspor Johns Wick Samúel Karl Ólason skrifar 13. febrúar 2026 16:57 John Wick í glænýjum og taktískum jakkafötum. Sony opinberaði í gær að verið væri að gera hasarleik þar sem spilarar munu fá tækifæri til að upplifa hvernig það er að vera John Wick, hinn frægi launmorðingi. Leikurinn er unninn af starfsmönnum Saber Interactive og í samvinnu við leikstjórann Chad Stahelski, sem gerði kvikmyndirnar um Wick. Þá er virðist sem leikurinn sé talsettur af Keanu Reeves.
Fyrsta stikla leiksins var opinberuð á State of Play hjá Playstation í gærkvöldi. Í yfirlýsingu á vef PlayStation segir að leikurinn muni eiga sér stað á áhrifamiklum tíma í lífi Wicks og að þar muni persónum úr kvikmyndunum bregða fyrir. Þar segir einnig að leikurinn muni að einhverju leyti líkjast kvikmyndunum um launmorðingjann og er vísað til staðsetningu myndavéla og andrúmslofts. Þá er auðvitað sérstaklega vísað til bardagakerfis leiksins og að það muni líkjast bardagastíl Wicks, sem kallast gun-fu. Þar beitir Wick bardagalistum og skotvopnum af mikilli nákvæmni og með góðum árangri. Bardagar í leiknum eiga að líkjast bardagaatriðum í kvikmyndunum um Wick. Ekki liggur fyrir hvenær leikurinn á að koma út né hvað hann mun heita en það mun vera tilkynnt síðar. Svo virðist þó sem hann eigi að koma út á PlayStation 5. Ekki má sjá mikið af myndefni úr leiknum sjálfum en því virðist þó bregða fyrir í lokinn á stiklunni. Þetta er ekki fyrsti leikurinn um John Wick en árið 2019 kom út leikurinn John Wick Hex. Hann var ekki hasarleikur en hægt væri að lýsa honum frekar sem stafrænu borðspili, sem ætlað var að fanga taktík kvikmyndanna en ekki hasarinn.
Leikjavísir Bíó og sjónvarp Mest lesið Steinn Ármann er látinn Lífið Davíð Þór um fráfall Steins Ármanns: „Engin orð. Bara sorg“ Lífið Kjóllinn brann korter í brúðkaup Lífið Fór létt með tíu kílómetra: „Við sjáumst bara í markinu gamla mín“ Lífið Svona voru afmælistónleikar Bylgjunnar á Menningarnótt Lífið Krakkatía vikunnar: Svampur Sveinsson og Sesarsalatið Lífið „Maður veit aldrei hvað framtíðin ber í skauti sér“ Lífið Leikkonan Bunny Levine er látin Lífið Úlfadrengurinn í Sierra Morena allur Lífið Fréttatía vikunnar: Eiður Smári, Harry og frelsissvipting Lífið Fleiri fréttir Einkaréttur Netflix á stiklu GTA 6 vekur athygli Stiklusúpa: Sturlað leikjahaust og vetur í vændum Sjá meira